Læknablaðið - 15.09.2007, Page 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VINNUTÍMI
vinna lendi á þeim. Sumir eru ekkert hrifnir af því
að ganga í þessi störf. Um helmingur sérfræðinga
spítalans er hér í hlutastarfi og það hefur einnig
áhrif á hversu illa gengur að ná upp samfellu í
teymisvinnunni við þessi skilyrði.”
Hefur áhrif á gæðin
Hefur þetta þá ekki áhrifá gœði lækninganna?
„I sumum tilfellum, sérstaklega þar sem sam-
fellan í teymisvinnunni verður mjög slitrótt, þá tel
ég að þetta korni niður á gæðunum og getur einn-
ig tafið uppvinnslu og meðferð sjúklinga og þar
með lengt legutíma sjúklinga. Margir eru einnig
þeirrar skoðunar að námsgildi þess tíma sem að-
stoðarlæknar eru hér rýrni við þessi skilyrði. Ég
er reyndar ekki sammála þessu því ég tel að fólk
læri ekki mikið svefndrukkið og þreytt eftir sól-
arhringslanga vakt eða jafnvel lengri. Hinsvegar
eru aðstæður okkar hér á íslandi nokkuð sérstak-
ar hvað varðar sérnám að hér taka unglæknar að-
eins fyrstu 1 - 3 ár sérnámsins og fara síðan utan
til að ljúka sérnámi. Þetta er í rauninni grunn-
vinnukrafturinn á erlendum spitölum en við miss-
urn okkar fólk og þar af leiðir að sérfræðingarnir
þurfa að ganga í þessa vinnu. Það er hvorutveggja
dýrari starfskraftur og einnig finnst sumum sem
þeir séu að sinna vinnu sem ekki sé í samræmi við
þeirra sérfræðiþekkingu og kunnáttu.”
Hversu marga lœkna þyrftuð þið árlega til að
geta mœtt þessu?
„Við værum nokkuð vel sett ef við hefðum
12-15 aðstoðarlækna til viðbótar. Þetta skiptist
nokkuð jafnt á milli deilda lyflækninga, skurð-
lækninga og geðlækninga.”
Er einhver leið til að breyta þessu?
„Við unum við þetta því það er ekkert annað í
boði. Því er ekki að neita að við horfum nokkrum
öfundaraugum á hversu frjálslega aðrar þjóðir
virðast fara með þessi hvíldartímaákvæði EES en
hér hefur þessu verið fylgt fast eftir af íslenskum
læknasamtökunum og við reynt að fara að regl-
unum eins og krafist er.
Þetta hefur hinsvegar haft þau áhrif að spít-
alinn reynir að bjóða unglæknum upp á fyrstu
þrjú ár sérnáms í sífellt fleiri greinum. til að þess
að halda í þennan starfskraft sem lengst og missa
hann í sem skemmstan tíma. Þetta er ákveðið
mótvægi og hjálpar til við að mæta þessu. Þess má
einnig geta að unnið er að endurbótum verkferla
í tengslum við stýrt flæði sjúklinga á spítalanum,
en það er umbótaverkefni sem miðar að því að
sem minnstar tafir verði á rannsóknum og með-
ferð hvers sjúklings. Þar hefur vandinn verið sá
að okkur vantar unglækna. Það sem við horfum
til er að fá heimild og fjárveitingu til að ráða fleiri
lækna og hinsvegar að þeir læknar sem eru að
útskrifast úr læknanámi erlendis skili sér hingað
heim eftir kandidatspróf og loks að unglæknar
nýti sér í meira mæli þá möguleika til upphafs-
náms í sérgreinum læknisfræðinnar sem hafa
nægilegan staðal til að geta leitt unga fólkið í
sérnámi.”
“...and my husband and I have had a fantastic experience. We are
now permanent residents and expect to obtain our Australian citizen
ship in a few months. Thanks Global Medical!”
- Ann Rudden, MD
Earn A$300 to A$I500 a day (Australian dollars) or more plus
airfare, paid leave and, in many instances, a house and car. Call us
today for details: 0 800 8464.
Global Medical Staffing, Ltd
website: www.gmedical.com email: doctors@gmedical.com
Australia is stunninq in black a
Læknablaðið 2007/93 629