Fréttatíminn - 21.11.2014, Side 64
64 fjölskyldan
Meðganga og fæðing í stjúpfjölskyldum
Ó hætt er að fullyrða að börn taka fréttum um væntanleg systkini misvel. Sum kæra sig ekki um neinar breytingar og kunna því vel að fá ein alla ást og athygli foreldra sinna á meðan önnur bíða spennt eftir að verða stóra systir eða
stóri bróðir. Jafnvel þó spenningur sé fyrir hendi eru nokkuð góðar líkur á afbrýðisemi
eldri systkina þegar barnið er fætt. Sum eru líka kvíðin á meðgöngunni og óttast hrein-
lega að foreldrarnir muni gleyma þeim þegar þar að kemur. Flestir foreldrar eru með-
vitaðir um líðan barna sinna og leyfa þeim að taka þátt í undirbúningnum og umönnun
nýburans eins og kostur er. Ekki vilja foreldrarnir að eldra barn þeirra finni sig útundan
þó það eignist systkini. Ætla má að það sama eigi við um foreldra sem komnir eru í nýtt
samband og eiga barn með stjúpforeldri barna sinna. Stundum er sameiginlega barnið
í stjúpfjölskyldunni kallað „límið“ eða „litli brúarsmiðurinn“. Ástæðurnar eru
einkum tvær. Annars vegar sú að allir fjölskyldumeðlimir tengjast því líffræðileg-
um böndum og hins vegar er sameiginlegt barn talið geta gefið fólki ástæðu til að
halda út erfið tímabil í stjúpfjölskyldunni í stað þess að gefast upp og halda hvort í
sína áttina.
Eins og gefur að skilja eru hálfsystkinin í annarri stöðu en „litli brúarsmiðurinn“
á heimilinu þar sem þau eiga foreldra á tveimur heimilum. Oft eiga þau líka stjúp-
foreldra, hálf- og stjúpsystkini á þeim báðum. Mörg börn eignast því hálf- og stjúp-
systkini án þess að það komi öðru foreldri þeirra nokkuð við í sjálfu sér. Stundum
á báðum heimilum á sama tíma. Það er því ekki víst að alltaf sé sami skilningur á
þörfum hálfsystkina og svo alsystkina þegar þau eignast systkini.
Hálfsystkinið þarf ekki minni skilning en önnur börn. Sumum finnst staða sín
í fjölskyldunni veikjast, þar sem nýja barnið á bæði pabba og mömmu á heimilinu
og kann það að vera rétt í sumum tilvikum. Algengt er að pörum finnst „allt“ mun
auðveldara sem snýr að sameiginlegu barni þeirra en þeim sem þau eiga úr fyrra
sambandi.
Stjúpforeldrar eru venjulega minna tengdir stjúpbörnum sínum en eigin börnum, sem
eðlilegt er, en séu tengslin mjög veik eru þeir síður tilbúnir til að veita þeim stuðning en
eigin börnum. Skiptir ekki máli hvort það sé tilfinningalegur, fjárhagslegur eða annar
stuðningur. Það getur því verið ólíkur skilningur innan stjúpfjölskyldunnar hversu mik-
inn stuðning á að veita eða hvort þörf sé á einhverjum stuðningi.
Hálfsystkini nýburans þurfa hinsvegar, rétt eins og önnur börn, fullvissu um ást for-
eldra sinna og að stjúpforeldrinu sé annt um velferð þeirra og líðan. Þau þurfa að fá að
vera þátttakendur eins og kostur er. Við undirbúning og eftir fæðingu skapast ný tæki-
færi til efla tengsl milli stjúpforeldris og barns. Skoða má gamlar myndir af stjúpforeldri
og barni sem ungbarni, segja sögur úr æsku og aðstoða við val á fatnaði, svo fátt eitt er
nefnt. Á sama tíma þarf barnið líka að fá tækifæri til að vera eitt með foreldri sínu en
það dregur úr afbrýðisemi og samkeppni að skipta fjölskyldunni reglulega upp, bæði
eftir líffræðilegum línum og stjúptengslum.
Þarfir væntanlegar móður eða föður, stjúpforeldris barnsins, geta verið aðrar en
barnsins eða makans á þessum tímamótum. Sumum stjúpforeldrum finnst ekkert
sjálfsagðara en að stjúpbörnin séu á heimilinu þegar barnið fæðist á meðan aðrir hafa
miklar áhyggjur af því að það fæðist í „pabbavikunni“ eða „mömmuvikunni“. Að eigin-
maðurinn verði t.d. meira upptekinn af því að stjúpbarnið verði ekki útundan en þörfum
móðurinnar fyrir stuðning. Jafnvel að stjúpbarnið verði með hávaða og kröfuhart á
móður sína þegar hún kemur heim af fæðingardeildinni, sem nýbökuðum föður finnst
kannski erfiðara að umbera en móðurinni.
Barneignum fylgir aukið álag, stjúptengsl eru viðkvæm. Góður undirbúningur skiptir
máli og mikilvægt að reynt sér að koma á móts við ólíkar þarfir vilji fólk byggja upp
sterka fjölskyldu. Vinir og vandamenn geta létt undir með því að bjóða eldri systkinum
í heimsókn, næturgistingu, bæjarferðir eða annað, jafnframt verið nýbökuðu foreldri
stuðningur þann tíma sem hitt foreldrið sinnir börnum sínum úr fyrra samband. Finn-
um lausnir sem ganga – bæði fyrir börn og fullorðna.
Stundum er sameiginlega barnið í stjúpfjölskyldunni
kallað „límið“ eða „litli brúarsmiðurinn“.
Fæðist barnið í pabbavikunni?
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
Helgin 21.-23. nóvember 2014
Guðlaugur A Magnússon
Skólavörðustíg 10 • Reykjavík • www.gam.is • sími 5625222
Við hönnun skeiðarinnar sóttum
við innblástur í okkar gömlu
hefðir enda
ber hún emeleringu eins og fyrstu
skeiðarnar okkar.
Hin eina sanna jólaskeið
okkar íslendinga í 68 ár
Jólaskeiðin 2014
RISA
ÍÞRÓTTA- OG LEIKFANGAMARKAÐUR
Í Laugardagshöll dagana 21-30. nóvember.
Stærsti markaðurinn hingað til. Nú hefur
LEIKBÆR bæst í hópinn með úrval
leikfanga á frábæru verði.
Opnunartími
Mánud.-föstud. frá kl. 14:00 – 20:00
Laugard. og sunnud. frá kl. 12:00 – 18:00
Komdu og gerðu frábær kaup fyrir
alla fjölskylduna
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Ný sending af
Kjólum frá
Ameríku
Margar gerðir
Kjóll Frósen
kr.6795.-