Fréttatíminn - 15.08.2014, Page 16
É g ætlaði alltaf að verða sunddrottning þegar ég var lítil en þegar ég var 14 ára hætti ég sund-
iðkuninni og snéri mér að leiklist.
Leiklistin átti alltaf að vera áhuga-
mál og í menntaskóla var ég alltaf í
leikfélaginu og með vinum mínum
stofnaði ég götuleikhús Kópavogs
sumarið 1997,“ segir Anna Begga,
eins og hún er kölluð, sem er
Kópavogsbúi í húð og hár og gekk
í Menntaskólann í Kópavogi.
„Ég stofnaði mitt fyrsta leik-
félag í menntaskóla ásamt vinum
mínum. Leikfélagið hét Herra
Tóbías Búlka og um jólin 97 vorum
við með smá útgerð, þar sem við
lékum jólasveina, jólaálfa og Grýlu
og Leppalúða. Þetta var skemmti-
legt en átti samt bara að vera
áhugamál. Ég var á hagfræðibraut
í MK, fór í viðskiptafræði á Bifröst
og þaðan í nám í verðbréfamiðlun.
Fór svo að vinna hjá Íslandsbanka í
tvö ár og áttaði mig þá á því að mér
fannst það bara ótrúlega leiðinlegt.
Ég hugsaði með mér að þetta væri
alls ekki það sem ég vildi gera, svo
ég sagði upp og stofnaði fyrirtæki,
sem er Leikhópurinn Lotta,“ segir
Anna.
Þetta var árið 2006 og fyrsta
sýning Lottu var sett upp sumarið
2007, Dýrin í Hálsaskógi.
„Þetta var mikið tilraunaverk-
efni, og við vissum ekkert hvað við
vorum að fara út í. Draumurinn
var alltaf að ferðast um landið og
sýna á sem flestum stöðum og við
gerðum það strax fyrsta árið. Við
Þyrnirós er samkynhneigð
Anna Bergljót Thorarensen
er 32 ára, fyrrverandi verð-
bréfamiðlari, sem áttaði sig
á því að vinna í banka væri
leiðinleg og ekki eitthvað sem
hana langaði að gera í lífinu.
Hún sagði upp vinnunni og
stofnaði leikhópinn Lottu.
Síðan eru liðin 8 ár og leik-
hópurinn orðinn fastur liður á
sumri hverju.
Anna Bergljót Thorarensen segir leiklist skemmtilegri en verðbréfamiðlun, þótt hún eigi ekki bíl eða jafnstórt hús og ella. Ljósmynd/Hari
Mér finnst samt
ekki eins og ég sé
að fórna einhverju,
ég valdi bara
annað.
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Ugla eða Kisa.
Kr. 3.600 settið
(2 stk.)
Gla›legar
bókasto›ir
keyptum bíl út á krít frá bönkun-
um. Leigðum kerru fyrir dótið og
fórum af stað, 9 saman í litlum bíl
í 3 mánuði. Þetta átti bara að vera
tilraun en viðtökurnar voru svo
ofboðslega góðar að við ákváðum
að halda áfram.“
140 sýningar á sumri
Lotta hefur í sumar verið að sýna
leikritið Hrói Höttur og Þyrni-
rós, sem er samsuða úr þessum
tveimur þekktu ævintýrum sem
Anna Begga setti saman.
„Á planinu voru rúmlega 70
sýningar, þá eru ekki taldar með
sýningarnar sem eru pantaðar af
fyrirtækjum og einkaaðilum, og
með aukasýningunum verða þetta
í kringum 140 sýningar í sumar.
Lokasýningin okkar er fyrir-
huguð miðvikudaginn 20. ágúst
í Elliðárdalnum, sem er okkar
heimavöllur. Það er þó ekki lokað
fyrir aukasýningar, svo það verða
líklega nokkrar sýningar í viðbót
eftir það.“
Hernaðarleyndarmál afhjúpað
Í leikritinu er falinn boðskapur sem
Anna Begga er tilbúin að ljóstra
upp því nú séu svo fáar sýningar
eftir.
„Hrói hefur lengi verið í upp-
áhaldi hjá mér. Þetta er sú teikni-
mynd Disney sem ég horfði mest
á í bernsku og mér finnst sagan
um Hróa svo dásamlega töff. Svo
fannst okkur svo fyndið að setja
upp Þyrnirós og vera með sofandi
manneskju á sviðinu allan tímann,
þannig að við nýttum tækifærið og
blönduðum þessu saman. Það sem
er svo óvenjulegt við söguna og er
búið að vera hernaðarleyndarmál
í allt sumar er það að Þyrnirós er
samkynhneigð. Að okkur vitandi er
það í fyrsta sinn sem snert er á mál-
efnum samkynhneigðra í barna-
leikriti.
Okkur finnst þetta fallegur boð-
skapur og umræðan um samkyn-
hneigð á að byrja miklu fyrr því
börn eru mjög móttækileg fyrir
þessu öllu saman. Við erum svolítið
að brjóta blað í barnaleikhúsi. Hrói
Höttur er ekki að fara að vekja
Þyrnirós með kossi sannrar ástar,
eins og allir halda sem koma á
sýninguna.“
„Krökkunum finnst þetta ekki
eins skrýtið og fullorðna fólk-
inu. Við vorum pínu hrædd við
umræðuna sem hefði getað farið í
gang, en eftir hverju sýningu hefur
fólk komið til okkar og þakkað
okkur fyrir að opna þessa umræðu
fyrir börnum. Við höfum fengið
eina kvörtun í allt sumar, sem var
frá eldri konu sem fannst við vera
að troða þessu ofan í börn alltof
snemma. En ein kvörtun á 140
sýningum telst varla með,“ segir
Anna Begga sem er greinilega stolt
af verkinu.
„Það eru miklu frekar foreldr-
arnir sem eru með spurningar
út í þetta. Margir foreldrar hafa
samt sagt að sýningin sé jafn-
vel skemmtilegri fyrir foreldra
en börn, og ég tek því sem miklu
hrósi. Foreldrar verða að geta
hlegið með börnunum.“
Lífið skemmtilegra í dag
Að stýra leikhúsi hlýtur að vera
mikil breyting frá því að vinna
sem verðbréfamiðlari. „Já það er
gríðarleg breyting, bæði tekjulega
og að öðru leyti. Það gjörbreytti lífi
mínu að taka þessa ákvörðun. Mér
finnst ofboðslega gaman að lifa því
lífi sem ég lifi og líður ótrúlega vel
með það, en auðvitað á ég ekki al-
veg jafn stórt hús og ég væri annars
búin að kaupa mér, og ekki á ég bíl
til þess að keyra um á. Mér finnst
samt ekki eins og ég sé að fórna
einhverju, ég valdi bara annað,“
segir Anna Begga, ánægð með lífið.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
16 viðtal Helgin 15.-17. ágúst 2014