Fréttatíminn - 21.11.2014, Page 36
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
1 Ljóð & leikrit
1.−16. nóv. 2014
2Ljóð & leikrit
1.−16. nóv. 2014
MÓTTÖKURNAR
TAKK FYRIR
getur veruleikinn virst svo óyfir-
stíganlegur. Ég sótti mér þá hjálp
sem ég þurfti til að ég gæti synt í
gegn um þetta. Ég hugsaði með
mér að ef við ætluðum að fara í
gegn um þetta saman þá þyrfti
ég að vera í lagi, og að ef ég væri í
lagi þá myndi þetta reddast. Auð-
vitað koma bakslög en við vinnum
bara með þau spil sem við höfum á
hendi hverju sinni.“
Hún segist njóta móðurhlut-
verksins og er afar þakklát fyrir
drengina sína. „Þessi fimm ára
er orðinn svo stór núna að það
er hægt að fara að ræða meira
við hann, og þeir farnir að leika
sér meira saman. Lífið er alltaf
gott þegar þeir eru nálægt. Um
helgina fórum við varla út úr húsi.
Ég var á sloppnum og þeir á nátt-
fötunum og við skreyttum pipar-
kökur og fórum í gamnislag. Með
þeim verður maður 8 ára líka.“
Ósanngjörn gagnrýni á Smart-
landið
Dagsdaglega vaknar Marta á und-
an sonum sínum og þarf að draga
þá fram úr rúminu til að þeir verði
ekki seinir í skóla og leikskóla.
„Ég reyni að fara í bað á kvöldin og
ef ég þarf að þvo á mér hárið geri
ég það á kvöldin. Ég hef engan
tíma til þess á morgnana. Ég gef
strákunum að borða og svo keyri
ég þá í skólann.“ Eftir flutninginn í
miðbæinn hefur nýr áfangastaður
skipað sér fastan sess hjá Mörtu
áður en hún heldur til vinnu í
Morgunblaðshöllina í Hádegismó-
um. „Ég reyni að byrja daginn á
Kaffifélaginu við Skólavörðustíg.
Ég byrjaði að fara þangað því þar
er svo gott kaffi, smátt og smátt
fór ég að taka eftir að það var alltaf
svipaður hópur sem var þarna og
nú er það orðinn nauðsynlegur
hluti af taka þarna gott spjall í byrj-
un dagsins. Þetta er orðið þannig
að ef maður lætur ekki sjá sig þá er
farið að spyrja um mann.“ Marta
segir það aðallega vera karla sem
hún ræðir þarna við yfir morgun-
kaffinu og finnst gott að fá þeirra
sjónarhorn. „Þetta eru karlar sem
liggja ekki á skoðunum sínum,“
segir hún en meðal þeirra sem
stunda Kaffifélagið eru fjölmiðla-
mennirnir Helgi Seljan og Egill
Helgason, leikstjórinn Benedikt
Erlingsson og almannatengillinn
Karl Pétur Jónsson. „Mér finnst oft
gott að tala við karlmenn því þeir
eru svo lausir við allt drama heldur
tala bara hreint út.“
Stærsti lesendahópur Mörtu
Maríu er hins vegar eflaust konur
en hún er ókrýnd drottningin af
Smartlandi á mbl.is. „Ég hef samt
alveg verið stoppuð af eldri karl-
mönnum úti í búð þar sem þeir eru
að þakka mér fyrir tískupistlana
mína,“ segir hún hlæjandi. Flestir
hafa skoðun á lífsstílsvefnum
Smartlandi og virðist fólk ýmis
elska hann eða hata. Það sem helst
fer illa í fólk eru fréttir sem það
telur ýta undir útlitsdýrkun. Marta
segir í raun lítinn hluta vefjarins
geta mögulega fallið undir slíkt
og ég spyr þá af hverju hún sleppi
því ekki bara. „Um daginn vorum
við með frétt um að leikkonan
Renée Zellweger væri gjörbreytt
í útliti og mér fannst það áhuga-
vert. Hún neitaði því að hafa farið
til lýtalæknis en ég tók viðtal við
lýtalækni sem fór yfir það sem
hún taldi Renée hafa látið gera við
sig. Mér fannst það vera innlegg í
umræðuna að heimsfræg leikkona
ákveði að láta breyta útliti sínu. Að
stærstum hluta er Smartland samt
með fasteignafréttir, hönnunar-
fréttir, myndir út skemmtanalíf-
inu og svo erum við með öflugan
matarvef sem hefur að geyma um
3000 mataruppskriftir sem hægt
er að nota sem uppflettirit. Mér
finnst því ekki sanngjarnt þegar
þetta er stimplað sem vefur sem
ýtir undir útlitsdýrkun.“
Biðst afsökunar
Nýlega skrifaði Marta pistil þar
sem hún fjallaði um að ung kona
sem heldur úti vinsælu lífsstíls-
bloggi hefði fótósjoppað myndir af
sér til að virðast grennri og spurði
á hvaða vegferð við værum þegar
ung og falleg stúlka velur þessa
leið. Í framhaldinu skrifaði konan
pistil þar sem hún kom fram
undir nafni, sagði Mörtu vera að
ráðast á sig og Facebook logaði í
framhaldinu þar sem Marta var
fordæmd. „Ég taldi mig ekki vera
að ráðast á hana. Ég nafngreindi
engan heldur var þetta persónu-
leg hugleiðing í pistli. Mér fannst
það hins vegar umhugsunarvert
að eigandi heilsuveitingastaðar
væri að gera þetta,“ segir Marta
en konan hafði titlað sig sem slík-
an í viðtölum þó síðar hafi komið
í ljós að hún var það ekki. „Þessi
viðbrögð hjá yngri kynslóðinni
segja kannski sitt. Mér skilst að
þetta sé eitthvað sem tíðkast og
þyki bara eðlilegt. En ég var mjög
leið yfir þessu máli og á endanum
komum við báðar illa út. Ég legg
mikið upp úr því að lífið sé gott og
ég vil ekki vera í svona neikvæðri
orku og það er aldrei markmiðið
að særa neinn.“
Það komst einnig í hámæli
þegar Marta lét Kristínu Júllu
Kristjánsdóttur gervahönnuð láta
sig líta út eins og ógæfukonu en
hún sá um gervi Þorsteins Bach-
mann í Vonarstræti sem þar lék
ógæfumann. „Mér þótti miðuir
hvernig umræðan þróaðist. Aðal-
málið var að sýna hvað Kristín
Júlla er flink. Ég hitti Baldvin Z,
leikstjóra myndarinnar, á Kaffi-
félaginu og því var hent fram í
gamni að ég ætti að láta breyta
Mér finnst oft
gott að tala
við karlmenn
því þeir eru
svo lausir við
allt drama
heldur tala
bara hreint út.Marta María byrjaði í fyrra að æfa kraftlyftingar og getur tekið 115 kíló í hnébeygju.
Mynd/Hari
Synir Mörtu Maríu, Helgi 8 ára og Kolbeinn Ari 5 ára, gæða sér á gómsætri köku.
Mynd úr bókinni/Guðný Hilmarsdóttir
36 viðtal Helgin 21.-23. nóvember 2014