Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 54
54 bækur Helgin 21.-23. nóvember 2014
A ðspurður segir Sverrir Norland að bókin fjalli um þrjá forvitna og kærleiksríka stráka, kvíða-snillingana, og fylgi þeim frá því að þeir eru litlir,
óþroskaðir pjakkar í leit að svörum við stóru spurningunum,
ævintýrum og stuði, og fram á þrítugsaldurinn þar sem þeir
eru einmana og ráðvillt hormónabúnt á höttunum eftir lífs-
fyllingu og ástleitnum stúlkum. Rauði þráðurinn út í gegn er
þó fyrst og síðast vinátta þeirra þriggja og leitin að ástinni
og samastað í tilverunni. Sverrir segir að líklega sé hann
þó að skrifa um þessi eilífu, langlífu þemu, frekar en þetta
dularfulla, ofvirka, athyglislausa skrímsli sem við köllum
samtímann. „Þó svo að það skrímsli krafsi reyndar aðeins í
bakdyrnar, með skítugum krumlunum.“
Hver er þessi kvíðasnillingur?
Orðið kvíðasnillingur er alfarið smíðað af Sverri og segir
hann að það að vera kvíðasnillingur sé bara að vera mann-
eskja. „Mér sýnist að við séum öll algjörir snillingar í að
magna upp fyrir okkur vandamál, stressa okkur á smáatrið-
um, festast í einhverri stressandi þankaflækju. Galdurinn
er hins vegar, held ég barasta, að ramba á sína grænu grein
í lífinu. Þurfa ekki að þykjast eða uppfylla kröfur sem stríða
gegn sannfæringu manns.“
Ætlaði að verða kynæsandi fótboltakappi
Gagnrýnendur eru einkar hrifnir af þeim stíl og textaflæði
sem einkenna skrif Sverris og ljóst er að hann á eftir að láta
til sín taka í framtíðinni. En ætlaði Sverrir alltaf að verða rit-
höfundur? „Satt best að segja ætlaði ég mér eiginlega aldrei
að verða neitt sérstakt, og er hálfvegis enn að vona að ég
komist hjá því. Þegar ég var pinkupons langaði mig að verða
bílstjóri, riddari á hvítum hesti eða einn af Turtles-körlun-
um, helst Donatello, þessi fjólublái. Svo langaði mig að verða
kynæsandi atvinnumaður í fótbolta.“ Heimur Sverris stækk-
aði hins vegar mikið þegar hann meiddist illa á hné, aðeins
12 ára gamall, og tók að skyggnast í fleiri áttir. „Í kjölfar
Bækur FyrstA Bók sverris NorlANd heitir kvíðAsNilliNgArNir
Við erum öll
kvíðasnillingar
Sverrir Norland er
ungur rithöfundur
sem gaf nýverið út
sína fyrstu bók sem
ber heitið Kvíðasnill-
ingarnir. Bókin er hluti
af stærri söguheimi
sem Sverrir hefur verið
að skapa undanfarin ár
og í Kvíðasnillingunum
fá lesendur að kynn-
ast nokkrum af helstu
persónunum.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
3 Íslensk skáldverk
1.−16. nóv. 2014
2
1.−16. nóv. 2014
Íslensk skáldverk
1
1.−16. nóv. 2014
Metsölulisti
Eymundsson
Heildarlistinn. vika 46
1.
MÓTTÖKURNAR
TAKK
FYRIR
Íslensk skáldverk