Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 40

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 40
UMRÆÐUR O G LÆKNADAGAR F R É T T I R Læknadagar 2009 Margrét Aðalsteinsdóttir og Arna Guðmundsdóttir. Sigurjónsson Guðlaug Þorsteinsdóttir og Sigríður Signarsdóttir. Læknadagar 2009 voru óhjákvæmilega mark- aðir því ástandi sem ríkt hefur í þjóðfélaginu undanfarna mánuði. Ekki með þeim hætti að svartsýni eða depurð einkenndi málþingin og fundina heldur var ljóst að læknar höfðu brugð- ist fljótt við þeim aðstæðum sem uppi eru og á annars fjölbreyttri dagskrá voru ein þrjú málþing sem tóku markvisst á því hvernig kreppuástand í samfélaginu hefur áhrif á heilsufar þjóðarinnar. Var þar bæði fjallað um andlegt og líkamlegt ástand fullorðins almennings, áhrif kreppu á börn og unglinga, og loks geðheilsu læknanna sjálfra sem þurfa að gera tvennt í senn; takast á við vanda skjólstæðinga sinna og bregðast við kreppunni í sínu persónulega lífi ekki síður en aðrir. Dagskráin var þétt skipuð og fjölbreytt að vanda, með alþjóðlegu yfirbragði þar sem færustu sérfræðingar í ýmsum greinum voru sérstakir gestir. Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Læknadaganna, sagði þó hálft í gamni, hálft í alvöru, í setningarávarpi sínu að ástandið í þjóð- félaginu væri þess eðlis að næstu Læknadagar yrðu hugsanlega alíslenskir til að halda kostnaði innan marka. Annað einkenni á Læknadögum sem skapar þeim ávallt nokkra sérstöðu er það tækifæri sem læknar í hinum ýmsu sérgreinum fá til að kynna sér hvað er efst á baugi í öðrum greinum en þeirra eigin. Einn viðmælandi Læknablaðsins tók svo til orða að þetta væri einstakt tækifæri til að kynna sér viðfangsefni annarra sérfræðinga því ráðstefn- ur erlendis snerust yfirleitt um mjög afmarkaða hluti innan sömu sérgreinar. Undir þetta hafa margir aðrir viðmælendur úr læknastétt tekið. Heiðursgestur við setningu Læknadaga var Margrét Guðnadóttir og hélt hún athyglisverða brýningu til lækna um að þeir ættu að láta meira Tryggvi Þorgeirsson. 136 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.