Fréttatíminn - 21.11.2014, Side 78
TónlisT ný plaTa Ylju kallasT CommoTion
Alltaf verið á skjön við tón
listarsmekk jafnaldranna
Hljómsveitin Ylja
sendi á dögunum
frá sér sína
aðra breiðskífu.
Söngkonurnar
og andlit sveitar-
innar, þær Gígja
og Bjartey, segja
Ylju vera hljóm-
sveit þrátt fyrir
að þær séu í for-
grunni. Á nýju
plötunni Commo-
tion segjast þær
hafa þróast í
þá átt sem þær
stefndu að og
tónlistin sé orðin
aðeins þyngri
og þróaðri en á
fyrstu plötunni.
Ylja heldur út-
gáfutónleika í
Kaldalónssal
Hörpu föstudag-
inn 28. nóvem-
ber og kemur
fram á Jólagest-
um Björgvins í
desember.
V ið kynntumst í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og byrjuðum að spila saman í kringum 2008,“
segir Bjartey Sveinsdóttir, söngkona í
Ylju, þegar hún er spurð um upphaf hljóm
sveitarinnar. „Síðan höfum við bara verið
að bæta á okkur blómum jafnt og þétt,“
bætir Gígja Skjaldardóttir við.
„Við vorum búnar að vera saman í kór
Flensborgar og kynntumst þegar við
ákváðum að taka þátt í söngkeppni skól
ans. Ég bað Bjarteyju að taka þátt með
mér, þrátt fyrir að þekkja hana lítið,“ segir
Gígja. „Þannig byrjaði þetta bara.“
Ylja gaf út sína fyrstu plötu árið 2012 og
mátti greina mikil þjóðlaga og hippaáhrif í
tónlist þeirra. Var það alltaf stefnan?
„Það var bara okkar tebolli,“ segir
Bjartey. „Við vorum að syngja gömul
þjóðlög og fimmundasöng og slíkt,“ segir
Gígja. Þær stöllur eru 24 ára gamlar og
segjast alltaf verið á skjön við tónlistar
smekk jafnaldra sína. „Þetta var bara
náttúrulegt fyrir okkur,“ segir Gígja. „Við
vorum bara í rólegu og fallegu lögunum,“
segir Bjartey. „Auðvitað hlustaði maður
á allskonar annað inn á milli, en þetta var
alltaf ofan á.“
Á plötunni Commotion eru lögin bæði
á ensku og íslensku og segja þær að það
hafi bara þróast þannig og hafi alls ekki
verið ákveðið. „Við ræddum um það að
gera plötuna á ensku, en vorum ekkert
búnar að ákveða neitt meira með það,
segir Bjartey. Okkur fannst tónlistin
okkar passa vel við íslenska texta, og mér
fannst skemmtilegra að semja á íslensku,“
segir Gígja. „Við vorum samt búnar að
vera að semja á báðum tungumálum áður
en platan varð klár, svo við völdum bara
þau lög sem voru tilbúin án þess að pæla
í því á hvaða máli textarnir voru,“ segir
Gígja. „Við vorum búnar að ákveða að
nýja platan yrði mest á ensku, bara til
þess að breyta til og skora á okkur að gera
eitthvað nýtt.“
Hvað með hina meðlimi bandsins, taka
þeir jafn mikinn þátt í lagasmíðunum?
„Við hugsum Ylju þannig að allir séu
jafnir og taki virkan þátt í öllu,“ segir
Gígja. „Okkur líður ekki eins og við séum
„aðal“ þó það sé kannski þannig út á við.
Við semjum lögin mest sjálfar en hinir
meðlimirnir taka mikinn þátt í öllum út
setningum og búa lögin til með okkur.“
Ylja hefur jafnt og þétt náð að verða
mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi og nú
er svo komið að þær koma fram á Jólatón
leikum Björgvins Halldórssonar í desem
ber. Er það eitthvað sem kom á óvart?
„Það er smá úr karakter, en er mjög
skemmtilegt,“ segir Gígja. „Það er alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir
Bjartey. „Okkur finnst við hafa gert allt á
okkar hraða og náð að festa okkur í sessi
á okkar forsendum. Björgvin sagði það
mikilvægt að við héldum okkar karakter
og fengjum að vera þær sem við erum,
svo þetta verður bara skemmtilegt,“ segir
Gígja.
Ylja heldur útgáfutónleika í Kaldalóns
sal Hörpu föstudaginn 28. nóvember og
er miðasala á vef Hörpu. Einnig kemur út
myndband með sveitinni á næstu dögum
og eru þær að spila við öll tækifæri, hvort
sem það eru brúðkaup eða jarðarfarir og
allt þar á milli.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Söngkonurnar og
andlit hljómsveit-
arinnar Ylju, Gígja
Skjaldardóttir og
Bjartey Sveins-
dóttir. Önnur breið-
skífa sveitarinnar
er komin út.
Ljósmynd/Hari
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá í Stúdíó Stafni.
mYndlisT Fjörubækur og Fleiri Verk
Síðasta sýningarhelgi Kristínar
„Fjörubækur og fleiri verk“
nefnist sýning Kristínar Jóns
dóttur frá Munkaþverá sem
nú stendur yfir í Stúdíó Stafni,
Ingólfsstræti 6, Reykjavík.
Síðasti dagur sýningarinnar
er á sunnudag, 23. nóvember,
en hún er opin alla daga frá
klukkan 1417. Á sýningunni
eru myndverk frá tímabilinu
19822004 og hafa mörg þeirra
ekki verið sýnd áður.
Kristín er fædd á Munka
þverá í Eyjafirði árið 1933. Hún
stundaði nám í Handíða og
myndlistarskólanum í Reykjavík
19491952 og síðar framhalds
nám í myndlist í Danmörku,
Frakklandi og á Ítalíu. Hún hef
ur haldið yfir 20 einkasýningar
á Íslandi, í Bandaríkjunum og
Kanada. Sú síðasta var „Orðin,
tíminn og blámi vatnsins“ í
Listasafni ASÍ í fyrra. Einnig
hefur hún tekið þátt í fjölmörg
um samsýningum á Íslandi og
víða um heim. Verk eftir hana
er að finna í helstu listasöfnum
hér á landi og einnig í söfnum í
Bandaríkjunum og Evrópu.
78 menning Helgin 21.-23. nóvember 2014
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
Fjölmargar spennandi uppskriftir
að hollum, einföldum og ódýrum
réttum sem henta börnum og
barnafjölskyldum.
Glæný og
girnileg bók