Læknablaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VINNUTÍM
Jóhannes M. Gunnarsson
lœkningaforstjóri
Landspítala.
Erfitt að mæta hvíldartíma-
ákvæðum EES
Á undanförnum niisscrum hafa verulegar breyt-
ingar orðiö á vaktavinnufyrirkomlagi lækna á
íslenskum sjúkrahúsum vegna tilskipunar frá
Evrópusambandinu um lögboðinn hvfldartíma
fyrir og eftir vaktir. Þetta hefur ekki aðeins haft
áhrif á viðveru og vinnutíma lækna heldur einnig
valdið breytingum á skipulagi og starfsemi deilda
og verksviði lækna, ekki síst sérfræðinga sem
telja margir að lögin hafi haft áhrif til hins verra
sé miðað við óbreyttar forsendur að öðru leyti.
Kostnaðarauki vegna þessa fyrir Landspítalann
er nærri 100 milljónir króna á ári. Flestir eru sam-
mála um kosti þess að vinna ekki óhóflega langar
vaktir og að Iausnin felist í því að fjölga stöðum
unglækna við spítalann til að mæta þessum breyt-
ingum. Þar hefur hnífurinn hinsvegar staðið í
kúnni þó reynt hafi verið að fjölga unglæknum
en því eru takmörk sett bæði af fjárhagsástæð-
um og svo því það hefur hreinlega ekki verið
fleira fólk á markaðnum að sögn Jóhannesar M.
Gunnarssonar lækningaforstjóra, Landspítala -
háskólasjúkrahúss.
„Vinnutímatilskipunin leiðir til talsvert mik-
illa fjarvista hjá þeim læknum sem ganga vaktir.
Á þeim deildum og einingum þar sem eru til-
tölulega fáir aðstoðar- og deildarlæknar eru miklar
fjarvistir. Samkvæmt tilskipuninni er hámarks-
vinnutími á sólarhring 13 tímar og það er áskilið
að viðkomandi sé í fríi daginn eftir bundna vakt.
Lágmarkshvíldartími fyrir og eftir 13 tíma vakt er
11 klukkustundir og þetta hefur auðvitað veruleg
áhrif á alla starfsemi deilda og lækningaeininga,”
segir Jóhannes.I samtölum Læknablaðsins við
lækna hafa komið fram ýmis sjónarmið varðandi
þetta fyrirkomulag og er bent á ýmsar breyting-
ar sem því fylgi þó allir séu sammála um að það
nái tilgangi sínurn að því leyti að það dregur úr
vinnuálagi og tryggir eðlilega hvíld á milli vakta.
Hinsvegar hefur verið bent á að þetta hefur í för
með sér meira álag á sérfræðinga deildanna, sér-
staklega á dagvinnutíma þar sem ekki hefur tekist
að manna deildirnar í samræmi við þetta breytta
fyrirkomulag.
Í viðtali í 3. tbl. Læknablaðsins 2007 sagði Guð-
laug Þorsteinsdóttir, geðlæknir á geðdeild Land-
spítalans, að verulegar breytingar hefðu orðið á
daglegri starfsemi geðdeildarinnar í kjölfar inn-
leiðingar EES tilskipunarinnar.
„Fyrir 15-20 árum voru geðdeildir mjög vel
mannaðar af aðstoðarlæknum og gott framboð
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið 2007/93 627