Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 39
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Hugleiðing heimilislæknis um áramót Salome Ásta Arnardóttir er heimilislaeknir á heilsugæslustöðinni í Lágmúla í Reykjavík Salome@hglagmuli. is í upphafi árs er við hæfi að viðra vænting- ar sínar og vonir og dusta af þeim gömlu rykið og gá hvort þær falli að tíðarand- anum. Sumt fólk nýtir sér þessi tímamót til að endurnýja áramótaheitin frá í fyrra gagnvart líkama og heilsu og fjölmennir af skyldurækni í líkamsræktarstöðvarnar til aflausnar synda sinna og tyftar holdið. Aflátsbréfin eru í mynd meðlimsskírteina og liggja oft ónotuð. í samræmi við heims- sýn okkar um himin og helvíti hefur okkur tekist að leiða almenningi fyrir sjónir að sjúkdómar og heilsubrestir séu refsing fyrir syndsamlegt líferni. Við boð- um að með líferni sem lágmarkar áhættu- þætti sjúkdóma fleytum við lífinu í átt að ódauðleikanum. En er þetta sanngjarn og sannur boðskapur? Iona Heath, formaður breska heimilis- læknafélagsins hélt ræðu á degi Williams Harvey í október 2011.' Þar gerði hún meðal annars að umtalsefni áhrif atburða og ævisögu á sjúkdóma einstaklinga, það sem Linn Getz hefur verið óþreytandi við að miðla okkur undanfarin ár. Allir læknar hafa reynslu af því hvernig lífið fer með fólk. Ofbeldi, slys og langvinn streita skaða líkama og sál. Áföll á barnsaldri, svo sem líkamleg, tilfinningaleg- eða kynferð- isleg áreitni/ofbeldi og fleira sem vekur þá hugsun að lífið hafi svikið eða farið ranga braut, auka hættu á alvarlegum veikindum og dauða fyrr en ella. Fátækt, misskipting auðs og kynþáttahatur hafa líka áhrif á líkamlega heilsu fólks og einnig þeir dómar heilbrigðiskerfisins sem sjúkdóms- greiningar eru hafa einnig sín áhrif. Mikið hlakka ég til þegar hægt verður að setja inn í reiknilíkan áhættuþátta á www. hjarta.is hjartasár fólks, niðurlægingu og vonbrigði, þá væri kannske mark á tak- andi. {ljósi tengsla áfalla og veikinda ætt- um við að leggja af gamaldags viðhorf um sekt og sjúkdóma. Sérgrein heimilislækninga er eitt af mörgu sem stórveldinu Bretlandi hefur tekist að miðla heimsbyggðinni. Tveir hópar lækna með sömu grunnmenntun eru þar grundvöllur heilbrigðiskerfisins, annar hópurinn tekur að sér þjónustu við ákveðinn hóp fólks en hinn hópurinn tekur að sér sérhæfða þjónustu við sjúk- dómaflokka. Þessar tvær nálganir læknis- þjónustu bæta hvor aðra upp og getur hvorug án hinnar verið. Sérgreinalæknar og háskólasamfélagið hafa byggt upp stórkostlega þekkingu á sjúkdómum, til- urð þeirra, flokkun og meðferð, meðan heimilislæknar og þeirra fræðasamfélag nýtur góðs af sambandi sínu við fólk yfir langan tíma. í vel starfandi heilsugæslu sjáum við sjúkdóma ekki sem stöðugt fyrirbæri heldur fylgjumst með fólki frá því áður en sjúkdómurinn fær nafn og er varla einkenni, kannski smá brot í sálinni í lífsins ólgusjó. Og við sjáum líka hvernig veikindi verða hluti af lífi fólks og sam- félags, krefjast síns pláss og hafa áhrif á sögu þeirra sem tengjast fjölskyldu- og tilfinningaböndum. Við fáum jafnvel stundum að fylgjast með samhengi milli kynslóða. Heyrum af langömmu sem leitaði gæfunnar á mölinni, sveitarómagi með króga upp á arminn. Síðar hvernig vonbrigði og vonleysi kenndi dóttur hennar æðruleysi sem jaðrar við tómlæti gagnvart lífinu. Við fylgjumst árum saman með þessari lítillátu fjölskyldu, þar sem fæstir hafa framfæri sitt af vinnu, lang- ömmubörnin sem fá sjúkdómsgreiningar nútímans og meðhöndlun við eirðarleysi í skólanum, en foreldrarnir fá greiningar á æðasjúkdómum, sem venjulega kallast ellimörk, fyrir fertugt svo tekið sé dæmi úr mínu „samlagi". Ég var nefnilega svo lánsöm að taka við samlagi. Hópi fólks sem var tengt sínum lækni. Frá lækni sem hafði byggt upp traust og tengsl við sinn hóp og var að auki í samfélagi samstarfsfólks á sinni heilsugæslu. Svona tengsl sem gera það mögulegt að kynnast fólkinu sínu. Þegar áföll og veikindin gera vart við sig geta læknir og skjólstæðingur velt fyrir sér ástæðum og þýðingu veikindanna með tengingu í lífshlaup viðkomandi, auk þess að koma á samstarfi um greiningu og meðferð, gefið veikindum meiningu í lífinu. Tengsl fólks við sinn heimilislækni verður sumpart ekki metið til fjár, en þó hefur verið reiknað út (þótt hagfræði eigi ekki upp á pallborðið í augnablikinu á íslandi) að heilbrigðiskerfi sem byggir á heilsugæslu og heimilislækningum gefur betri árangur og borgar sig fjárhagslega til framtíðar. Um áramót viðra ég því væntingar mínar og vonir til framtíðar, og dusta af þeim gömlu rykið, að hver einasti íslendingur geti í framtíðinni sagt hver heimilislæknirinn hans er. Heimild 1. Heath I. Divided we fail. Royal College of Physicians rcplondon.ac.uk/sites/default/files/ harveian-oration-2011-web-navigable.pdf - desember 2011. Stjórn LÍ Þorbjörn Jónsson formaður Valgerður Á. Rúnarsdóttir varaformaður Magnús Baldvinsson gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Salome Ásta Arnardóttir Steinn Jónsson Þórey Steinarsdóttir [ pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. LÆKNAblaðið 2012/98 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.