Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 48
MINNINGARORÐ Helga Hannesdóttir, geðlæknir Minning um Ölmu Önnu Þórarinsson Alma Anna Þórarinsson var fædd 12. ágúst 1922 og lést 9. júlí 2011. Alma lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1941 og embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands árið 1951. Alma starfaði síðan sem héraðslæknir í Vík í Mýrdal, á Kirkjubæjarklaustri og á Selfossi. Að því loknu hélt hún ásamt manni sínum, Hjalta Þórarinssyni, sem síðar varð prófessor og forstöðumaður handlækningadeildar Landspítalans, til Bandaríkjanna og stundaði hún sérnám við University Hospital í Madison, Wis- consin. Alma lauk þaðan sérfræðinámi í svæfingum og deyfingum árið 1954 og starfaði sem svæfingalæknir eftir að þau hjón komu heim frá Bandaríkjunum, fyrst á Hvítabandinu og síðar á Landakots- spítala í samtals 10 ár. En þá ákvað Alma að söðla um í sérnámi og fara til Noregs til að leggja stund á nám í leit að krabbameini í leg- hálsi kvenna á vegum norska krabba- meinsfélagsins. Alma kynnti sér einnig skipulagðar fjöldarannsóknir í leit að forstigsbreytingu í leghálsi og ífarandi leg- hálskrabbameini hjá konum í Östfold-fylki í Noregi. Hún stundaði síðar sérnám við Radium Hospitalet í Montebello í Ósló árið 1964 og árið 1963 við Royal Infirmary í Glasgow í frumu- og meinafræði og síðan aftur árið 1965. Alma var ráðin yfirlæknir að Leitar- stöð Krabbameinsfélags íslands árið 1964 og gegndi því starfi næstu 8 ár. Alma var mikill brautryðjandi og frumkvöðull á þessu sviði hér á landi og skipulagði leit að krabbameini í leghálsi kvenna og sá að jafnaði 40 konur á dag. Hún tók sjálf sýnin úr leghálsi kvenna og smásjárskoðaði þau og greindi. Alma hlaut alheimsviðurkenningu fyrir þessi störf, en litið var á Leitarstöð Krabbameinsfélags- ins sem eina bestu leitarstöð í heiminum á þeim tíma. Alma var rúmlega fertug þegar hún hóf þetta starf og vann hún við krabbameinsleit og kynnti krabbameins- leitarstarf bæði hér á landi og víða í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu. Á þeim tíma þótti tíðindum sæta að kona væri ráðin til að veita leitarstarfi for- stöðu og skipuleggja starf en Alma hikaði ekki við að fara ótroðnar slóðir. Leitar- starfið náði í upphafi til kvenna frá 25 ára aldri til 59 ára aldurs í Reykjavík. Til að vekja athygli á gildi leitarinnar var efnt til kvikmyndasýningar í fræðsluskyni í Gamla bíói um leitarstarfið. Alma sagði í blaðaviðtali á þeim tíma að áhuginn fyrir starfinu sýndi skilning og þroska íslenskra kvenna. Alma var yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins í 8 ár og var sæmd gullmerki Krabbameinsfélags íslands árið 1984 fyrir störf sín. Einnig var hún heiðruð 16. september 1993 af Læknafélagi íslands í tilefni af 75 ára afmæli þess, fyrir störf í þágu krabbameinsforvarna á Islandi. Árið 1973 hóf Alma störf á geðdeild Landspítalans og lauk sérfræðinámi í geðlækningum árið 1979. Hún starfaði sem sérfræðingur í geðlækningum við Kleppsspítala, Vífilsstaðaspítala og við geðdeild Landspítala, Hringbraut í 10 ár. Geðlækningar voru í raun þriðja sérgrein læknisfræðinnar sem Alma helgaði sig og lagði stund á. Óhætt er að segja að Alma hafi rutt braut í menntun og stjórnun og uppbyggingu innan læknisfræði á Islandi og ekki síst með merkum rannsóknum hennar á áhrifum áfengisdrykkju ís- lendinga á lífalgengi alkóhólista, en rann- sóknir hennar birtust bæði í innlendum og erlendum læknaritum. Ég kynntist vel starfi Ölmu á geðdeild Landspítala en Alma starfaði síðustu árin á áfengisdeild spítalans ásamt Jóhannesi Bergsveinssyni yfirlækni. Alma var stór- brotinn persónuleiki sem gaf einstaklega mikið af sér, bæði til sjúklinga og sam- starfsmanna og án efa einnig til fjölskyldu sinnar. Alma og Hjalti eignuðust 5 mann- vænleg börn sem öll hafa lokið háskóla- prófum. Alma veiktist af Alzheimer-sjúk- dómi og lést tæplega níræð 9. júlí 2011. Fátt er mikilvægara í starfi okkar en góðar fyrirmyndir sem við kynnumst, kollegar sem er hægt að treysta og gefa okkur góða leiðsögn, ráð og fræðslu og hvetja okkur til dáða til að skara fram úr og halda áfram að ryðja brautina fyrir þá sem yngri eru og eiga eftir að móta eigin samtíð innan stéttarinnar og framtíð ann- arra. Alma var sannkallaður brautryðjandi en gætti einnig afar vel að sjúklingum sínum og þeim verkefnum sem henni voru falin, hvort sem það var sjúklingavinna, rannsóknarvinna, kennsla læknanema eða brautryðjenda- og stjórnunarstörf. Blessuð sé minning hennar. 48 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.