Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 70

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 70
Ritstjórn er sífellt á höttunum eftir því að halda Læknablaðinu lifandi og láta það ekki festast í farinu. Liður í því er að hleypa að nýjum og ferskum pennum, og fá fleiri raddir kolleganna til að hljóma. í þessu skyni hefur Læknablaðið kallað eftir pistlum frá formönnum hinna ýmsu sérgreina- félaga og undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur þar sem þeir reifi það sem efst er á baugi í þeirra félagi og meðal félagsmanna. Frá félagi íslenskra húðlækna Gísli Ingvarsson formaður Félags íslenskra húðlækna gingvarsson@mac.com Félag íslenskra húðlækna var stofnað 1968 og munu stofnfélagar hafa verið þrír eða fjórir. í dag eru félagar 19 og nokkrir í sérfræðinámi erlendis og áhugi fyrir húð- sjúkdómum fer vaxandi í samfélaginu. Þó að húðsjúkdómalæknar starfi aðallega sjálfstætt þá eigum við aðgang fyrir sjúk- linga á húð- og kynsjúkdómadeild Land- spítalans og erum stolt af því að geta vísað til hennar þegar þörf krefur. Læknar sem þar starfa mynda hinn harða kjarna sem drífur fagið áfram með okkur sem störfum alfarið utan stofnunarinnar. Samtíminn leggur okkur sífellt til spennandi verk- efni og þar sem húðin tjáir ónæmiskerfið af miklu listfengi, ber fyrir augu okkar vandamál sem tengjast sjálfsofnæmis- sjúkdómum í miklu úrvali. Psoríasis er þar að auki algengur og skarast við aðrar sérgreinar vegna umfangs og langvinnrar bólguvirkni. Því höfum við byrjað að þreifa fyrir okkur með nánara faglegt sam- starf við gigtsjúkdómalækna, hjartalækna og heilsugæslulækna. Það verkefni verður í forgangi næsta árið að minnsta kosti. Sú aðkoma sem stjórn félagsins hefur haft reynslu af lofar góðu. En það eru aðrar kröfur sem við verðum að taka tillit til en þær faglegu. Rekstrarmálin kvelja okkur. Annars vegar opinber þjónusta sem nýtur viðurkenningar ráðuneytis og ráðandi heilsuhagfræðinga og hins vegar óopinber þjónusta og sem er litin hornauga af ráðandi stjórnvöldum á þeim síðustu 20 árum sem mig rekur minni til. Munurinn á þessum tveimur greinum þjónustunnar er athyglisverður vegna þess að opinberi reksturinn krefst mikillar yfir- byggingar og lýtur beinum tilskipunum úr stjórnkerfinu en sjálfstæði reksturinn er rekinn með nær engri yfirbyggingu og af veitendum þjónustunnar, þannig að tilskipanir koma óbeint í formi almennra laga og frá notendum. Notendastýrð þjón- usta lækna þróaðist á löngum tíma sem aukavinna fyrir illa launaða sérfræðinga á sjúkrahúsum yfir í að verða fullt starf margra sérfræðinga utan sjúkrastofn- ana. Beinhörð markaðslögmál eru þau rekstrarskilyrði sem sjálfstætt starfandi læknar verða að takast á við. Það eru bara sjúklingarnir sem koma sem borga fyrir vinnuna þó flestir geri það með því að vera opinberlega sjúkratryggðir. Því fleiri sem leita til sjálfstætt starfandi lækna, því betur borgar reksturinn sig og opinber útgjöld vaxa í því hlutfalli. Þessi einfalda jafna gerir rekstur sjálfstætt starfandi sérfræðinga óvinsælan á háum stöðum. Því miður hefur ekki tekist að mynda ástar-haturssamband á milli ráðuneytis og þjónustunnar úti í bæ eins og hefur greini- lega tekist á milli ráðuneytis og sjúkra- húsanna. Þess vegna hefur ekki náðst að semja. í þessu ástandi sjá báðir aðilar fyrir sér sóknarfæri. Sjúkratryggingar geta lækkað útgjöld sín og sjálfstætt starfandi læknar geta hækkað komugjöldin þar sem enginn samningur bannar slíkt. í þjóð- félagi frjálsrar verðlagningar er samráð ólöglegt og því geta læknar hækkað eins og þeim sýnist hæfa. Tilvísunarskylda er af yfirvöldum talin koma mjög til greina. Leið tilvísunarskyldu er ekki fær nema auka verulega endurgreiðsluhlut- fallið svo starfsemin standi undir föstum gjöldum, símenntun, afleysingarþjónustu og kostnaði við veikindi sérfræðings. Það gerir hún fráleitt í dag. Þar sem potturinn er takmarkaður yrði að gera samning við útvalda lækna og þar með myndast langir biðlistar enda er tilvísunarskylda ekki jafn þjónustumiðuð við sjúklinga og notendastýringin verður hjá heilsugæsl- unni. Það mun síðan opna fyrir starfsemi án þátttöku sjúkratrygginga. Vandamálið sem skapast verður hvað gera á við þá sem falla utangarðs. I þeim hópi geta verið læknar ekkert síður en sjúklingar. Við getum uppgötvað alveg nýja vídd í sam- félagsþjónustunni þar sem læknar geta ekki lengur þjónað sem garantistar fyrir velferðarkerfið einsog þeir hafa samvisku- samlega gert hingað til. Árshátíð LR Broadway - laugardaginn 21. janúar Eiríkur Jónsson veislustjóri Jóhannes Kristjánsson eftirherma Hljómsveitin íslands eina von 70 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.