Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2007, Qupperneq 45

Læknablaðið - 15.09.2007, Qupperneq 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VINNUTÍMI vinna lendi á þeim. Sumir eru ekkert hrifnir af því að ganga í þessi störf. Um helmingur sérfræðinga spítalans er hér í hlutastarfi og það hefur einnig áhrif á hversu illa gengur að ná upp samfellu í teymisvinnunni við þessi skilyrði.” Hefur áhrif á gæðin Hefur þetta þá ekki áhrifá gœði lækninganna? „I sumum tilfellum, sérstaklega þar sem sam- fellan í teymisvinnunni verður mjög slitrótt, þá tel ég að þetta korni niður á gæðunum og getur einn- ig tafið uppvinnslu og meðferð sjúklinga og þar með lengt legutíma sjúklinga. Margir eru einnig þeirrar skoðunar að námsgildi þess tíma sem að- stoðarlæknar eru hér rýrni við þessi skilyrði. Ég er reyndar ekki sammála þessu því ég tel að fólk læri ekki mikið svefndrukkið og þreytt eftir sól- arhringslanga vakt eða jafnvel lengri. Hinsvegar eru aðstæður okkar hér á íslandi nokkuð sérstak- ar hvað varðar sérnám að hér taka unglæknar að- eins fyrstu 1 - 3 ár sérnámsins og fara síðan utan til að ljúka sérnámi. Þetta er í rauninni grunn- vinnukrafturinn á erlendum spitölum en við miss- urn okkar fólk og þar af leiðir að sérfræðingarnir þurfa að ganga í þessa vinnu. Það er hvorutveggja dýrari starfskraftur og einnig finnst sumum sem þeir séu að sinna vinnu sem ekki sé í samræmi við þeirra sérfræðiþekkingu og kunnáttu.” Hversu marga lœkna þyrftuð þið árlega til að geta mœtt þessu? „Við værum nokkuð vel sett ef við hefðum 12-15 aðstoðarlækna til viðbótar. Þetta skiptist nokkuð jafnt á milli deilda lyflækninga, skurð- lækninga og geðlækninga.” Er einhver leið til að breyta þessu? „Við unum við þetta því það er ekkert annað í boði. Því er ekki að neita að við horfum nokkrum öfundaraugum á hversu frjálslega aðrar þjóðir virðast fara með þessi hvíldartímaákvæði EES en hér hefur þessu verið fylgt fast eftir af íslenskum læknasamtökunum og við reynt að fara að regl- unum eins og krafist er. Þetta hefur hinsvegar haft þau áhrif að spít- alinn reynir að bjóða unglæknum upp á fyrstu þrjú ár sérnáms í sífellt fleiri greinum. til að þess að halda í þennan starfskraft sem lengst og missa hann í sem skemmstan tíma. Þetta er ákveðið mótvægi og hjálpar til við að mæta þessu. Þess má einnig geta að unnið er að endurbótum verkferla í tengslum við stýrt flæði sjúklinga á spítalanum, en það er umbótaverkefni sem miðar að því að sem minnstar tafir verði á rannsóknum og með- ferð hvers sjúklings. Þar hefur vandinn verið sá að okkur vantar unglækna. Það sem við horfum til er að fá heimild og fjárveitingu til að ráða fleiri lækna og hinsvegar að þeir læknar sem eru að útskrifast úr læknanámi erlendis skili sér hingað heim eftir kandidatspróf og loks að unglæknar nýti sér í meira mæli þá möguleika til upphafs- náms í sérgreinum læknisfræðinnar sem hafa nægilegan staðal til að geta leitt unga fólkið í sérnámi.” “...and my husband and I have had a fantastic experience. We are now permanent residents and expect to obtain our Australian citizen ship in a few months. Thanks Global Medical!” - Ann Rudden, MD Earn A$300 to A$I500 a day (Australian dollars) or more plus airfare, paid leave and, in many instances, a house and car. Call us today for details: 0 800 8464. Global Medical Staffing, Ltd website: www.gmedical.com email: doctors@gmedical.com Australia is stunninq in black a Læknablaðið 2007/93 629
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.