Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 39
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Hugleiðing heimilislæknis um áramót
Salome Ásta
Arnardóttir
er heimilislaeknir á
heilsugæslustöðinni í
Lágmúla í Reykjavík
Salome@hglagmuli. is
í upphafi árs er við hæfi að viðra vænting-
ar sínar og vonir og dusta af þeim gömlu
rykið og gá hvort þær falli að tíðarand-
anum. Sumt fólk nýtir sér þessi tímamót
til að endurnýja áramótaheitin frá í fyrra
gagnvart líkama og heilsu og fjölmennir
af skyldurækni í líkamsræktarstöðvarnar
til aflausnar synda sinna og tyftar holdið.
Aflátsbréfin eru í mynd meðlimsskírteina
og liggja oft ónotuð. í samræmi við heims-
sýn okkar um himin og helvíti hefur
okkur tekist að leiða almenningi fyrir
sjónir að sjúkdómar og heilsubrestir séu
refsing fyrir syndsamlegt líferni. Við boð-
um að með líferni sem lágmarkar áhættu-
þætti sjúkdóma fleytum við lífinu í átt að
ódauðleikanum. En er þetta sanngjarn og
sannur boðskapur?
Iona Heath, formaður breska heimilis-
læknafélagsins hélt ræðu á degi Williams
Harvey í október 2011.' Þar gerði hún
meðal annars að umtalsefni áhrif atburða
og ævisögu á sjúkdóma einstaklinga, það
sem Linn Getz hefur verið óþreytandi
við að miðla okkur undanfarin ár. Allir
læknar hafa reynslu af því hvernig lífið fer
með fólk. Ofbeldi, slys og langvinn streita
skaða líkama og sál. Áföll á barnsaldri, svo
sem líkamleg, tilfinningaleg- eða kynferð-
isleg áreitni/ofbeldi og fleira sem vekur þá
hugsun að lífið hafi svikið eða farið ranga
braut, auka hættu á alvarlegum veikindum
og dauða fyrr en ella. Fátækt, misskipting
auðs og kynþáttahatur hafa líka áhrif
á líkamlega heilsu fólks og einnig þeir
dómar heilbrigðiskerfisins sem sjúkdóms-
greiningar eru hafa einnig sín áhrif. Mikið
hlakka ég til þegar hægt verður að setja
inn í reiknilíkan áhættuþátta á www.
hjarta.is hjartasár fólks, niðurlægingu og
vonbrigði, þá væri kannske mark á tak-
andi. {ljósi tengsla áfalla og veikinda ætt-
um við að leggja af gamaldags viðhorf um
sekt og sjúkdóma.
Sérgrein heimilislækninga er eitt af
mörgu sem stórveldinu Bretlandi hefur
tekist að miðla heimsbyggðinni. Tveir
hópar lækna með sömu grunnmenntun
eru þar grundvöllur heilbrigðiskerfisins,
annar hópurinn tekur að sér þjónustu
við ákveðinn hóp fólks en hinn hópurinn
tekur að sér sérhæfða þjónustu við sjúk-
dómaflokka. Þessar tvær nálganir læknis-
þjónustu bæta hvor aðra upp og getur
hvorug án hinnar verið. Sérgreinalæknar
og háskólasamfélagið hafa byggt upp
stórkostlega þekkingu á sjúkdómum, til-
urð þeirra, flokkun og meðferð, meðan
heimilislæknar og þeirra fræðasamfélag
nýtur góðs af sambandi sínu við fólk yfir
langan tíma.
í vel starfandi heilsugæslu sjáum við
sjúkdóma ekki sem stöðugt fyrirbæri
heldur fylgjumst með fólki frá því áður
en sjúkdómurinn fær nafn og er varla
einkenni, kannski smá brot í sálinni í
lífsins ólgusjó. Og við sjáum líka hvernig
veikindi verða hluti af lífi fólks og sam-
félags, krefjast síns pláss og hafa áhrif á
sögu þeirra sem tengjast fjölskyldu- og
tilfinningaböndum. Við fáum jafnvel
stundum að fylgjast með samhengi milli
kynslóða. Heyrum af langömmu sem
leitaði gæfunnar á mölinni, sveitarómagi
með króga upp á arminn. Síðar hvernig
vonbrigði og vonleysi kenndi dóttur
hennar æðruleysi sem jaðrar við tómlæti
gagnvart lífinu. Við fylgjumst árum saman
með þessari lítillátu fjölskyldu, þar sem
fæstir hafa framfæri sitt af vinnu, lang-
ömmubörnin sem fá sjúkdómsgreiningar
nútímans og meðhöndlun við eirðarleysi
í skólanum, en foreldrarnir fá greiningar
á æðasjúkdómum, sem venjulega kallast
ellimörk, fyrir fertugt svo tekið sé dæmi úr
mínu „samlagi".
Ég var nefnilega svo lánsöm að taka
við samlagi. Hópi fólks sem var tengt
sínum lækni. Frá lækni sem hafði byggt
upp traust og tengsl við sinn hóp og var
að auki í samfélagi samstarfsfólks á sinni
heilsugæslu. Svona tengsl sem gera það
mögulegt að kynnast fólkinu sínu. Þegar
áföll og veikindin gera vart við sig geta
læknir og skjólstæðingur velt fyrir sér
ástæðum og þýðingu veikindanna með
tengingu í lífshlaup viðkomandi, auk
þess að koma á samstarfi um greiningu
og meðferð, gefið veikindum meiningu í
lífinu. Tengsl fólks við sinn heimilislækni
verður sumpart ekki metið til fjár, en þó
hefur verið reiknað út (þótt hagfræði eigi
ekki upp á pallborðið í augnablikinu á
íslandi) að heilbrigðiskerfi sem byggir á
heilsugæslu og heimilislækningum gefur
betri árangur og borgar sig fjárhagslega til
framtíðar.
Um áramót viðra ég því væntingar
mínar og vonir til framtíðar, og dusta
af þeim gömlu rykið, að hver einasti
íslendingur geti í framtíðinni sagt hver
heimilislæknirinn hans er.
Heimild
1. Heath I. Divided we fail. Royal College of
Physicians rcplondon.ac.uk/sites/default/files/
harveian-oration-2011-web-navigable.pdf - desember
2011.
Stjórn LÍ
Þorbjörn Jónsson
formaður
Valgerður Á. Rúnarsdóttir
varaformaður
Magnús Baldvinsson
gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir
ritari
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri Þór Ormarsson
Salome Ásta Arnardóttir
Steinn Jónsson
Þórey Steinarsdóttir
[ pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir
sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2012/98 39