Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Þurrt framan af degi a-til,
en annars væta.
Höfuðborgarsvæðið: Rigning meiRa og
minna, en hæguR vinduR.
Hvöss n-átt og kólnar.
rigning na- og a-til.
Höfuðborgarsvæðið: StRekkingSgola og
léttiR til.
aftur Hæglátt veður og víðast Þurrt
og fremur sólríkt.
Höfuðborgarsvæðið: BjaRt, en dReguR
fyRiR Sólu SíðdegiS.
Hvass vindur
á laugardag
allt bendir til þess að nokkuð kröpp lægð
komi úr vestri og fari fljótt yfir austur með
suðurströndinni. hefur í för með sér að í
dag rignir S- og V-lands og í nótt og fyrra-
málið A- og NA-lands. Í kjölfarið
snýst til n-áttar og hvasst verð-
ur um tíma. Snarpar hviður,
sérstaklega á Snæfellsnesi
og SA-lands. Kólnar með
þessu, en á sunnudag lægir
og þá er gert ráð fyrir að
sólin skíni á jafnt réttláta
sem rangláta.
12
10 12
14
11
12
7 6 7
14
10
10 9 6
13
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
SUMARÚTSALA
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Kveiking í öllum rofum
• Auka steikarplata fylgir
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Efri grind
• Bakki fyrir fitu
• Hitamælir
• Fáanlegt í fleiri litum
Er frá Þýskalandi
Opið laugardaga til kl. 16
Niðurfellanleg
hliðarborð
89.900
SUMARÚTSALA
Í um átta ár hefur karlmaður verið ranglega skráður með lögheimili í fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykja-
víkur. Enn þann dag í dag berst honum
póstur á lögheimilið, þangað koma
stefnuvottar að leita að honum og íbúar
fá símtöl þar sem mannsins er leitað, en
þeir hafa ekki upplýsingar um núver-
andi dvalarstað mannsins.
„Í rauninni er ekki löglegt að vera
með skráð lögheimili þar sem fólk
hefur ekki fasta búsetu,“ segir Ástríður
Jóhannesdóttir, deildarstjóri lögfræði-
deildar þjóðskrársviðs Þjóðskrár Ís-
lands „Það er þó alltaf eitthvað um að
fólk sé ranglega skráð. Samkvæmt lög-
heimilislögum skal tilkynna, Þjóðskrá
Íslands, um breytingar á lögheimili en
það eru ekki allir sem fara eftir því.
Stundum er það vegna þess að fólk veit
ekki af þessari skyldu,“ segir hún en
engin viðurlög liggja við rangri skrán-
ingu. Sektarheimildir eru til staðar en
Ástríður veit ekki til þess að þær hafi
verið notaðar.
Ástríður rifjar upp nokkurra ára
blaðamál þar sem maður skráði lög-
heimili sitt í Ráðherrabústaðnum án
þess að eiga þar búsetu. „Samkvæmt
lögunum þarf ekki samþykki húsráð-
anda til að einhver flytji lögheimili sitt í
hús heldur er því einmitt öfugt farið, að
húsráðandi þarf að tilkynna ef einhver
á þar ekki lögheimili. Lagaumgjörðin
er dálítið þung og gamaldags miðað við
þær samfélagsbreytingar sem hafa orð-
ið síðustu áratugi og við höfum oft bent
á að lög um þjóðskrá eru úr sér gengin,“
segir hún. Í nokkur ár hefur staðið til að
endurskoða lögin en engin slík vinna er
í gangi í innanríkisráðuneytinu.
Ástríður segir engar tölur liggja fyrir
um fjölda rangra lögheimilisskráninga
en hún telur þær ekki hafa aukist eftir
hrun enda sé það ekki góð leið til að fela
sig fyrir lánadrottnum. Íbúar í fjölbýlis-
húsinu í Vesturbænum segjast hafa haft
samband við Þjóðskrá Íslands vegna
mannsins sem þar er ranglega skráður
en þau hafi ekki fengið fullnægj-
andi upplýsingar um hvað þeir
geta gert. Ástríður getur
ekki tjáð sig um einstök
mál en bendir á að
húsfélög geti sent erindi til Þjóðskrár
Íslands í tilvikum sem þessum. „Þegar
við fáum slíka tilkynningu reynum við
að hafa uppi á viðkomandi. Ef það tekst
ekki er það stundum þrautalending að
skrá viðkomandi „óstaðsettan í hús“ í
viðkomandi sveitarfélagi.
