Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 8
A fhverju vindmyllur?„Vindurinn er takmarkalaus auðlind og virkjun vindorku er því
sjálfbær og spennandi kostur til viðbótar við
íslenska raforkukerfið sem nú þegar vinnur
100% endurnýjanlega orku,“ segir Margrét
Arnardóttir, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun.
Margrét hefur umsjón með vindmylluverk-
efni Landsvirkjunar sem sett var á stofn
fyrir tveimur árum. Margét segir vindmyll-
urnar góðan orkukost við hlið þeirra sem við
eigum fyrir.
„Á mörgum stöðum á Íslandi er vindurinn
sterkur og stöðugur og því kjöraðstæður til
virkjunar vindorku. Vindmyllur vinna hreina
orku sem hægt er að nýta nánast allsstaðar í
heiminum. Danir voru frumkvöðlar í virkjun
vindorku til raforkuvinnslu og hafa þeir nýtt
hana vel um áratugaskeið. Danir eru með
mjög flotta orkustefnu og hafa smám saman
verið að skipta út olíu- og kolaorku fyrir
hreina orku. Þeir hafa einsett sér að nýta
eingöngu endurnýjanlega orkugjafa árið
2050,“ segir Margrét.
Nú er nokkuð augljós ávinningur af því að
fjölga vindmyllum erlendis þar sem kol og olía
eru aðalorkugjafarnir. Er einhver þörf fyrir
vindmyllur á Íslandi ?
„Innan orkugeirans er vindorka sú grein
þar sem þróunin er einna mest og hröðust.
Það er mikilvægt fyrir nútímalegt orku-
fyrirtæki eins og Landsvirkjun að þekkja til
þessa góða orkukosts, sem hefur fjölmarga
kosti. Spurn eftir raforku eykst sífellt og
framtíðin kann að bera í skauti sér tækifæri
til stóraukinnar orkusölu. Í því samhengi
er vindorka góð viðbót við aðra kosti sem
góð reynsla er af hér á landi, hún er um-
hverfisvænn kostur og með miklum tækni-
framförum verður hún sífellt hagkvæmari.
Í Bandaríkjunum hefur kostnaður á hverja
MW stund með vindorku lækkað um 56% á
síðustu 5 árum. Í miðríkjunum, þar sem að-
stæður eru um margt svipaðar því sem við
þekkjum hér á landi, er kostnaður við
hverja MW stund að meðaltali 37
dollarar sem er vel samkeppnis-
hæft við aðra orkukosti.“
En þurfum við á vindorku að
halda, með allt þetta vatn?
„Það getur verið mikill kost-
ur að nýta saman kosti ólíkra
orkuvinnsluaferða. Vatns-
aflið hefur þann frábæra
eiginleika fram yfir
flesta aðra endur-
nýjanlega orkukosti
að það er stýran-
legt. Hægt er að
minnka og auka
vatnsrennslið í
gegnum vatns-
aflsvirkjanir og
þannig minnka
eða auka raf-
orkuvinnsluna
eftir þörfum.
Þetta þýðir í
raun að hægt
er að geyma
orku í formi vatns í uppistöðulónunum þegar
vindurinn blæs og auka svo vatnsrennslið
þegar vindinn lægir. Samlegðaráhrif þessa
tveggja orkukosta er því veruleg.
Annar eiginleiki vindorkunnar er svo
hversu auðvelt er að setja vindmyllurnar upp
og byggja vindlundi í áföngum eftir því sem
þurfa þykir og markaðurinn krefst hverju
sinni. Vindmyllur henta því einkar vel fyrir
iðnað sem byggist upp í minni áföngum líkt
og gagnaver.“
Þannig að þær taka aldrei við af vatnsafls-
virkjunum?
„Nei, það er þetta samspil allra orku-
kostanna sem er svo mikilvægt og við
erum ótrúlega lánsöm hér á Íslandi að
hafa aðgang að þremur endurnýjanlegum
orkukostum sem allir hafa sína kosti. Þetta
samspil er einmitt til umfjöllunar á haust-
fundi Landsvirkjunar sem verður í Hörpu
næsta þriðjudag. Fundurinn er opinn öllum
og ég hvet fólk til að mæta og heyra um þær
spennandi áskoranir og tækifæri sem Ís-
lendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu
og raforkusölu.“
En er ekki sjónmengun af vindmyllum?
„Vindmyllur eru í eðli sínu stór mannvirki
og þær sjást. Það er hins vegar hvers og eins
að meta hvort sá sýnileiki felur í sér mengun
eða ekki. Sjálfri finnst mér þær gullfallegar,
vel hannaðar og verkfræðilega stórmerkileg-
ar. Hins vegar má benda á að þegar þær eru
búnar með líftíma sinn, eftir svona 20 til 30
ár, þá er lítið mál að fjarlægja þær og nánast
án umhverfisáhrifa.“
En hljóðmengun?
