Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.11.2014, Side 37

Fréttatíminn - 21.11.2014, Side 37
www.smurstodin.is 519 9750 skógarsúran okkar Við fáum hana frá garðyrkjustöðinni Ösp þar sem hún er ræktuð á vistvænan hátt eftir kúnstarinnar reglum. Margir kannast við þessa ágætu en fágætu súru frá Skandinavíu, þar sem hún vex villt. Við notum hana í salatið okkar, því hún veitir ekki bara sýru og gott bragð — heldur gefur hún öllu sem hún kemur nálægt svo ljómandi fallegan svip. Heitt »leverpostej«, skógarsúrusalat, beikon og hnúðsellerí 1.590 ,– Smurstöðin er nýr veitingastaður í Hörpu. Þar færð þú smurbrauð úr íslensku hráefni, með nýnorrænu yfirbragði. ögn súr, en samt e itthvað svo sæt B ra nd en bu rg mér í ógæfukonu. Þetta átti ekki að særa neinn eða gera lítið úr neinum. Ég hefði kannski átt að biðjast afsökunar á sínum tíma en ég geri það hér með. Það fór síðan líka fyrir brjóstið á fólki þegar ég spurði Kristínu Júllu hvort hún gæti breytt fallegri konu eins og mér í ógæfukonu. Fólk varð alveg brjálað en þetta er bara minn húmor. Ég man eftir því að hafa hitti þekktan sjónvarpsmann á förnum vegi og spurt hvernig hann hefði það. Hann svaraði um- svifalaust að „maður með svona andlit er aldrei óhamingjumsam- ur.“ Konur virðast samt ekki mega grínast svona. Mér fannst líka miður að Kristín Júlla dróst inn í þetta en ég hitti hana um dagin og þá sagðist hún hafa fengið fjölda verkefna út á þetta þannig að það fór vel. Þó ég sé með þykkan skráp er ég ekki átakasækin. Mig langar að hafa allt gott og vil alls ekki að einhverjir upplifi að ég sé að tala niður til þeirra.“ Byrjaði með þjálfaranum Fólk telur Mörtu Maríu lifa miklu glamúrlífi en hún segir glamúrinn líklega ofmetinn. Ég fer á Kaffi- félagið, er á skrifstofunni, þegar ég er með strákana geng ég út klukkan fimm en annas vinn ég fram á kvöld. Og svo fer ég á lyftingaræfingu.“ Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að Marta María sé að slá sér upp með lyft- ingaþjálfaranum sínum, Ingimundi Björgvinssyni, og birtist mynd af þeim saman á frumsýningu þar sem fyririsögnin var á þá leið að hún hefði „frumsýnt“ nýja kærast- ann. Hún vill lítið ræða samband þeirra enda frekar nýtt af nálinni en staðfestir að þau séu par. Marta María heyrði fyrst af Ingimundi fyrir nokkrum árum þegar hún tók viðtal við tvær afrekskonur í kraft- lyftingum og ákvað að taka líka viðtal við þjálfarann þeirra, sem var Ingimundur. Upptakan týndist og viðtalið fór aldrei í loftið en seinna sagði Ingimundur Mörtu Maríu að hann hafi ekkert botnaði í henni. „Honum fannst ég spyrja svo kjánalegra spurninga og að ég vissi ekkert um kraftlyftingar sem var reyndar rétt. Þegar ég byrjaði að lyfta ákvað ég að fara til hans því ég vissi að hann var bestur. Svo bara náðum við svona vel saman. Þegar þetta virtist fara að þróast í meira varð ég samt hikandi því ef þetta myndi ekki ganga upp þyrfti ég þá að fara að æfa annars staðar,“ segir Marta hlæjandi. „Í fyrsta skipti á ævinni hafði ég áhyggjur af því að missa af líkams- ræktaræfingu. En hann hefur haft jákvæð áhrif á líf mitt og gerir það innihaldsríkara og betra.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.