Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 2
20% afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
Netmiðlar GreiNiNG á hatursorðræðu
Fordómafull ummæli í garð múslima algengust
Töluvert ber á ummælum sem ein-
kennast af kynþáttafordómum,
byggðum á staðalmyndum um hópa
fólks, að því er fram kemur í nýrri
greiningu á hatursorðræðu á ís-
lenskum netfréttamiðlum. Af þeim
14.815 ummælum sem voru lesin
fyrir greininguna voru 75% skrifuð
af körlum og 25% af konum. Algeng-
ast er að fordómafull ummæli séu
sett fram í garð múslima. Einnig eru
algeng ummæli sem einkennast af
þjóðernishyggju og ný-rasisma, að
því er fram kemur í tilkynningu
Reykjavíkurborgar en greiningin
var kynnt á fundi mannréttindaráðs
Reykjavíkur á þriðjudaginn.
Greiningin var unnin af Bjarn-
eyju Friðriksdóttur, doktorsnema
í Evrópulöggjöf, og var markmiðið
að greina helstu einkenni umræð-
unnar í ummælakerfum á netfrétta-
síðum og kanna hvort hún einkenn-
ist af hatursorðræðu. Tímabilið sem
greiningin nær til er frá mars 2013
– mars 2014. Efnisflokkar sem skoð-
aðir voru; hælisleitendur/flóttafólk,
fólk af erlendum uppruna/innflytj-
endur, bygging mosku í Reykjavík,
jafnrétti kynjanna, femínismi, kyn-
ferðislegt ofbeldi og hinsegin fólk.
„Í greiningunni er,“ segir meðal
annars í tilkynningunni, „sérstak-
lega fjallað um umræðu um bygg-
ingu mosku í Reykjavík þar sem
komu fyrir gróf ummæli sem ein-
kennast af ný-rasisma, kynþátta-
hyggju og þjóðernishyggju. Meðal
annars voru settar fram morðhót-
anir í garð eins af forsvarsmönnum
Félags múslima á Íslandi og aðrar
persónuárásir. Fram kemur að um
það bil 8-10 manna hópur sé mjög
virkur í umræðunni um byggingu
mosku og búsetu múslima á Íslandi.
Nokkrir af þeim halda úti vefsíðum
þar sem settur er fram haturs- og
hræðsluáróður gagnvart múslim-
um.“ -jh
ForsetaFramboð Niðurstaða úr köNNuN FréttatímaNs er ljós
Vilja Rögnu Árnadóttur
sem næsta forseta
Ragna Árnadóttir er sú sem lesendur Fréttatímans myndu helst kjósa sem næsta forseta Íslands.
Undanfarna viku hefur staðið yfir kosning milli þeirra tveggja sem efst stóðu í Facebook-könnun
blaðsins, Jóns Gnarr sem var þá efstur og Rögnu. Ragna hefur lengi verið orðuð við forsetafram-
boð en hún hefur lítið gefið út á það.
Ragna Árnadóttir
Ragna er lögfræðingur sem vakti
athygli þegar hún var dómsmálaráð-
herra, utan þings, í kjölfar hrunsins.
Hún hefur lengi verið orðuð við
forsetaframboð en hefur hvorki sagt
af né á um áform sín í þeim efnum.
Hún er í dag aðstoðarforstjóri Lands-
virkjunar. Hún er fædd árið 1966.
Eiginmaður hennar er Magnús Jón
Björnsson tannlæknir og eiga þau
tvær dætur, fæddar 1993 og 2000.
Ragna hefur mikla reynslu úr
opinberri stjórnsýslu, hefur verið í
stjórnunarstöðum í heilbrigðisráðu-
neytinu og dómsmálaráðuneytinu
og var dómsmálaráðherra á árunum
2009-10.
Hún stýrir samstarfshópi ríkisins,
Reykjavíkurborgar og Icelandair sem
vinnur að því að finna nýjan stað fyrir
Reykjavíkurflugvöll. Þá stýrir Ragna
einnig þverpólitískum og þverfag-
legum samráðsvettvangi um aukna
hagsæld á Íslandi. Á vettvangnum
eiga sæti formenn allra stjórnmála-
flokka sem sæti eiga á Alþingi og ýmis
hagsmunasamtök, fulltrúar sveitar-
félaga og stjórnendur fyrirtækja.
