Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 40
UMRÆÐUR O G
LÆKNADAGAR
F R É T T I R
Læknadagar 2009
Margrét Aðalsteinsdóttir og Arna Guðmundsdóttir.
Sigurjónsson Guðlaug Þorsteinsdóttir og Sigríður Signarsdóttir.
Læknadagar 2009 voru óhjákvæmilega mark-
aðir því ástandi sem ríkt hefur í þjóðfélaginu
undanfarna mánuði. Ekki með þeim hætti að
svartsýni eða depurð einkenndi málþingin og
fundina heldur var ljóst að læknar höfðu brugð-
ist fljótt við þeim aðstæðum sem uppi eru og á
annars fjölbreyttri dagskrá voru ein þrjú málþing
sem tóku markvisst á því hvernig kreppuástand
í samfélaginu hefur áhrif á heilsufar þjóðarinnar.
Var þar bæði fjallað um andlegt og líkamlegt
ástand fullorðins almennings, áhrif kreppu á börn
og unglinga, og loks geðheilsu læknanna sjálfra
sem þurfa að gera tvennt í senn; takast á við vanda
skjólstæðinga sinna og bregðast við kreppunni í
sínu persónulega lífi ekki síður en aðrir.
Dagskráin var þétt skipuð og fjölbreytt að
vanda, með alþjóðlegu yfirbragði þar sem færustu
sérfræðingar í ýmsum greinum voru sérstakir
gestir. Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Læknadaganna, sagði þó hálft í gamni, hálft í
alvöru, í setningarávarpi sínu að ástandið í þjóð-
félaginu væri þess eðlis að næstu Læknadagar
yrðu hugsanlega alíslenskir til að halda kostnaði
innan marka.
Annað einkenni á Læknadögum sem skapar
þeim ávallt nokkra sérstöðu er það tækifæri sem
læknar í hinum ýmsu sérgreinum fá til að kynna
sér hvað er efst á baugi í öðrum greinum en þeirra
eigin. Einn viðmælandi Læknablaðsins tók svo til
orða að þetta væri einstakt tækifæri til að kynna
sér viðfangsefni annarra sérfræðinga því ráðstefn-
ur erlendis snerust yfirleitt um mjög afmarkaða
hluti innan sömu sérgreinar. Undir þetta hafa
margir aðrir viðmælendur úr læknastétt tekið.
Heiðursgestur við setningu Læknadaga var
Margrét Guðnadóttir og hélt hún athyglisverða
brýningu til lækna um að þeir ættu að láta meira
Tryggvi Þorgeirsson.
136 LÆKNAblaðið 2009/95