Fréttatíminn - 21.11.2014, Blaðsíða 70
Hver eruð þið?
Við erum Helga Lilja aka Heli-
copter og Stephan aka President
Bongo. Saman myndum við teym-
ið „Bið að heilsa niðrí Slipp”. Við
erum kærustupar og tilfinninga-
smiðir.
Hvert er upphafið að teyminu ykkar
„Bið að heilsa niðrí Slipp”?
Á hönnunarmars 2014 bauðst fata-
merki Helicopter að taka þátt í sam-
sýningu á Kexinu þar sem yfirskrift
sýningarinnar var samstarf milli
fatahönnuða og tónlistarmanna. Í
stað hins augljósa, sem væri að gera
saman tónlistarvídeó eða að hanna
sýningarfatnað fyrir tónleikahald,
ákváðum við að hanna föt saman.
„Bið að heilsa niðrí Slipp“ leit dags-
ins ljós.
Fyrir hverja eru peysurnar?
Peysurnar eru fyrir alla þá sem
finnst þær fallegar. En hannaðar
með sjómennsku í huga svo að frelsi
og hlýja skipta höfuðmáli. Sá sem
klæðist peysunum þarf samt alls
ekkert að vera sjómaður eða -kona,
það er líka dásamlegt að fara í
göngutúr niðrí fjöru í fallegri peysu
og vera hlýtt.
Er planið að stækka línuna?
Við erum þegar komin með drög
að nokkrum stykkjum sem munu
prýða línuna þegar tíminn er rétt-
ur. Við vinnum ekki undir neinni
tímapressu né fyrirfram ákveðnum
reglum. Þetta er gert af ást og hlýju,
með gleði og bros á vör.
Hvaðan kemur hugmyndin að
mynstrinu?
Hún kemur frá ljósmerkjum höfuð-
áttabaujanna. Ljósmerkin eru mis-
munandi eftir áttunum, t.d. eru
merkin sem norðurbaujan gefur frá
sér stanslaus en suðurbaujan sex
stutt og eitt langt. Þau mynda því, í
okkar túlkun, röndótt munstur sem
er í senn reglulegt og óreglulegt.
En snið og efni?
Sniðin eru tvenns konar. Annars veg-
ar er kvenmannssnið sem er vítt og
sítt og gott að hreyfa sig í en hins-
vegar er karlmannssnið sem er líka
vítt og peysurnar eru stórar fyrir
karlmenn sem eru þreyttir á haml-
andi aðsniðnum fatnaði. Efnið er að
mestu leyti merino ull og alpaca ull
en peysurnar eru prjónaðar í Eist-
landi af gömlum trilluköllum með
tréfætur.
Tilfinningasmiðir
hanna peysur
Helga Lilja úr Helicopter og President Bongo úr GusGus hanna
saman hlýjar og þægilegar peysur og sækja innblástur sinn
til sjávar. Peysurnar eru upphafið að frekara samstarfi undir
merkinu „Bið að heilsa niðrí Slipp“ sem verður væntanlega
þróað áfram í Berlín þar sem kærustuparið býr og starfar.
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
SVOO FLOTT !
Teg Ester -
push up í stærðum
75-90 B,D,D,E
á kr. 7.995,-
Buxurnar á kr. 3.995,-
Afhverju svona peysur?
Af því það er óþægilegt að verða
kalt í ljótri, þröngri peysu.
Hvað gerið þið í Berlín?
Árið 2014 byrjaði í Suður Frakk-
landi þar sem tappinn úr flöskunni
„verum annarsstaðar en á Íslandi”
var tekinn úr. Við ákváðum að halda
áfram að teyga þann vökva en vild-
um að sjálfsögðu vera í kringum
fólk sem við elskum. Hér er fullt af
þannig fólki svo þess vegna erum
við hér. Og elskum það! -hh
Helgu Lilju Magnúsdóttur fatahönnuð og Stephan Stephansson, eða President Bongo úr GusGus, langaði til að hanna þægilega
og fallega flík fyrir fólk sem elskar að líða vel.
Peysurnar, sem eru úr merino og alpaca
ull, eru hugsaðar fyrir konur jafnt sem
karla sem vilja ekki láta sér verða kalt í
ljótri og þröngri peysu.
Peysurnar fást í verslunini Kiosk,
Laugavegi 65.
70 tíska Helgin 21.-23. nóvember 2014
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
1
1.−16. nóv. 2014
Ungmennabækur
MÓTTÖKURNAR
TAKK
FYRIR
Við elskum skó
Smáralind • S. 511 2020
Full búð af flottum vörum
29.990 kr. 13.990 kr.
Allt fyrir
jólaprjónið
laugavegi 59
101 reykjavík
551 82 58
storkurinn@storkurinn.is
www.storkurinn.is
Myndin sýnir garn frá brooklyn tweed sem fæst í Storkinum.