„Þær miklu tækniframfarir sem hafa orðið
ná til allra þátta í hönnun vindmylla, þ.m.t. til
hljóðstigs. Fyrir vikið eru nútíma vindmyllur
mjög hljóðlátar. Reyndar hafa mjög margir
þeirra sem hafa skoðað vindmyllurnar okkar
haft orð á því hversu hljóðlátar þær eru. Það
er mikið gleðiefni enda viljum við ná sem víð-
tækastri sátt um þennan orkukost.“
Svo er líka talað um að þær drepi svo mikið
af fuglum.
„Það virðist vera langlíf mýta að vindmyll-
ur séu skaðlegar fuglum, þótt fjölmargar
rannsóknir sýni að áhrif vindmylla á fuglalíf
séu hverfandi nú til dags. Það skiptir sannar-
lega miklu máli að hugað sé að þessum þætti
og tryggt að vindmyllur séu ekki settar upp á
farleiðum fugla og við staðarval sé tekið mið
af vönduðum fuglarannsóknum. Reyndar er
athyglisvert að samkvæmt nýjustu erlendu
rannsóknum sem ég hef séð er fugladauði
sem tengist samfélagi mannana fyrst og
fremst tengdur heimilisköttum, bifreiðum,
háhýsum og rafmagnslínum miklu frekar en
vindmyllum. Ný kanadísk rannsókn segir
t.d. að 0,003% af ónáttúrulegum fugladauða
megi rekja til vindmylla á meðan heimilis-
kettir eru ábyrgir fyrir tæplega 73%. Í þessu
samhengi má líka benda á að ýmis dýra-
verndarsamtök hafa lýst yfir stuðningi við
uppbyggingu vindorku og að kostir hennar
séu miklu fleiri og meiri en gallarnir.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Vindmyllur eru gullfallegar
Landsvirkjun lauk við að setja upp tvær vindmyllur við Búrfellsvirkjun í rannsóknarskyni í
desember árið 2012. Margrét Arnardóttir vélaverkfræðingur heldur utan um verkefnið og kannar
hvort það sé raunhæfur kostur að breyta íslenska rokinu í auðlind.
Norðan við Búrfell hefur Landsvirkjun nú reist tvær vindmyllur í rannsóknarskyni en náttúruleg vindgöng liggja um svæðið.
Turn vindmyllanna er 55 metra hár og hver spaði 22 metrar á lengd. Þegar spaðarnir eru í efstu stöðu er heildarhæð vindmyll-
anna 77 metrar.
Hver er
STArf:
Verkefnastjóri
vindorku hjá
Landsvirkjun.
MeNNTuN:
M.Sc. í vélaverk-
fræði og MBA nám
í viðskiptafræði
fyrri STörf:
Verkfræðingur
hjá ÍSAL, stjórn
kersmiðju álversins,
umsjón með
endurhönnun á
tæknibúnaði vegna
stækkunar.
MAki:
Hrannar Pétursson.
BörN:
4 samtals; Eva
Lena 17 ára, Máni
Örn 15 ára, Dagur
11 ára og Signý
Sóllilja 4 ára.
HvAðAN:
Úr Fossvogi.
ÁHugAMÁL:
Góður matur,
gæðastundir með
fjölskyldu og vinum
og svo elska ég
vinnuna mína.
?
Margrét
Arnardóttir
Hrein orka á heims-
vísu í lok árs 2013:
vatnsorka 990 gW
vindorka 318 gW
Jarðvarmi 12 gW
Sólarorka 137 gW
Til samanburðar þá
er allt raforkukerfi Ís-
lendinga 2,7 GW.
8 fréttaviðtal Helgin 21.-23. nóvember 2014
www.icewear.is
ÞINGHOLTSSTRÆTI, REYKJAVÍK - HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI
SKINNVÖRUR
STÓRLÆKKAÐ VERÐ TIL JÓLA!
EMBLA Sjal úr kanínuskinni
kr. 17.200
FRIGG Kanínu- og
þvottabjarnarsjal
kr. 26.600
16.500Tilboð10.740Tilboð
Miðaverð: kr. 3500 fullorðnir · kr. 1500 börn
forsala Miða: harpa.is · Miðasala hörpu · Midi.is
Styrkt af
Stórsveitin heldur sitt árlega jólaswing með góðum gestum.
Skemmtilegir og öðruvísi jólatónleikar fyrir allar kynslóðir.
RAGGI BJARNA · ANDREA GYLFA
UNA STEF · ERLA STEFÁNSDÓTTIR
STJÓRNANDI: STEFÁN S. STEFÁNSSoN
30. NÓVEMBER kL. 17:00
silfurberG hörpu
stórsveit
reykjavíkur
áSamt góðum geStum