Fréttatíminn - 15.08.2014, Blaðsíða 8
Hlíðasmára 3 I 520 3090 I www.bosch.is
Nú eru
tilboðsdagar
hjá okkur í
fullum gangi.
Bosch-heimilistæki,
borðbúnaður og gjafavara.
Líttu inn og gerðu góðu kaup.
Hvað er Ecocide, eða vistmorð?
„Ef sá skaði sem vistkerfi svæðis
verður fyrir, vegna athafna manns-
ins eða annara þátta, er það stór að
hann valdi röskun á friði þeirra sem
þar búa, þá vil ég, og fleiri, að sá skaði
verði talinn vera vistmorð. Samkvæmt
Rómarsamþykktinni frá 1998 eru nú
þegar til fjórir alþjóðlegir glæpir gegn
friði, sem varða samfélag allra þjóða á
jörðinni; hópmorð, stríðsglæpir, glæp-
ir gegn mannúð og árásarglæpir. Ég
vil að vistmorð verði fimmti alþjóðlegi
glæpurinn gegn friði.“
Eru engin lög til staðar nú þegar sem
vernda náttúruna?
„Jú, en það er svo auðvelt að snið-
ganga þau ef þau eru ekki alþjóðleg.
Það er svo mikilvægt að fyrirtæki
dagsins í dag horfi til framtíðar og
ákveði að fylgja umhverfisvænni
stefnu. Lögin eru mikilvægt tól til að
hvetja þau til þess. Það hefur verið allt
of auðvelt hingað til fyrir risafyrirtæki
að fara í kringum lögin. Þess vegna
þurfum við alþjóðleg lög um vistmorð.
Það eru til lönd sem nú þegar eiga sér
lög um vistmorð en mín barátta snýst
um að gera vistmorð að alþjóðalögum
því þessir glæpir virka ekki aðeins á
einum stað, þeir hafa áhrif á alla jörð-
ina. Eyðing skóganna í Amazon er eitt
besta dæmið um það.“
Hvernig hófst þetta ferðalag þitt?
„Ég var að vinna sem lögfræðingur
í London og hafði meðal annars unnið
í þrjú ár í mjög erfiðu máli manns sem
hafði lent í alvarlegu vinnuslysi. Við
vorum í réttarsalnum, á síðasta degi
málsins og málalok að nálgast. Ég
man að þegar ég beið eftir niðurstöðu
dómarans þá horfði út um gluggann,
yfir alla London, og hugsaði; Þetta
snýst ekki bara um þennan eina ein-
stakling. Það er ekki bara hann sem
hefur orðið fyrir skaða heldur öll
jörðin. Jörðin þarf lögfræðing. Þessi
hugsun breytti algjörlega lífi mínu.
Ég hefði getað valið að vera áfram
lokuð innan í lagakerfinu þar sem ég
græddi fullt af peningum við að vinna
fyrir aðra, en ég kaus að vinna frekar
fyrir jörðina. Ég ákvað að taka mér
ársfrí til að grafa upp alla mögulega
lagabálka sem gætu komið jörðinni
Jörðin þarf lögfræðing
Polly Higgins er breskur lögfræðingur sem hefur helgað líf sitt
baráttunni fyrir því að „Ecocide“, eða vistmorð, verði viðurkennt
sem fimmti glæpurinn gegn friði á jörðu. Á bak við Polly er fjöldi
fólks, en hún ferðast heiminn endilangan til að vekja athygli al-
mennings á hugtakinu. Hún segir Ísland muna þurfa á lögunum að
halda í framtíðinni.
Ecocide/Vistmorð
Samkvæmt Rómarsamþykktinni
frá 1998 eru nú þegar til fjórir
alþjóðlegir glæpir; hópmorð,
stríðsglæpir, glæpir gegn
mannúð og glæpir gegn friði.
Vistmorð átti upphaflega að
vera fimmti glæpurinn og hug-
takið kemur fyrst fram í skjölum
frá Sameinuðu þjóðunum frá
árinu 1972, en var fjarlægt
þaðan árið 1996 þegar fjögur
lönd greiddu atkvæði gegn
lögunum. Það voru Bandaríkin,
Bretland, Frakkland og Holland,
en á þeim tíma voru öll helstu
olíufyrirtækin í eigu þessara
landa. Árið 2010 lagði Polly
Higgins fram þá tillögu hjá Al-
þjóðlega sakamáladómstólnum
að vistmorð yrði aftur tekið inn í
Rómarsáttmálann. 122 ríki þurfa
að skrifa undir sáttmálann. Árið
2015 verða atkvæðin greidd.
Vistmorð, eins og eyðing skóganna í Amazon, hefur áhrif á alla jörðina, segir Polly Higgins. Ljósmyndir/Hari
Framhald á næstu opnu
8 fréttaviðtal Helgin 15.-17. ágúst 2014