Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 30
F ólk hefur verið feimið við klassíkina hér á Íslandi í mörg ár. Það er vegna þess
að það þekkir hana ekki. Heldur
að maður þurfi að vera í einhverj-
um stellingum til þess að hlusta, en
þetta er allt saman list. Alveg eins
og popp og djass. Þetta er allt partur
af kúltúrnum okkar,“ segir Kristján.
„En klassíkin er spurning um aga.
Kannski hefur fólk verið hrætt við
hann.
Óperuhefð á Íslandi er bara um 60
til 70 ára gömul, á meðan hún hefur
verið í nokkur hundruð ár annars-
staðar. Við erum ung óperuþjóð og
ekki nema rúm 30 ár síðan við fór-
um að kenna söng af einhverju viti,“
segir Kristján þegar hann er spurð-
ur af hverju Íslendingar séu með
þessa feimni gagnvart óperutónlist.
„Við erum bara enn í barnsskónum.
Íslendingar elska samt sína klassík,
sem eru sönglögin. Þau eru falleg
og klassísk en við syngjum kannski
ekki Hamraborgina að eilífu. Það
hefur líka verið erfitt fyrir ungtón-
skáld að komast í hóp með Sigvalda
Kaldalóns og fleirum, vegna þess
að fólk vill yfirleitt heyra það sama,“
segir Kristján. „Þetta er þó vonandi
að breytast.“
Á tónleikum Kristjáns í Hörpu
kemur fram bassabaritóninn Samu-
el Ramey, en hann hefur verið í
fremstu röð óperusöngvara um all-
an heim um árabil. Sama hvaða hús
eru nefnd, þar hefur Ramey slegið
í gegn.
„Það sem mig langar að gera er
að vera svolítið fræðandi og upp-
lýsandi með mínum tónleikum, og í
guðanna bænum verið ekki hrædd.
Við erum að fá einn besta bassabarí-
tón veraldar til þess að koma og vera
með okkur. Hann er í heimssögunni
fyrir sinn söng,“ segir Kristján.
„Þetta er fyrst og fremst metnaður
okkar að fá svona mann til landsins.
Bassabaritónar verða aldrei sömu
súperstjörnur og tenórar. Sagan er
bara þannig en á sínu sviði hefur
hann verið númer eitt í einhver 30
ár. Mig langar að gera Íslendingum
kleift að hlusta á svona listamenn.“
Mætingin á Pavarotti var
skandall
Kristján segir að ekki sé mikil vit-
und um þessar stórstjörnur óperu-
heimsins á Íslandi en það sé nú von-
andi að breytast.
„Ég reyndi í fyrra að fá stór-
stjörnu til landsins og byrjaði að
auglýsa en sá mjög fljótt að þetta var
ekki að gera sig, sem varð til þess að
ég varð að hætta við,“ segir Krist-
ján. „Ég hóaði í Kristin vin minn
Sigmundsson, Dísellu Lárusdóttur
og Þóru Einarsdóttur og við sung-
um fyrir fullu húsi. Ég ætla samt
ekki að gefast upp við þetta. Það er
fræg saga þegar Luciano Pavarotti
kom hingað fyrir einhverjum 35
árum síðan og það náðist ekki að
selja upp í Laugardalshöll. Það var
alger skandall. Það var reynt síðar
að fá hann aftur og hann sagðist
ekki ætla að stíga fæti hingað aftur,
svo þetta er ekkert nýtt á Íslandi,“
segir Kristján. „Hann var samt sem
áður númer 1 í heiminum, en Íslend-
ingar kenndu sláturtíðinni um. Mig
langar að fólk sjái Samuel Ramey,
því hann er í efsta klassa. Í klassík-
inni er þetta þannig að ef þú verður
einu sinni súperstjarna, þá ertu það
alltaf.“
Kristján hefur sungið með Ramey
nokkrum sinnum. Þeim er vel til
vina og segir hann að það hafi skipt
mestu máli þegar hann hóf viðræð-
urnar við hann um að koma til Ís-
lands. „Svona tekur langan tíma og
er stórmál. Hann syngur ekki hvar
sem er. Hann söng síðast í Turan-
dot í Metropolitan óperunni í New
York og er farinn að kenna meira
í Kansas þaðan sem hann er, segir
Kristján. Hann er vandlátur á verk-
efnin því hann er um sjötugt. Sem
er enginn aldur fyrir bassa.