Það getur verið erfitt að finna fólk,“
segir hún. Þá bendir hún á að þjóð-
skráin sé komin til ára sinna og ekki sé
mögulegt að halda skrá eftir íbúðum
í fjölbýlishúsum. „Við vitum ekki hver
býr í hvaða íbúð sem gerir allt eftirlit og
eftirfylgni mjög erfiða,“ segir hún.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
lögheimili tilkynna skal Þjóðskrá um breytingar innan 7 daga
Með rangt lög-
heimili í átta ár
Karlmaður hefur í tæpan áratug verið ranglega skráður með lögheimili í fjöl-
býlishúsi í Reykjavík. Íbúar taka enn við símtölum frá lánardrottnum sem leita
að manninum. Deildarstjóri hjá Þjóðskrá Íslands segir lög um þjóðskrá séu úr
sér gengin og lengi hafi staðið til að endurskoða þau. Hún bendir á að húsfélög
geti sent inn tilkynningar þegar íbúi í fjölbýlishúsi er þar ranglega skráður.
ástríður Jóhannesdóttir,
deildarstjóri lögfræðideildar
þjóðskrársviðs Þjóðskrár
íslands.
Íbúar í fjölbýlishúsi í Vesturbænum eru langþreyttir á að maður hafi verið skráður þar með lögheimili síðustu átta ár. Maðurinn fær
sendan póst í fjölbýlishúsið og þangað leita stefnuvottar að honum. Engin viðurlög liggja við rangri skráningu lögheimilis.
átök um dv
Útlit er fyrir átök á aðalfundi DV í lok
mánaðarins. Þorsteinn Guðnason, fyrrum
stjórnarformaður félagsins, er nú stærsti
hluthafi þess en deilt er um kaup hans á
tveggja prósenta hlut.
milljónir í málningu
Útilistaverk sem Reykjavíkurborg setur
upp í Breiðholti kosta 51 milljón króna.
Keramikmynd eftir Erró, sem sett verður
upp við íþróttahúsið við Austurberg, kostar
rúmar 24 milljónir króna.
78 innbrot í júlí
Í júlímánuði bárust lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu 78 tilkynningar um innbrot,
flest á heimili, en aðallega hefur innbrotum
í bíla fjölgað og brýnir lögreglan fyrir fólki
að skilja verðmæti aldrei eftir sjáanleg í
bílum sínum. Þá fjölgaði tilvikum í júlí þar
sem lögreglumenn voru beittir ofbeldi, en
átta slík tilvik voru tilkynnt í liðnum mánuði
og er það nokkur aukning miðað meðaltal
síðustu 12 mánaða.
margir fram úr
áætlun
Vinna við fjárlög er í fullum gangi og
alþingismenn hafa margir verið ósáttir
við framúrkeyrslu ríkisstofnana og tjáð
sig í fjölmiðlum. Landspítalinn hefur verið
áberandi í umræðunni en hann fór tæpar
600 milljónir króna fram úr áætlun fyrstu
sex mánuði ársins.
dýr sláttur fyrir
norðan
grasspretta hefur verið með eindæmum
góð á Norðurlandi í sumar og bæjaryfir-
völd á Akureyri súpa seyðið af því. Kostn-
aður við grasslátt er mun hærri í sumar en
undanfarin ár.
bbC Worldservice
aftur í loftið
Útsendingar BBC World Service, alþjóða-
útvarpsstöðvar breska ríkisútvarpsins,
hófust aftur í vikunni. Það er Vodafone á
íslandi sem gert hefur samning við BBC
um að sjá um dreifingu á útsendingum
stöðvarinnar.
vikan sem var
teitur aðstoðar bjarna
Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður
Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.
Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Teitur er 34
ára lögfræðingur frá Háskóla Íslands og öðlaðist málflutn-
ingsréttindi fyrir héraðsdómi 2007. Eftir útskrift frá lagadeild
starfaði hann hjá LOGOS lögmannsstofu frá 2006-
2007, í framkvæmdastjórn og stjórn Eyrarodda
hf. á Flateyri 2007-2011 og sem lögmaður hjá
oPuS lögmönnum frá 2011. teitur er mágur
illuga gunnarssonar menntamálaráðherra.
4 fréttir helgin 15.-17. ágúst 2014