Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 66
66 heilsa Helgin 21-23. nóvember 2014
F yrst þegar ég byrjaði að stunda jóga leit ég aðeins á það sem líkamsrækt. Andlega vellíðanin
kom síðan í framhaldinu, ég lærði að
slaka á og varð bæði afslappaðri og um-
burðarlyndari,“ segir Guðrún Reynis-
dóttir jógakennari. Guðrún var að senda
frá sér Jógahandbókina sem hentar bæði
byrjendum og lengra komnum, og leggur
hún áherslu á að jóga sé fyrir alla.
Guðrún starfar í banka og var fyrst
og fremst að leita sér að góðri líkams-
rækt þegar hún byrjaði í jóga fyrir um
fjórum árum. Hún heillaðist fljótt og fór
brátt að fara sex sinnum í viku í jógatíma
sem var gott mótvægi við streitufullan
vinnustaðinn. „Ég var alltaf að reyna að
læra meira og meira og ákvað að skrá
mig í jógakennaranám til að ég gæti líka
hjálpað öðrum að ná þessu jafnvægi fyrir
líkama og sál.“ Guðrún hefur farið í tíma
hjá um 20 jógakennurum og segir hver
hafa sína nálgun og hún því alltaf að læra
eitthvað nýtt.
Rúmt ár er síðan Guðrún útskrifaðist
frá Jógaskóla Kristbjargar og hefur síðan
starfað sem jógakennari í Reebok Fitness
í Holtagörðum. „Við erum þar komin af
stað með nýja tíma sem kallast „Teygjur“
en er í raun jóga í dulargervi. Þar reynum
við að höfða líka til karlmanna því þeir
virðast vera feimnari við jógatímana en
konur. Það er líka nokkuð um að fólk sem
æfir Crossfit eða hlaup telji sér trú um
að jóga henti þeim ekki en ég fullyrði að
jóga gagnast öllum.“ Guðrún bendir á að
jóga sé líka ódýr líkamsrækt því það nægi
mörgum að fara á grunn-
námskeið og stunda svo
jóga heima, á ferðalögum
eða í sumarbústaðnum.
„Fólk þarf þá bara að kaupa
sér jógadýnu.“
Í gegnum tíðina hefur
Guðrún alltaf skráð hjá
sér nýjan lærdóm um jóga,
flokkað hann skipulega niður
og á endanum sá hún að þarna
var komið efni í heila bók. Í
Jógahandbókinni eru sýndar
tæplega 100 jógastöður, þar
er fróðleikur um hverja stöðu,
kosti hennar og varnarorð. Hér
fylgja með leiðbeiningar til að fara
í jógastöðuna Krákuna sem Guðrún
segir að sé sín uppáhaldsstaða. „Ég
tek Krákuna næstum í öllum tímum.
Hún er grunnurinn að handstöðun-
um. Handstöðurnar eru erfiðastar
en flestum finnst þær mest spenn-
andi. Ég byrja gjarnan á Kráku-
unganum sem krefst minni hand-
styrks og fer svo yfir í Krákuna.
Við nemendur mína segi ég að
þeir skuli æfa Krákuna og fara
svo yfir í flóknari handstöður.“
Krákan
Baksana
Krákur voru taldar vera boðberar guðanna og
tákna þær samskipti og tryggð. Krákan leyfir
þér að komast yfir takmörk þín og takast á loft.
Þetta er fyrst og fremst áskorun hugans.
Leiðbeiningar:
1. Stattu á miðri dýnunni í jógastöðunni
Fjallinu.
2. Komdu niður á hækjur, ýtti hnjám vel í
sundur og settu lófa í gólf á milli þeirra.
Hafðu axlabreidd á milli handa og staðsettu
úlnliði, beint undir öxlum. Dreifðu vel úr
fingrum og leyfðu löngutöng að vísa beint
fram. Haltu onlbogabótum í línu við þumla.
3. Komdu upp á táberg og tylltu miðjum
sköflungnum á miðja upphandleggi. Innan-
verð læri snerta síðu.
4. Hallaðu þér fram þar til þú kemur alveg
upp á tær. Lyftið öðrum fæti frá gólfi og þá
hinum.
5. Haltu lærvöðvum virkum með því að þrýsta
fótunum saman og ýta hnjánum fram á við.
Dreifðu vel úr tánum í stöðunni. Horfðu
beint niður. Þrýstu lófum í gólf og krullaðu
fingur örlítið saman til að taka álag af
úlnliðum.
Krákuunginn:
Hafðu framhandleggi á gólfi í stað lófa. Þessi
æfing krefst minni styrks í handleggjum en
meiri styrks í kjarnavöðvum.
Ráðleggingar:
Mikilvægt er að halda fótum alveg saman þegar
farið er í stöðuna en það eykur stöðugleika og
gerir hana auðveldari.
Þeir sem eiga í erfiðleikum með að lyfta fótum
frá gólfi geta prófað að standa á kubbi. Hafðu
púða og teppi í kring um þig ef þú óttast að
detta.
Bætir: einbeitingu, jafnvægi, meltingu,
samhæfingu, sjálfstraust.
Örvar: líffæri í kviðarholi.
Gott gegn: brjóstsviða, vindgangi.
Styrkir: axlir, handleggi, innanverð læri,
kvið, mjóbak, úlnliði.
Teygir: efra bak, nára.
Varúð: hár blóðþrýstingur eða hjarta-
vandamál, meðganga, meiðsli
í öxlum, mjóbaki eða úlnliðum,
sinaskeiðarbólga.
Kennir jóga
í dulargervi
MÓTTÖKURNAR
TAKK FYRIR
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
1Barnabækur
1.−16. nóv. 2014
2 Barnabækur
1.−16. nóv. 2014
Train Smarter with
the Kinetic inRide
and inRide App.
Learn more about power training at: kurtkinetic.com/inride
KRÍA HJÓL - GRANDAGARÐUR 7 - 101 REYKJAVÍK s.5349164 INFO@KRIAHJOL.IS
KINETIC ROAD MACHINE
+ inRIDE WATT METER
Smart-phone* based
costing hundreds more.
Kinetic2015_inRide_100x100.indd 2 10/22/14 1:10 PM
* Works with Apple™ iOS devices with Bluetooth Smart®
Guðrún Reynis-
dóttir byrjaði
að stunda jóga
sem líkamsrækt
en fann brátt
hversu mikil
andlegu áhrifin
voru líka. Hún
skráði sig í jóga-
kennaranám og
var að senda frá
sér Jógahand-
bókina þar sem
sýndar eru um
100 jógastöður.
Guðrún segir
Krákuna vera
sína uppáhalds-
jógastöðu
og sýnir hér
hvernig skal
bera sig að.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Guðrún Reynisdóttir jógakennari
var að senda frá sér Jógahandbók-
ina. Hér er hún
í stöðunni
Kýrhaus-
inn.
Þeir sem treysta sér
ekki í Krákuna geta
byrjað á Krákuunganum
og byggt upp styrk til
að fara í Krákuna.
Guðrún sýnir hér
Krákuna sem er hennar
uppáhalds jógastaða og
grunnurinn að öðrum
handstöðum.