Læknablaðið - 15.09.2007, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CPME
Fréttir frá Evrópusamtökum lækna
Evrópusamtök lækna, CPME, mótuðu á stjórn-
arfundi sínum í Póllandi 17. mars stefnu í fjölmörg-
um málum, m.a. um tóbak, geðheilsu stríðsátök,
svikalyf og fleira. A aðalfundi samtakanna sem
haldinn var sama dag var kjörinn forseti fyrir tíma-
bilið 1. janúar 2008 til 31. desember 2009, svo og
framkvæmdastjórn, og var Katrín Fjeldsted kjörin
einn fjögurra varaforseta samtakanna.
Katrín Fjeldsted er fulltrúi Læknafélags íslands
í Evrópusamtökum lækna og reifar hún hér á eftir
stefnu CPME í nokkrum málaflokkum. Sumum
þarf að gera ítarlegri skil en öðrum en í öllum
tilvikum er vísað í viðkomandi skjal sem birt er
á vefsíðu samtakanna, www.cpme.be. Skjölin eru
númeruð þannig að fyrst kemur ártalið, þá skjaln-
úmer innan ársins og loks kemur fram hvort text-
inn er á ensku eða frönsku.
Samþykkt um tóbak: CPME 2007/023 Final
EN/FR
CPME fagnargrænbók Evrópuráðsins um „Evrópu
lausa við tóbaksreyk” og hvetur ESB til að korna
á bindandi löggjöf um bann við reykingum í öllum
aflokuðum almenningsrýmum og á vinnustöðum.
CPME þykir miður að Evrópuþingið skuli hafa
fellt úr gildi bann við reykingum í húsakynnum
þingsins sjálfs og hvetur til þess að sú ákvörðun
verði endurskoðuð.
Geðheilsa: CPME 2007/032 Final EN/FR
CPME hyggst halda áfram þátttöku í og stuðn-
ingi við geðheilsuáætlun ESB (Mental Health
Programme) og leggur til að aðstæðum á vinnu-
stöðum verði bætt við sem mikilvægu atriði.
Læknastéttin og stríðsátök: CPME 2007/026
Final EN/FR
CPME tekur að fullu undir samþykkt Alþjóða-
samtaka lækna um reglur sem gilda skulu á stríðs-
tímum (Regulation in Times of Armed Conflict)
og undirstrikar að stríð skapar ofbeldi, ótta og
eyðileggingu sem stangast á við allt það sem lækn-
isfræði stendur fyrir. Vegna siðfræðilegrar ábyrgð-
ar sinnar skulu læknar sinna sjúklingum burtséð
frá því hvaðan þeir eru eða hverju þeir tengjast.
Aðgangur að læknishjálp fyrir þá sem leita
hæiis sem pólitískir flóttamenn: CPME
2007/025 Final EN/FR
CPME hyggst vinna að því gagnvart ESB að þeir
sem leita hælis sem pólitískir flóttamenn eigi rétt á
sambærilegri heilbrigðisþjónustu og aðrir borgarar.
Læknasamtök í aðildarlöndum CPME munu gera
slíkt hið sama gagnvart stjórnvöldum í hverju landi
fyrir sig.
Áyktun um svikalyf (Counterfeit Medicines):
CPME 2007/052 Final EN/FR
Mjög mikilvægt er að lyfjameðferð sé örugg og
áreiðanleg bæði fyrir sjúklinginn og fyrir samband
læknis og sjúklings. Þess vegna skorar CPME á
Evrópuráðið og löggjafa í hverju aðildarlandi fyrir
sig að skapa lagaramma sem dugar til að koma í
veg fyrir framleiðslu, sölu og dreifingu á sviknum
lyfjum og fer þess á leit að gæðaeftirliti sé beitt við
öll lyf sem dreift er.
Ályktun um mat á áhrifum meðferðar (Relative
Effectiveness): CPME 2007/021 Final EN/FR
CPME telur að til þess að meta áhrif meðferðar
þurfi að byggja á læknisfræðilegum vísindarann-
sóknum og niðurstöðum (medical data) eingöngu
og að efnahagslegar forsendur megi ekki verða að-
alatriðið. CPME fellst þó á að mat á áhrifum með-
ferðar skipti miklu í sérhverri úttekt á því hvaða
meðferð svari kostnaði.
Sameiginlegt framlag CPME/EMSA/PWG
um skjal Evrópuráðsins um nútímavæðingu í
vinnulöggjöf til að mæta áskorun 21. aldarinn-
ar: CPME 2007/054 Final EN/FR
EMSA eru Evrópusamtök læknanema og PWG
eru samtök unglækna. Samtökin þrenn fögnuðu
umræðunni sem Evrópuráðið hratt af stað. Hins
vegar eru nokkur mál sem sérlega þarf að huga að.
Sé litið á svokallað sveigjanlegt öryggi (flexicurity
- nýyrði á ensku yfir samspil milli sveigjanleika og
öryggis) og sveigjanleikinn látinn sitja í fyrirrúmi
þá hefur það áhrif á öryggi fagfólks og almennings.
CPME, EMSA og PWG styðja heilshugar vinnu-
tímaskilgreiningu Evrópudómstólsins og leggja
áherslu á mikilvægi vinnutímatilskipunarinnar í
heild (European WorkingTime Directive).
Katrín Fjeldsted
Læknablaðið 2007/93 637