Í viðtali við RÚV sagði Ragna frá því
að hún væri mikill teiknimyndanörd
og safnaði sögum um Andrés
önd, Dick Tracy og fleiri. Hún sótti
námskeið í Beyoncé-dönsum hjá
Kramhúsinu í fyrravetur og sagði frá
uppátækinu í fjölmiðlum.
-sda
r agna Árnadóttir er óskafor-seti lesenda Fréttatímans, samkvæmt niðurstöðum
óvísindalegrar könnunar á Facebo-
ok-síðu blaðsins. Í síðustu viku
trónaði Jón Gnarr á toppnum eftir
að kosið var á milli 20 efstu en eftir
að kosið var á milli tveggja efstu,
þeirra Jóns og Rögnu, stendur
Ragna uppi sem sigurvegari. Ragna
fékk 64% atkvæða en Jón 36% en 414
manns tóku þátt. Um sjálfvalsúrtak
var að ræða.
Fréttatíminn hóf leitina að næsta
forseta lýðveldisins í byrjun mán-
aðarins með dyggri aðstoð lesenda
en Fréttatíminn hefur undanfarnar
vikur staðið fyrir könnun á Facebo-
ok-síðu sinni þar sem fjöldi fólks
hefur sagt skoðun sína á því hver
eigi að vera næsti forseti. Ólafur
Ragnar Grímsson lýsti því yfir fyrir
síðustu forsetakosningar að hann
myndi hugsanlega ekki sitja allt
fimmta kjörtímabilið – sem nú er
hálfnað. Því fer að draga til tíðinda
á þeim vígstöðvum og ekki seinna
vænna að fara að undirbúa jarðveg-
inn fyrir væntanlegan arftaka.
Lesendur nefndu ótal nöfn í upp-
hafi og eftir fyrstu lotu gafst fólki
tækifæri á að kjósa á milli 20 efstu
án þess þó að fram hefði komið
hver röðun þeirra væri, en meðal
þeirra sem voru á listanum eru
Þóra Arnórsdóttir, Davíð Odds-
son og Katrín Jakobsdóttir. Eftir
þá kosningu trónaði Jón Gnarr,
skemmtikraftur og fyrrverandi
borgarstjóri, á toppnum með 24%
atkvæða en Ragna Árnadóttir var í
öðru sæti með 19% atkvæða.
Þó þessi könnun hafi verið til
gamans gerð varpar hún ljósi á þá
staðreynd að endanleg úrslit
kosninga geta verið önnur
þegar kosið er aftur á milli
tveggja efstu. Í síðustu
kosningum til forseta Ís-
lands voru sex manns í
framboði og upp kom um-
ræða um að þegar slíkur
fjöldi er í framboði skyldi
kjósa á milli tveggja efstu
en þar. Raunar skáru tvö
efstu sig verulega úr þegar
kom að atkvæðafjölda en þá var
Ólafur Ragnar Grímsson endur-
kjörinn með 53% atkvæða en Þóra
Arnórsdóttir fékk 33%.
Ragna Árnadóttur hafði betur þegar
kosið var milli hennar og Jóns Gnarr.
Jón
Gnarr
36% Ragna
64%
Hugmyndin um tvennar kosn-
ingar hefur ekki hlotið brautar-
gengi þó þær tíðkist víða, meðal
annars vegna kostnaðar og mögu-
legs áhugaleysis kjósenda á báð-
um kosningum. Þorkell Helgason,
stærðfræðingur og fyrrverandi
stjórnlagaráðsþingmaður, ritaði
grein í Fréttatímann árið 2011 þar
sem hann greindi frá því að hann
hafi árið 2006 lagt til við stjórnar-
skrárnefnd sem þá var að störfum
að nota svokallaða forgangsröðun-
araðferð við forsetakosningu, sams-
konar aðferð og var notuð við kjör til
stjórnlagaþings. Þá raða kjósendur
frambjóðendum í forgangsröð. Fái
enginn þeirra meirihluta er sá sem
fær minnst fylgi að fyrsta vali kjós-
enda dæmdur úr leik og atkvæði
hans færð til hinna í samræmi við
annað val viðkomandi kjósenda, og
svo framvegis allt þar til meirihluti
liggur fyrir.
