Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
S
Sýnd hafa verið í fréttum alvarleg dæmi
um utanvegaakstur. Fram hefur komið
hjá þeim sem til þekkja, lögreglu og land-
vörðum, að utanvegaakstur hafi færst í
aukana. Mikið er um för eftir bíla á Kverk-
fjallaleið þar sem ferðamenn sneiða fram
hjá pollum, grjóti og öðrum farartálmum
með því að aka út fyrir veg. Sama gildir
um Fjallabaksleiðir og á veginum að Laka,
auk fleiri hálendisvega. Utanvegaakstur-
inn er þó ekki bundinn við
hálendið. Algengt er að sjá
hjólför á söndum Suður-
lands. Þar leika einhverjir
sér að því að spóla í hringi
og skilja eftir sig ljót för.
Utanvegaakstur er bann-
aður. Fyrir tveimur árum
var lögum um náttúruvernd
breytt og viðurlög við akstri
utan vegar hert. Verði alvar-
leg spjöll á náttúru landsins
vegna utanvegaaksturs skal
brotamaður sæta sektum að lágmarki 350
þúsund krónur, eða fangelsi allt að fjórum
árum. Séu spjöllin alvarleg eða akstur utan
vega sérlega vítaverður er heimilt að gera
ökutækið upptækt með dómi, nema það sé
annars eign.
Íslendingum á að vera það kunnugt
að óheimilt sé að aka utan vegar og að
refsingar liggi við athæfinu. Margir hafa
þó gerst sekir um slíkt og eru dæmi um
ljót sár víða, ára- og jafnvel áratuga gömul
því land því djúp hjólför gróa seint eða jafn-
vel aldrei. Þegar einn hefur markað för
telja aðrir sér fært að aka þar líka. Þá leitar
vatn í hjólförin svo þau geta orðið farvegir
lækja.
Nú steðjar að okkur frekari vandi vegna
fleiri erlendra ferðamanna á hálendis-
slóðum og víðar á alls konar farartækjum.
Hluti þeirra kemur á eigin farartækjum
með ferjunni til Seyðisfjarðar og dæmi
eru um stóra og þunga fjallabíla í þeim
hópi, jafnvel allt að 10 tonnum að þyngd.
Umhugsunarefni hlýtur að vera hvort leyfa
eigi takmarkalausa umferð slíkra öku-
tækja á viðkvæmum slóðum. Nýleg dæmi
eru um alvarleg umhverfisspjöll af völdum
þeirra.
Flestir ferðamennirnir leigja sér hins
vegar bíla við komu hingað, fólksbíla, jepp-
linga eða jeppa eftir atvikum. Allar þessar
gerðir sjást á hálendinu, jafnvel smábílar.
Sjónvarpið birti mynd á dögunum af smá-
jeppa sem ökumaður festi í mýrarmosa
utanvegar á leið að Laka í Vatnajökulsþjóð-
garði. Sá hafði ekið út fyrir veginn til að
forðast poll á veginum. Sárið var ljótt. Lög-
regla losaði bílinn og sektaði ökumann um
nokkur hundruð þúsund krónur.
Spurning er hins vegar hversu vel
erlendum ökumönnum eru kynntar reglur
um akstur hér á landi, einkum bann við
utanvegaakstri? Viðbrögð ökumanna sem
staðnir eru að akstri utan vegar eru gjarna
að þeir hafi ekki vitað af banninu. Lág-
mark er að afhentar séu reglur um akstur-
inn í hvern bíl sem með Norrænu kemur
og skýrt tekið fram um viðurlög við utan-
vegaakstri – og sama upplýsingaskylda sé
á bílaleigum og reglur þar um í hverjum
bíl. Ferðamennirnir eru hingað komnir til
að njóta náttúru landsins en það er á okkar
ábyrgð að kynna þeim það rækilega að við
þá náttúruskoðun ber að vernda hana og
fara eftir settum reglum.
Tilkynningaskylda almennings er rík,
verði menn vitni að náttúruspjöllum. Erfitt
er að ná til spellvirkja nema sönnun sé
til staðar, til dæmis mynd. Aukin ábyrgð
er enn fremur á yfirvöldum. Keppt er að
því að laða ferðamenn hingað – en við
verðum að vera reiðubúin að taka á móti
þeim, meðal annars með viðhaldi hálend-
is- og annarra óbyggðavega. Fréttastofa
Ríkisútvarpsins hafði það eftir Snorra
Baldurssyni, þjóðgarðsverði í Vatnajökuls-
þjóðgarði, að slæmt ástand vega yki utan-
vegaakstur, fólk hlífði jafnvel bílum sínum
með því að aka utan vegar því vegurinn
væri verri yfirferðar en landið í kring.
Hjá því verður heldur ekki komist að
auka eftirlit með akstri í óbyggðum – og
beita þeim viðurlögum sem fyrir hendi eru
gagnvart brotlegum. Á endanum er það
buddan sem kennir mönnum.
Ábyrgð á utanvegaakstri er okkar
Ólíðandi náttúruspjöll
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýSdóTTiR
MMikilvægt
Magnesíum plús með B12, B6 og fólinsýru er slakandi
og styrkjandi fyrir líkama og sál.
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Kæliskápadagar út ágúst
20% afsláttur
20-50%
AFSLÁTTUR
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Heilsurúm - Svefnsófar - Sængur
Sængurver - Heilsukoddar - o.fl.
12 viðhorf Helgin 15.-17. ágúst 2014