Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Frumkvæði lækna á krepputímum
Bryndís
Benediktsdóttir
brynben@hi.is
Bryndís er sérfræðingur í
heimilislækningum og dósent
við læknadeild Háskóla
Islands.
í nýliðnu góðæri bjó heilbrigðisþjónustan við
aðhald og sparnað því ekki mátti auka þenslu í
þjóðfélaginu. Sagt var að betri tímar væru í nánd
þegar slaknaði á þenslu, nýtt sjúkrahús yrði byggt
með augljósri hagræðingu og heilsugæsla efld.
En eftirlitslaus markaðshyggja var allsráðandi
og jafnvel virðist litlu hafa mátt muna að heil-
brigðiskerfið yrði blindri nýfrjálshyggju að bráð.
í einni svipan féllu leiktjöldin og við blasti meiri
spilling og óstjórn en nokkurn gat órað fyrir.
Þjóðin skuldum vafin, atvinnuleysi og kreppa.
Heilbrigðisstjórnvöld krefjast mikils sparnaðar en
talsmáti þeirra er torskilinn. í nálægð kosninga
er reynt að telja þjóðinni trú um að þjónusta heil-
brigðiskerfis muni ekki skerðast!
Hversu reið sem við erum er ljóst að kvöldi
dags að íslenska þjóðin hefur minna fé til heil-
brigðisþjónustu. Samtímis er brýnt að læknastétt-
in sýni frumkvæði að stefnumótun og hafi fagleg
gildi að leiðarljósi. Hlutverk okkar lækna hlýtur að
vera að tryggja skilyrðislausan forgang þeirra sem
eru veikir að heilbrigðisþjónustunni; til greiningar,
lækningar, hjúkrunar eða umönnunar allt eftir því
sem faglega er þörf á. Ef framfylgja á slíkri stefnu
þurfa læknar að hætta að ríghalda í aðstöðu, stofn-
anir og hlutverkaleik innan heilbrigðiskerfisins.
Skjólstæðingar okkar eru ekki stofnanir, hagur
fyrirtækja eða hlutverk einstakra starfstétta innan
kerfisins. Skjólstæðingar okkar eru veikt fólk.
Að mínu áliti eiga læknar að sýna frumkvæði og
vinna markvisst og af fagmennsku með hag þeirra
sem veikir eru að leiðarljósi, stuðla að því að for-
gangsraða starfsfólki að þeim stofnunum og í störf
þeirra sem sinna veikum. Þjónusta og eftirlit með
frísku fólki þarf að mæta afgangi. Hugsa þarf upp
nýtt vinnulag, hlutverk starfstétta og viðfangsefni.
Þetta verður ekki gert sársaukalaust.
Hugmynd kollega míns í heilsugæslunni er
dæmi um þessa nýju róttæku hugsun. Hann lagði
til að víðtækt þroskamat, sem stendur til að taka
upp í ung- og smábarnavernd heilsugæslunnar,
færi betur í höndum leikskólakennara, sem hafa
í námi sínu og starfi öðlast kunnáttu og færni til
að meta þroska barna. Hann taldi augljóst að vel
menntaður leikskólakennari sem sinnir barni allan
daginn væri líklegri til að greina þroskafrávik en
hjúkrunarfræðingur sem hittir barnið stutta stund
á heilsugæslustöð. Langflest böm á umræddum
aldri sækja leikskóla (sem nú eru fullmannaðir
fagfólki), en bjóða mætti þeim sem ekki gerðu það
til skoðunar á heilsugæslustöð. Hann benti á að
stór hluti þroskafrávika barna væru á uppeldisleg-
um grunni, en ekki vegna sjúkdóms og því frekar
á færi leikskóla og foreldra að takast á við þann
vanda. Með þessum breytingum mætti einbeita
sér að þeim hópi barna, sem félli á þroskamati og
þyrfti raunverulegt liðsinni heilbrigðisstarfsfólks.
Spara mætti mikla vinnu hjúkrunarfræðinga,
lækna og annars starfsfólks á heilsugæslustöðvum
við eftirlit og mat á frískum börnum. Um leið yrði
þeim kleift að leggja aukna áherslu á aðkallandi
störf við heimahjúkrun og lækningar. Á þann hátt
mætti sinna veiku fólki betur. Fólki sem sent hefur
verið heim af sjúkrahúsi veikara en áður vegna
samdráttar þar.
Ég nefni þessa hugmynd sem dæmi um gagn-
rýna hugsun og raunverulega tillögu sem sprottin
er úr eigin vinnuumhverfi góðs kollega. Því miður
vill brenna við að flestar sparnaðarhugmyndir
lækna fjalli um störf og aðstæður sem eru bæði
faglega og landfræðilega langt í burtu frá þeim
sjálfum.
Gera verður kröfu um að starfsumhverfi
heilbrigðisstétta kalli ekki á kostnaðarsaman
tvíverknað og sem allra fyrst þarf að koma upp
miðlægum rafrænum gagnagrunni með nauðsyn-
legustu upplýsingum. Það er ótrúlegt sinnuleysi
hversu litlu hefur verið varið til slíkrar uppbygg-
ingar. Eins má spyrja sig hvers vegna ekki er leitað
samráðs við lækna um hvernig megi nýta sem
best þá milljarða sem þjóðin ver til lyfjakaupa.
Landlæknisembættið hefur unnið mjög góðan
grunn sem mætti byggja á.
Þörfin fyrir lækna til að móta bætta stefnu í
heilbrigðisþjónustu hefur aldrei verið brýnni. Það
verður fróðlegt að sjá á næstu mánuðum hvort
heilbrigðisyfirvöld munu leita eftir faglegum
lausnum eða hvort önnur sjónarmið ráði ferðinni.
Sjálf er ég sannfærð um að hver einasti læknir er
reiðubúinn að leggja lið og setja til hliðar hugs-
unarháttinn „hvernig held ég mínu" og stuðla
að gagnrýninni umræðu um faglegar umbætur
í nánasta starfsumhverfi og sýna frumkvæði að
því að gera þær að veruleika. Um leið þurfa heil-
brigðisyfirvöld miklu virkara aðhald þannig að
við þurfum ekki stöðugt að búa við órökstuddar
neyðarráðstafanir og tilraunir til brota á gildandi
samningum. í lýðræðisþjóðfélögum er samið.
íslenska þjóðin þarf á öllu sína besta fagfólki að
halda til að finna lausnir á erfiðum krepputímum.
LÆKNAblaðið 2009/95 1 03