Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 60
Norspan® stytt samantekt á eiginleikum lyfs Norspan® búprenorfín - sterkur ópíóíði Norspan® foröaplástur 5 míkrog/klst., 10 míkrog/klst. og 20 míkrog/klst. Ábendingar: Meðferð við frekar miklum verkjum sem ekki eru vegna illkynja sjúkdóma þegar þörf er á ópíóíða til aö ná fram fullnægjandi verkjastillingu. Skömmtun: Norspan® á að nota á 7 daga fresti. Norspan® hentar ekki til meðferðar við bráðaverkjum. Sjuklingar 18 ára og eldri: Nota á lægsta skammt af Norspan® sem upphafsskammt, 5 míkrog/klst. Aólögun skammta: Við upphaf meðferðar og skammtastillingu á Norspan® eiga sjúklingar að nota venjulega, ráölagða skammta skammvirkra viðbótarverkjalyíja eftir þörfum þar til Norspan® er farið að hafa verkjastillandi áhrif. Ekki á að auka skammt fyrr en að 3 dögum liðnum þegar hámarksáhrifum tiltekins skammts hefur verið náð. Ráðlagt er að setja ekki meira en tvo plástra á húðina í einu. Aldraðir: Ekki er þörf á að aðlaga skammta Norspan® hjá öldruðum. Skert nýrnastarfssemi: Ekki er nauðsynlegt að aðlaga skammta sérstaklega íyrir sjúklinga með skerta nýmastarfssemi. Skeri lifrarstarfssemi: Búprenorfin er umbrotið í lifur. Breytingar geta orðið á styrk þess og tímalengd verkunar hjá þessum sjúklingum. Því á að fylgjast vandlega með sjúklingum með lifrarbilun meðan á meðferð með Norspan® stendur. í alvarlegum tilfellum ber að nota aðra lyQameðferð. Plásturinn á að hafa samfellt á í 7 daga. Frábendingar: Norspan® er ekki ætlað: Sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir virka efninu búprenorfíni eða einhverju hjálparefnanna; sem meðferð við ópíóíðfíkn og við fráhvarfseinkennum fíkniefna; til að nota við ástand þar sem alvarleg skerðing er á öndunarstöð og -starfssemi eða hætta er á því; sjúklingum sem fá MAO-hemla eða hafa fengið þá á síðastliðnum tveimur vikum; sjúklingum með vöðvaslensfár; sjúklingum með drykkjuóráð (delerium tremens); til nota á meðgöngu. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Nota á Norspan® með sérstakri varúð hjá sjúklingum með krampasjúkdóma, höfuðmeiðsl, lost, skerta meðvitund af óþekktum orsökum, skaða innan höfuðkúpu eða aukinn innankúpuþrýsting eða hjá sjúklingum með alvarlega skerta lifrarstarfsemi.Marktæk öndunarbæling hefur tengst búprenorfíni, einkum þegar það er gefið í bláæð. Þó nokkur dauðsföll af völdum ofskömmtunar hafa átt sér stað þegar fíklar hafa misnotað búprenorfín í bláæð, venjulega samhliða benzódíazepínum. Tilkynnt hefur verið um dauðsföll af völdum frekari ofskömmtunar með etanóli og benzódíazepínum ásamt búprenorfíni. Norspan® er ekki ráðlagt til verkjastillingar strax eftir skurðaðgerðir eða við aðrar aðstæður sem einkennast af þröngu lækningalegu bili eða þörf fyrir verkjalyf breytist hratt. Samanburðarrannsóknir á mönnum og dýrum gefa til kynna að búprenorfín sé síður ávanabindandi en verkjalyf með hreinum viðtakaörvum. í mönnum hefur orðið