Fréttatíminn - 15.08.2014, Síða 36
36 heilsa Helgin 15.-17. ágúst 2014
Heilsa Ókeypis kennsla í búddafræðum í lífspekifélaginu
Leiðir til að auka lífshamingju
Kennarinn Yangsi Rinpoche hefur
um árabil kennt Vesturlandabúum
búddisma og í næstu viku býður
hann upp á ókeypis kennslu, hug-
leiðslu og fyrirlestur í Lífspeki-
félaginu við Ingólfsstræti í Reykja-
vík.
Aðeins sex ára gamall var Yangsi
Rinpoche viðurkenndur sem endur-
holdgaður Geshe Ngawang Gend-
un sem var þekktur fræðimaður og
búddisti frá Tíbet. Hann var einnig
meistari kennaranna Lama Yeshe
og Lama Zopa Rinpoche sem hafa
báðir heimsótt Ísland.
Yangsi Rinpoche á að baki 25 ára
þjálfun í klaustri í Suður-Indlandi
en árið 1998 flutti hann til Banda-
ríkjanna og fyrir 9 árum stofnaði
hann búddískan háskóla í Portland,
Oregon - Maitripa - þar sem hann
starfar bæði sem rektor og prófess-
or í búddískum fræðum.
Í fyrirlestri sem hann heldur í Líf-
spekifélaginu á fimmtudag fjallar
hann um leiðir til að efla lífsham-
ingju og auka innsæi í daglegu lífi.
Laugardaginn 23. ágúst verður
hann síðan með kennslu og hug-
leiðslu frá klukkan 10 til 16. Allir
eru velkomnir en kennslan fer fram
á ensku. - eh
Yangsi Rinpoche rekur búddískan há-
skóla í Bandaríkjunum þar sem hann er
bæði rektor og prófessor í búddískum
fræðum.
Bláu húsin v/Faxafen
S. 555 7355
www.selena.is
ÚTSALA 20-50%
afsláttur af völdum vörum.
Undirföt-sundföt-náttföt.
Heilsa bættur lífsstíll
6 kraftmikil ráð
til að auka orkuna
Járn
Járn er lykilefni þegar kemur að orkubú-
skap líkamans. Hlutverk þess er að flytja
súrefnið um líkamann og án nægs súrefnis
verðum við þreytt. Við ættum alltaf að
hafa eitthvað járnríkt á matardisknum
okkar. Því grænna því vænna. Brokkolí,
spínat og dökkgrænt blaðsalt er fullt af
járni en auk þess sesamfræ, þurrkaðir
ávextir, heilkorn og rautt kjöt.
Vatn
Það er nauðsynlegt
að vökva líkamann.
Að byrja daginn á
stóru vatnsglasi
kemur kerfinu af
stað og gott að
byrja daginn alltaf
á því. Skiptu gosi
og sykurmiklum
djúsum út fyrir vatn
og orkan mun byrja
að flæða.
Heilkorn
Heilkorn brenna hægar en unnin korn og
gefa því meiri orku til lengri auk þess að
innihalda meiri næringu. Veldu heila hafra,
brún hrísgrjón, quinoa, bygg og heilhveiti.
Koffín
Slepptu kaffinu ef þú vilt orku. Koffín gefur
okkur orkubúst í stutta stund en eftir að
það fjarar út verðum við enn þreyttari en
áður. Einn bolli á dag er góð regla.
Fita
Holl fita er
mikilvægt eldsneyti.
Andoxunarefnin
í matnum halda
frumum líkamans
ungum en til að
vinna andoxunar-
efnin úr matnum er
fita nauðsynleg. Fita
í mat lætur okkur
líka finna fyrr fyrir
seddu og hjálpar
okkur að minnka
matarskammtinn.
Olífuolía, lárperur,
hnetur, fræ og feitur
fiskur eru góð upp-
spretta hollrar fitu.
Jafnvægi
Góð regla er að borða morgunmat líkt
og páfinn, hádegismat líkt og prins og
kvöldmat líkt og pöpullinn. Líkaminn þarf
mikla orku á morgnana en minni eftir því
sem líður á daginn. Til að viðhalda orku
milli máltíða er sniðugt að eiga þurrkaða
ávexti og hnetur.