Hversu margir, og ekki síst hverj-
ir, bjóða sig fram fyrir næstu for-
setakosningar á hins vegar enn eftir
að koma í ljós.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Framkvæmdastjóri NATO í kveðjuheimsókn
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, hélt af
landi brott í gærmorgun, fimmtudag,
en hann kom hingað til lands að morgni
miðvikudags í boði Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Heimsóknin var liður í undirbúningi fyrir
leiðtogafund bandalagsins, sem haldinn
verður í Wales dagana 4.-5. september
næstkomandi, að því er fram kemur á
síðu forsætisráðuneytisins. Jafnframt
var um að ræða kveðjuheimsókn
framkvæmdastjóra NATO, en hann lætur
af störfum í lok næsta mánaðar.
Anders Fogh Rasmussen átti fundi
með forsætisráðherra og Gunnari
Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Þá
heimsótti hann Alþingi. - jh
Bandaríkjamenn
sjúkir í allt norrænt
Foss distillery, sem framleiðir hina geysi-
vinsælu líkjöra og snafsa Björk og Birki,
hafa nú hafið útrás til Bandaríkjanna. Björk
og Birkir líkjörarnir eru
unnir úr íslensku birki og
birkisafa og hafa selst
mjög vel á Íslandi. Öll
tilskilin leyfi eru í höfn og
undirbúningur á fyrstu
sendingu á vörunum er
á lokastigi. Stefnt er á að
vörurnar verði komnar í
dreifingu í Bandaríkjunum
í byrjun október. Það er
fyrirtækið Vendetta Spirits
í New Orleans sem mun
annast sölu- og markaðs-
setningu en Vendetta Spi-
rits hefur sérhæft sig í inn-
flutningi til Bandaríkjanna
á líkjörum og snöfsum frá
minni framleiðendum út
um allan heim.
„Varan verður bara seld á sérvöldum
kokteilbörum og verður markaðssett sem
norræn vara,“ segir Eva Sædal, markaðs-
stjóri hjá Foss distillery. „Bandaríkjamenn
eru alveg sjúkir í allt sem er norrænt,
sérstaklega matargerð og vínmenningu
svo við erum viss um að þetta muni falla
vel í kramið vestanhafs. Þetta er einhver
tískubylgja.“
Ungt fólk mætir
síður á kjörstað
Kjörsókn í nýafstöðnum borgarstjórnar-
kosningum var sú minnsta frá því 1928 eða
62,8%. Fjórum árum fyrr var hún 73,5%.
Í þessum kosningum ákvað skrifstofa
borgarstjórnar að taka saman tölur yfir
kjörsókn eftir aldri. Er þetta í fyrsta sinn
sem áreiðanlegar tölur um kjörsókn eftir
aldri eru teknar saman á Íslandi.
Kjörsóknin var minnst hjá fólki á aldrinum
20-26 ára, eða 41,6%, og litlu meiri hjá 18-
19 ára eða 45%. Það er ekki fyrr en komið
er upp í 40 ára og eldri sem kjörsóknin
nær því að komast yfir þau 62,8% sem var
heildarkjörsókn á öllum aldursbilum.
Á heildina litið var kjörsókn kvenna meiri
en karla, 64% á móti 62%.
Þúsundir hlaupa til góðs
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 fer
fram laugardaginn 23. ágúst næstkomandi.
Þegar tíu dagar voru í hlaup höfðu safnast
um 27 milljónir króna til góðra málefna á
áheitavef hlaupsins, hlaupastyrkur.is. Heildar
upphæðin er 15% hærri en sú sem hafði
safnast á sama tíma í fyrra, að því er fram
kemur í tilkynningu Redykjavíkurmaraþons.
Þrjú þúsund þátttakendur í Reykja-
víkurmaraþoni Íslandsbanka eru að safna
áheitum á hlaupastyrkur.is. Rúmlega 700
manns hafa safnað 10 þúsund krónum eða
meira og 28 hafa safnað 100 þúsund krónum
eða meira.
Algengast er að fordómafull ummæli séu sett fram í garð múslima.
2 fréttir Helgin 15.-17. ágúst 2014