vart við takmörkuð vellíðunaráhrif við notkun búprenorfíns. Það getur valdið nokkurri misnotkun lyfsins og fara á gætilega í að ávísa því á sjúklinga þar sem vissa eða grunur er um sögu um lyfjamisnotkun. Eins og við á um alla ópíóíða getur langvarandi notkun búprenorfíns valdið því að líkamleg ávanabinding þróist. Þegar slíkt gerist, eru fráhvarfseinkenni (heilkenni fráhvarfs) yfirleitt væg, heQast eftir 2 daga og geta staðið í allt að 2 vikur. Meðal fráhvarfseinkenna eru uppnám, kvíði, taugaveiklun, svefnleysi, oíhreyfni (hyperkinesia), skjálfti og trufianir í meltingarfærum Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Norspan® má ekki nota samhliða MAO-hemlum eða hjá sjúklingum sem hafa fengið MAO-hemla á síðastliðnum tveimur vikum. Ahrif annarra virkra efna á lyfjahvörf búprenorfins: Búprenorfín umbrotnar aðallega með glúkúróneringu og í minna mæli (um 30%) fyrir tilstilli CYP3A4. Samhliða meðferð með CYP3A4 hemlum getur valdið hækkaðri plasmaþéttni og aukinni virkni búprenorfíns. Rannsókn á milliverkunum lyfsins við CYP3A4 hemilinn ketókónazól leiddi ekki í ljós neina aukningu á hámarks- (C^) eða heildaráhrifum (AUC) búprenorfíns að meðaltali sem skipti klínísku máli eftir að Norspan® hafði verið gefið með ketókónazóli samanborið við Norspan® eitt sér. Milliverkun milli búprenorfíns og CYP3A4 ensímörva hefur ekki verið rannsökuð. Samhliða gjöf Norspan® og ensímörva (t.d. fenóbarbítals, karbamazepíns, fenýtóíns og rífampicíns) getur leitt til aukinnar úthreinsunar sem getur valdið minni virkni. Minnkað blóðstreymi til lifrar af völdum sumra svæfingarlyfja (t.d halótans) og annarra lyfja getur valdið því að það hægir á brotthvarfi búprenorfíns í liftir Milliverkanir lyfjahvarfa: Fara á varlega í að nota Norspan® með:Benzódíazepínum.Séu þessi lyf gefin saman, getur það magnað miðlæga öndunarbælingu með hættu á dauða. öðrum lyfjum sem bæla miðtaugakerfi. Öðrum ópíóíðafleiðum (verkjalyfjum og hóstastillandi lyfjum sem innihalda t.d. morfín, dextróprópoxýfen, kódein, dextrómetorfan eða noskapín). Tilteknum þunglyndislyQum, róandi H 1-viðtakablokkum, áfengi, kvíðastillandi lyfjum, sefandi lyfjum, klónidíni og skyldum efnum. Slíkar samsetningar auka bælingarvirkni á miðtaugakerfi. Meðganga og brjóstagjöf Meöganga: Ekki liggja fyrir neinar rannsóknamiðurstöður um notkun Norspan® á meðgöngu. í rannsóknum á dýrum hefur verið sýnt fram á eituráhrif á æxlun. Hugsanleg áhætta fyrir menn er ekki þekkt. í lok meðgöngu geta stórir skammtar af búprenorfíni komið af stað öndunarbælingu hjá nýburanum, jafnvel eftir lyQagjöf í stuttan tíma. Langtíma gjöf búprenorfíns á síðustu þremur mánuðum meðgöngu getur valdið fráhvarfsheilkenni hjá nýburanum. Því er Norspan® ekki ætlað til notkunar á meðgöngu og hjá konum á bameignaraldri sem em ekki að nota ömgga getnaðarvöm. Brjóstagjöf: Upplýsingar um útskilnað í brjóstamjólk liggja ekki fyrir. Því á að forðast notkun Norspan® meðan á brjóstagjöf stendur. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Norspan® hefur mikil áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Jafnvel þegar það er notað samkvæmt leiðbeiningum getur Norspan® haft það mikil áhrif á viðbrögð sjúklings að það valdi skerðingu á umferðaröryggi og hæfni til að stjóma vélbúnaði. Þetta á einkum við í upphafi meðferðar og í tengslum við önnur efni með miðlæga verkun, að meðtöldu áfengi, róandi lyQum, slævandi lyQum og svefnlyfjum. Læknirinn á að leiðbeina sjúklingum einstaklingsbundið. Ekki er þörf á almennum takmörkunum í þeim tilvikum sem jafn skammtur er notaður. Sjúklingar sem þetta á við um, svo sem í upphafi meðferðar eða þegar verið er að auka skammt, eiga ekki að aka eða nota vélar og það á heldur ekki að gera í 24 klukkustundir hið minnsta eftir að plásturinn hefur verið tekinn af. Aukaverkanir: Alvarlegar aukaverkanir sem geta tengst Norspan® meðferð við klíníska notkun eru svipaðar þeim sem sést hafa við meðferð með öðrum ópíóíð verkjalyfjum, að meðtalinni öndunarbælingu (einkum við notkun með öðrum lyfjum sem bæla miðtaugakerfi) og lágþrýstingi. Ónæmiskerfi: Sialdgœíar: Ofnæmi. Koma örsialdan fvrir: Bráðaofnæmisviðbrögð. Efnaskipti og næring: Algengar: Lystarleysi. Sialdpæfar: Vessaþurrð. Geórœn vandamál: Algengar: Rugl, þunglyndi, svefnleysi, taugaveiklun. Sialdgæfar: Svefntruflanir, eirðarleysi, uppnám, sjálfshvarf(depersonalistation), óeðlileg vellíðan, óstöðugt, kvíði, ofskynjanir, martraðir. Mjög sjaldgæfar: Geðrof, minnkuð kynlöngun. Koma örsialdan fvrir: Lyfjaávanabinding, skapsveiflur. Taugakerfi: Miög algengar: Höfuðverkur, sundl, svefndrungi. Algengar: Náladofi. Sjaldgæfar: Slæving, bragðtrufiun (dysgeusia), tormæli (dysarthria), snertiskynsminnkun, minnisskerðing, mígreni, aðsvif, skjálfti, óeðlileg samhæfing, athyglisbrestur. Mjög sialdgæfar: Jafnvægistruflun, talörðugleikar. Koma örsjaldan fvrir: Ósjálfráðir vöðvasamdrættir. Augu: Sialdgæfar: Augnþurrkur, þokusýn. Miög sialdgæfar: Sjóntruflun, augnlokabjúgur, sjáaldursþrenging. Eyru og völundarhús: Sialdgæfar: Suð fyrir eyrum, svimi. Koma örsialdan fvrir: Eymaverkur. Hjarta: Sialdgæfar: Hjartaöng, hjartsláttarónot, hraður hjartsláttur. Æóar: Algengar: Æðavíkkun. Sialdgæfar: Lágþrýstingur, blóðrásarbilun, háþrýstingur, kinnroði. Öndunarfœri, brjósthol og miömœti: Algengar: Andnauð. Sjaldgæfar: Versnandi astmi, hósti, súrefnisskortur í vefjum. Nefslímubólga, soghljóð við öndun, hiksti. Miög sialdoæfar. Öndunarbæling, Öndunarbilun. Meltingarfœri: Miög algengar: Hægðatregða, Munnþurrkur, ógleði, uppköst. Algengar: Kviðverkir, niðurgangur, meltingartruflanir. Sjaldgæfar: Uppþemba. Mjög sjaldgæfar: Sarpbólga (diverticulitis), kyngingartregða, gamastífla. Lifuroggall: Miög sialdgæfar: Gallsteinar. Húö og undirhúö: Miög algengar: Kláði, hömndsroði. Algengar: Útbrot, svitamyndun, útþotasótt (exanthema) Sialdgæfar: Húðþurrkur, andlitsbjúgur, ofsakláði. Koma