Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 29
FRÆÐIGREINAR SJÚKRATILFELLI hartn sé útlendingur þó einkennin séu mun vægari nú en þau voru framan af. Hann þreytist verulega af litlu tilefni eins og svo margir sem fá heilablóð- fall vinstra megin og er það í raun það sem honum þykir erfiðast að sætta sig við. Hann hefur sáralítið úthald til þess að tala eitthvað að ráði og til allrar líkamlegrar áreynslu eða vinnu og hljóðáreiti eru honum sömuleiðis erfið og þreytandi. Umræða En hvernig skyldi þá AA sem hér er lýst bera saman við rannsóknir á öðrum hægra heilahvels málstolssjúklingum? Þess er fyrst að geta að hann fellur ekki í spegilmyndahópinn. Hann hefur þó einkenni hefðbundins málstols af Broca-gerð og mikið mállegt verkstol í talfærum eins og títt er eftir skaða í ennisblaði vinstra heilahvels, en hann hefur önnur einkenni sem falla utan við þennan ramma og eru um leið málfræðilega eftirtekt- arverð. Hljóðkerfisfræðilegir erfiðleikar í tali hans eru mjög athyglisverðir og um leið óvenjulegir, nefnilega það að hann skuli hafa misst út þá reglu í hljóðkerfi sínu sem snýr að notkun aðblásturs í framburði. Aðblástur er sjaldgæft fyrirbæri í tungumálum heimsins og hljómar eins og skotið hafi verið inn blásturshljóði (/i-hljóði) í framburði á milli stutts sérhljóðs og stutts ófráblásins lok- hljóðs.22'23 í íslensku kemur aðblástur aðeins fyrir í framburði við ákveðnar aðstæðui; það er á undan samhljóðunum /pp, tt, kk/ og líka á undan /p, t, k/ + /l, m, n/ eins og í orðunum teppi, hattur og kokkur. Nánar má lesa um aðblástur f íslensku hjá Þráinsson24 og skynjun á aðblæstri í íslensku hjá Pind.25 Önnur regla í hljóðkerfi sjúklings tapaðist líka. Það er framburður á önghljóðinu /f/ í innstöðu orða eins og í orðunum gefa og afi. Þetta hljóð er alltaf borið fram sem [v] í íslensku í þessari stöðu26 en AAbar það fram sem [f]. Þetta eru hvort tveggja reglur sem við lærum snemma á máltökuskeiði. Það er athyglisvert að skoða þetta betur því það kemur nánast aldrei fyrir að aðblástur og röddun á f-i í innstöðu hverfi svona úr tali íslendinga sem kornnir eru af máltökuskeiði og ekki heldur þeirra sem fengið hafa málstol eftir skaða í vinstra heilahveli. Maður getur þá velt því fyrir sér hvort þessir þættir hljóðkerfisins eigi venjulega heima hægra megin í heilanum, á sama stað og hljómfall- ið og áherslumar í tali okkar en ekki vinstra megin eins og talið er. Það sé því ástæða þess að aðblást- urinn hvarf um leið og tónfall, áherslur og annað í málgetu þessa einstaklings sem fór úrskeiðis eftir skaðann í hægra heilahveli. Við þessa upptalningu má bæta skertum sönghæfileikum og því að halda taktí í dansi. Hvað varðar mun á töluðu og rituðu máli kom í ljós að erfiðleikar við að stafsetja erfið orð voru tíl staðar hjá AA. Sem dæmi má nefna stárkurinn/ strákurinn, kifaði/klifraði. Einnig voru dæmi um það að ýmis smáorð vantaði í setningarnar og ein- staka samræmis- og beygingarvillur vom til staðar eins og lýst var hér að ofan. Samt var það svo að þessi sjúklingur sem hér er fjallað um átti miklu auðveldara með að tjá sig skriflega en munnlega eins og áður var nefnt og notaði einungis þá leið til tjáskipta framan af. Hann reyndist því í heild- ina miklu færari við að nota ritað mál en talað mál sem heldur honum utan við spegilmyndahópinn þar sem þessu er oftast öfugt farið. Lokaorð Hér hefur verið lýst málgetu eins sjúklings með hægra heilahvels málstol og mállegt verkstol í talfær- um. Oftast, eða í um 70% tilvika, reynist málstol eftir skaða í hægra heilahveli vera svipað og hjá þeim sem fengið hafa skaða hinum megin, það er vera spegilmynd af þeim einkennum. Um 30% sýna öðruvísi einkenni og má segja að AA falli í þann hóp. Hljóðkerfisfræðilegar villur sem hann gerir eru óvenjulegar og mætti ef til vill leiða að því líkur að þessir þættir hljóðkerfisins séu staðsettir hægra megin í heilanum og þess vegna hafi skaði í vinstra heilahveli ekki áhrif á þá. Stuðningur við þá tílgátu er sú staðreynd að slíkir erfiðleikar hafa ekki heyrst í íslensku eftir skaða á málsvæð- unum vinstra megin í heilanum. Hér er þó aðeins lýst einu tílfelli og það ber að hafa í huga. Það er heldur enginn samanburður til við einstaklinga sem fengið hafa heilablóðfall í hægra heilhvel án málstols með tilliti til aðblásturs. AA er vissulega einstakur hvað þessi einkenni varðar, en það er líka hugsanlegt að málstöðvar hans og málkerfi séu öðruvísi en hjá flestum. Hvað tónfall, áherslur, blæbrigði, söng og fleira varðar, sem skað- ast líka, mætti þá segja að þeir þættir séu hægra megin hvoru megin sem málstöðvarnar eru. Það er ólíkt verkstoli í talfærum sem við sjáum að flyst með málstöðvunum en er ekki eingöngu vinstra megin eins og lengi var álitið. Þakkir Við þökkum Emilíu Lóu Halldórsdóttur, aðstoð- armanni talmeinafræðinga, fyrir nákvæma vinnu við málsýni í þessari grein. Höskuldi Þráinssyni, prófessor, þökkum við mjög gagnlegar at- hugasemdir við fyrri gerðir af greininni. Guðnýju Daníelsdóttur, lækni, ásamt tveimur ritrýnum Læknablaðsins, er þakkað fyrir yfirlestur og at- hugasemdir á lokasprettinum. LÆKNAblaðið 2009/95 125
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.