Við ætlum að hafa prógrammið
klassískt, með léttklassísku ívafi
fyrir alla að njóta. Við verðum með
stóran kór og hljómsveit undir
stjórn Garðars Cortes, en ekkert
rafmagn og engin læti. Bara klass-
íkin með stóru K-i,“ segir Kristján.
„Tónleikahald er erfitt á Íslandi,
fyrir alla,“ segir Kristján. „Það er
margt í boði og við sjáum það að þeir
sem hafa gengið að miklum fjölda á
hverju ári í 20 ár eiga líka erfitt. Við
erum með einstakan listamann með
okkur. Við verðum líka með unga
sópransöngkonu með okkur sem
ég tel þá bestu sem ég hef heyrt í
langan tíma á Íslandi. Það er hún
Herdís Anna Jónsdóttir sem starfar
í Þýskalandi og ég tel hana okkar
björtustu von í óperuheiminum. Við
ætlum að blanda saman erlendri og
íslenskri klassík. Við verðum með
jóla- og áramótalög og mig langar
að flytja Betlehemstjörnu Ásgeirs
Jónssonar sem var minn fyrsti kenn-
ari. Hafa þetta svolítið hátíðlegt og
umfram allt skemmtilegt.“
Ég bít ekki
Kristján flutti heim til Íslands fyrir
5 árum og hefur alltaf verið áber-
andi á sínu sviði. Heldur hann að
hræðsla Íslendinga við óperutónlist
sé hræðsla við hann að einhverju
leyti?
„Það gæti verið, en ég bít ekki
neitt. Ég er góður strákur,“ segir
Kristján. „Þegar þú spyrð þessarar
spurningar þá lít ég jákvætt á hana.
Ég fæ rosalega mörg símtöl þar sem
fólk er að biðja um söng, en það seg-
ir alltaf „Það er náttúrulega ekki
hægt að bjóða þér upp á eitthvað
svona?“ Þetta er hræðsla sem ég tek
eftir. Fólk er búið að ákveða það að
Kristján Jóhannsson muni ekki taka
þátt í þessu. Ég er kannski ekki að
fara að syngja lög eftir Bubba Mort-
hens en ég vil syngja fyrir alla, þó
ég þurfi kannski að velja það sem ég
syng,“ segir Kristján. „Það kannski
hljómar hrokafullt en fólki finnst ég
stór, en ég vil ekki að fólk sé hrætt
við mig.“
Erum við að búa til góða söngvara
í dag?
„V ið erum að reyna það
allavega,“ segir Kristján, sem er
að kenna söng í söngskóla Sig-
urðar Demetz. „Við eigum mikinn
efnivið en það vantar stundum út-
haldið og ekki síst stuðninginn frá
samfélaginu. Við erum að reyna að
breyta því.“
Jólatónleikar Kristjáns Jóhanns-
sonar verða haldnir í Eldborgarsal
Hörpu þann 7. desember og er allar
upplýsingar um miðasölu að finna
á vef Hörpu www.harpa.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Í guðanna
bænum verið
ekki hrædd
við mig
Kristján Jóhannsson flutti heim til Íslands fyrir um 5 árum eftir
áratuga dvöl erlendis. Kristján er án efa sá íslenski óperu-
söngvari sem náð hefur hvað lengst í hörðum heimi klassískrar
tónlistar. Um árabil var hann á allra vörum sem sóttu óperu-
sýningar um allan heim. Hvort sem það var við Metropolitan
óperuna í New York, Scala í Mílanó eða Arenuna í Veróna.
Kristján var stór og kannski var hann of stór fyrir okkur Ís-
lendinga. Hann ætlar að halda jólatónleika í Eldborgarsal Hörpu
í byrjun desember og leyfa Íslendingum að heyra í einum besta
söngvara samtímans, Samuel Ramey.
Ég er góður strákur, segir Kristján Jóhannsson. Mynd/Hari
Ég er kannski ekki að fara að
syngja lög eftir Bubba Morthens
en ég vil syngja fyrir alla.
www.odalsostar.is
TINDUR
OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM
Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar
er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir
fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem
fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
30 viðtal Helgin 21.-23. nóvember 2014