örsialdan fvrir. Graftarbólur, vessablöðmr. Stoökerfi ogstoðvefur: Sjaldgæfar: Sinadráttur, vöðvaþrautir, vöðvaslappleiki, vöðvakrampar. Nýru ogþvagfœri: Sjaldgæfar: Þvagteppa, þvaglátstmflanir. Æxlunarfœri og brjóst: Mjög sjaldgæfar: Stinningarörðugleikar, skert kyngeta. Almennar aukaverkanir og ástand tengt ikomuleió: Mjög algengar: Kláði á álímingarstað, viðbrögð á álímingarstað. Algengar: Þreyta, þróttleysi, verkur, útlimabjúgur, roði á álímingarstað, útbrot á álímingarstað, verkur fyrir brjósti. Sjaldgæfar: Lúi, inflúensulík veikindi, hiti, kuldahrollur, vanlíöan, bjúgur, fráhvarfsheilkenni. Mjög sjaldgæfar: Bólga á álímingarstað (stundum komu fyrir síðkomin, standbundin ofnæmisviðbrögð með greinilegum merkjum um bólgu. í slíkum tilvikum á að hætta meðferð með Norspan®). Rannsóknarniöurstöður: Sjaldgæfar; Hækkaður alanín amínótransferasi, þyngdartap. Averkar og eitranir: Sialdgæfar: Áverkar fyrir slysni, fall. Ekki er mikil hætta á líkamlegri ávanabindingu með búprenorfíni. Eftir að hætt er að nota Norspan® em fráhvarfseinkenni ólíkleg. Það kann að vera vegna mjög hægrar klofnunar búprenorfíns frá ópíóíðviðtökunum og hægfara minnkunar búprenofrínþéttni í plasma (venjulega á 30 klukkustundna tímabili eftir að síðasti plástur er tekinn a0- Þó er ekki hægt, eftir langvarandi notkun Norspan®, að útiloka algjörlega fráhvarfseinkenni svipuð þeim sem koma fram við fráhvarf ópíóíða. Þessi einkenni em uppnám, kvíði, taugaveiklun, svefnleysi, ofhreyfni, skjálfti og tmflanir í meltingarvegi. Ofskömmtun: Einkenni: Búast má við einkennum sem svipar til einkenna annarra verkjalyfja sem verka á miðtaugakerfi. Meðal þeirra eru öndunarbæling, slæving, drungi, ógleði, uppköst, blóðrásarbilun og greinileg sjáaldursþrenging. Meöferö: Takið alla plástra af húð sjúklings. Opnið öndunarveg og haldið honum opnum, veitið öndunarhjálp eða -stýringu eins og þurfa þykir og viðhaldið hæfilegum líkamshita og vökvajafnvægi. Nota á súrefni, vökvagjöf í bláæð, æðaþrengjandi lyf og aðrar stuðningsaðgerðir eftir þörfum. Sértækt ópíóíð mótlyf svo sem naloxón getur upphafið áhrif búprenorfíns. Naloxónskammturinn getur verið á bilinu 5 til 12 mg í bláæð. Vcrið getur að naloxón fari ekki að verka fyrr en eftir 30 mínútur eða síðar. Mikilvægara er að viðhalda nægri öndun en að meðhöndla með naloxóni. Afgreiðslutilhögun og greiðsluþátttaka: R, X, E. Pakkningar og hámarkssmásöluverð 1. desember 2011: Norspan® forðaplástur 5 mikrog/klst.: 4 stk. kr. 5223, Norspan® 10 mikrog/klst.: 4 stk. kr. 8400, Norspan® 20 mikrog/klst.: 4 stk. kr. 15174. Markaðsleyfishafi: Norpharma a/s, Slotsmarken 15, 2970 Horsholm, Danmörk. Dagsctning endurskoðunar textans: 12 febrúar 2009. Heimildir: Samantekt á eiginleikum lyfs (SPC) febrúar 2009. Sérlyfjaskrártexta í heild sinni má nálgast hjá umboðsaðila á íslandi, Icepharma hf. og á www.serlvfjaskra.is 60 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.