Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 18
í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6,
Garðabæ, s ími : 564 5040
HJÓLATÖS KU R
DOWNTOWN
FARTÖLVU-
TASKA
ULTIMATE 6
STÝRISTASKA
MESSENGER
BAKPOKI
SÖLUAÐILAR
Kría Hjól, Grandagarði 7
Markið, Ármúla 40
Útilif, Glæsibæ og Smáralind
heimkaup.is
Skíðaþjónustan á Akureyri
www.fjallli.is
BACK-
ROLLER
CLASSIC
U ndanfarin ár hef ég unnið hjá Borgarleikhúsinu, bæði sem listrænn ráðunautur í bland við það að semja tónlist við um það bil 2 verk á ári hjá
leikhúsinu. Ég vann á RÚV eftir nám á árunum 2006-
2010, bæði um helgar við þátt sem hét helgarútgáfan og
í morgunútvarpinu eitt sumar. Gerði tónlistarþætti fyrir
útvarpið svo ég þekki þennan stað vel. Þegar staðan var
auglýst sló ég bara til. Mér fannst alltaf gaman að vera á
RÚV á sínum tíma, mér hefur alltaf þótt mjög vænt um
Rás 2,“ segir Frank Hall, dagskrárstjóri Rásar 2.
Er einhver sogkraftur í húsinu, því það eru margir sem
hætta en koma alltaf aftur?
„Já það hlýtur að vera, og sömuleiðis margir sem eru
hér mjög lengi. Meðalstarfsaldur er mjög hár hjá stofnun-
inni. Fólki finnst gott að vera hér, og mér finnst það líka.“
Hvernig voru viðtökurnar innanhúss?
„Mjög góðar. Það er mikill andi breytinga í húsinu
og fólk er jákvætt gagnvart þeim. Við erum með þrjá
mjög öfluga miðla hér innanhúss, Sjónvarpið, Rás 1 og
Rás 2, fyrir utan vefinn. Það er mjög nauðsynlegt að
allur þessi hópur sé saman og vinni saman, það er svona
stóra hugmyndin með breytingunum. Auk þess sparast
peningur með því og húsnæðið nýtist betur. Með því að
spara peninga er vonandi hægt að setja aukið fjármagn
í dagskrána. Þetta eru stórar breytingar, en mér finnst
fólk taka þessu af miklu jafnaðargeði. Starfsfólk var al-
veg tilbúið í þetta. Tilbúið að hætta að horfa um öxl og
horfa fram á við.“
Nauðsynlegt að gera hlutina öðruvísi
„Á svona vinnustað á fólk að finna fyrir því að það er að
vinna með fólki. Það er nauðsynlegt að hitta allt þetta
góða fólk sem er að vinna í húsinu, alveg sama hvort það
er dagskrárgerðarfólk eða hljóðmenn og ljósamenn.
Auðvitað hefur maður fengið ýmsar athugasemdir sér-
staklega frá þeim sem hafa unnið hér lengi, sem koma
með setninguna „það er búið að reyna þetta.“ Það er
alveg eðlilegt en þegar ferskir vindar blása þá er um að
gera að gera hlutina bara aftur, bara öðruvísi.“
Hafa starfsmenn RÚV trú á þessu?
„Já. Núna finnur fólkið fyrir þessu. Það var talað um
breytingar og núna eru þær að verða að veruleika. Það
er allt á áætlun sem er mikilvægt. Hér hefur nánast engu
verið breytt í 10 ár svo ég held að fólk hafi trú á þessu.“
Hver er þín sýn með Rás 2?
„Mér fannst tilverugrundvöllur Rásar 2 vera staðfestur
í þessum látum síðasta haust þegar uppsagnirnar áttu
sér stað. Einhverjir risu upp og spurðu „af hverju er verið
að hafa Rás 2? Er hún ekki bara eins og hinar stöðvarnar
sem eru á frjálsum markaði?
Er ekki bara hægt að eyða peningunum í annað?“
Ég fylgdist mikið með þessari umræðu og hafði alveg
mína skoðun. Mér fannst gaman að finna að fólk reis
upp með Rás 2, sem íslensku tónlistarútvarpi. Hjartað
á Rás 2 er íslensk tónlist, henni er hvergi sinnt eins og
hér, og það ætlum við ætlum að gera. Svo er mjög mikil-
vægt í starfi rásarinnar að vera með puttana á púlsinum
í samfélagsumræðu og dægurmenningu. Tónlist og
lifandi þjóðfélagsumræða. Þetta tvennt er stóra hlut-
verkið.“
Karlmenn ráðandi
Hverjar eru stærstu breytingarnar í vetrardagskránni?
Stærstu breytingarnar eru í dagskrárliðum eins og
morgun og síðdegisútvarpinu. Morgunútvarpið verður
núna á samtengdum rásum 1 og 2. Reynsluboltarnir Óð-
inn Jónsson og Hrafnhildur Halldórsdóttir ásamt Guð-
rúnu Sóleyju Gestsdóttur munu sjá um það undir nafn-
inu Morgunútgáfan. Hugmyndin er að sameina kraftana
til þess að búa til mjög sterkan þátt, blöndu af fréttum,
þjóðfélagsumræðu, mannlegum málum og menningu.
Bergsteinn og Úlfhildur, sem hafa verið á morgnana,
fara í síðdegisútvarpið og með þeim verða þau Þórður
Helgi, betur þekktur sem Doddi litli, og Björg Magnús-
dóttir, sem hefur verið á fréttastofunni. Það verður mjög
spennandi, þetta er vaxandi fólk. Salka Sól sem hefur
verið á morgnana í sumar, kemur inn í Popplandið ásamt
Matta og Óla Palla. Hún stökk nánast fullsköpuð í út-
varp og það verður gaman að fylgjast með henni. Hún og
Doddi litli verða svo með nýjan þátt á laugardögum milli
17 og 19 sem nefnist Hanastél sem verður mjög skemmti-
legur. Leikhúskonurnar Ólafía Hrönn og Sigríður Eir
Zóphaníasdóttir verða svo með þátt á sunnudögum sem
er spennandi.
Það hefur hallað á annað kynið á Rás 2 og það þarf að
breyta því, það er metnaðarmál hjá mér að laga það. Karl-
menn hafa verið ráðandi á Rás 2 í mörg ár.
Svo eru margir skemmtilegir helgarþættir að fara í
gang og þetta er allt að púslast saman í bland við fasta
liði sem verða áfram.
Aðgreining í samræmingu
Hvernig heldurðu að hlustendum Rásar 1 eigi eftir að finn-
ast breytingarnar með morgunútvarpið?
Það má eiginlega spyrja hlustendur Rásar 2 sömu
spurningar, segir Frank. Við erum að blanda saman
tveimur rásum sem eru mjög ólíkar og við viljum al-
mennt aðgreina, en á þessum tíma dags viljum við sam-
ræma þær. Við metum það sem svo að með því erum
við með betri þjónustu við hlustandann. Morgunútvarp
er frábrugðið öðrum þáttum, það þarf öðruvísi tónlist,
hlustunin er önnur svo ég ef einhver þáttur er til þess
fallinn að sameina rásirnar, þá er það morgunþáttur.
Varstu kvíðinn að byrja?
Ekki kannski kvíðinn, en spenntur. Þetta gerðist allt
mjög hratt og við komum inn rétt fyrir sumarfrí hjá fólki,
stuttur tími til þess að plana hlutina, á næsta ári getur
maður gefið sér meiri tíma. Þetta er mjög skemmtilegt
og gefandi starf,“ segir Frank.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Í vor urðu miklar
mannabreytingar
á Ríkisútvarpinu
þegar ráðið var nýtt
fólk í allar helstu
stjórnunarstöður.
Mörg ný andlit
sáust á göngum
RÚV og greinilegt
var að með nýjum
útvarpsstjóra komu
nýjar áherslur.
Nýr dagskrárstjóri
Rásar 2 er Frank
Hall. Frank er 42
ára Reykvíkingur,
tveggja barna fjöl-
skyldufaðir mennt-
aður heimspekingur
frá HÍ og nam
tónlist og nýmiðlun
í Hollandi. Frank er
ekki ókunnugur hjá
RÚV og segir nýja
starfið krefjandi og
skemmtilegt.
Breytingar eru oft
nauðsynlegar segir
Frank Hall dagskrár-
stjóri Rásar 2.
Karlar hafa verið ráðandi í
dagskrá Rásar 2 alltof lengi
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
60% þolenda segja ekki frá kynferðislegu
ofbeldi á þeim tíma sem það á sér
stað eða fljótlega á eftir.
18 viðtal Helgin 15.-17. ágúst 2014