Fréttatíminn - 15.08.2014, Síða 40
40 matur & vín Helgin 15.-17. ágúst 2014
SóSa heimagert en ekki flókið
Mæ-ón-es
Þ að var bara síðast í morgun sem hringt var í mig og ég spurð um uppskriftina að Gíslamarteins
pasta,“ segir Sóley Tómasdóttir, borgar
fulltrúi Vinstri grænna. Síðla júlímánað
ar birti hún mynd á samfélagsmiðlum af
pastarétti sem hún kallaði Gíslamarteins
pasta og voru margir forvitnir vegna nafn
giftarinnar, þeirra á meðal Gísli Marteinn
sjálfur. „Þetta er uppskrift sem ég fékk frá
Þóru Tómasdóttur systur minni þegar hún
var að vinna á RÚV hér um árið. Hún fékk
uppskriftina frá Gísla Marteini og síðan
hefur rétturinn heitið Gíslamarteinspasta í
okkar meðförum og verið mikið eldaður af
okkur systrum í ýmsum útgáfum án þess
að Gísli sjálfur hafi frekar komið við sögu,“
segir Sóley.
Gíslamarteinspasta byggir á því að
steikja vel af hvítlauk og chilli í mikilli olíu
og blanda sítrónusafa saman við. Það er í
raun pastasósan sjálf og út á pastað þarf
að rífa vel af parmesanosti. „Hlutföllin eru
frjálsleg og byggja á smekk og smakki og
meðlætið getur að öðru leyti verið hvern
ig sem er. Mikið af ferskri steinselju eða
basilikku er gott, eða öðrum kryddjurtum
eftir smekk. Svo má setja kjöt og fisk, en
það má vel vera að uppskriftin sé orðin ein
hvern veginn allt öðruvísi en Gísli eldaði
hana í upphafi.
Eftir að Sóley deildi myndinni hefur hún
fengið fjölda fyrirspurna um hvernig gera
skuli Gíslamarteinspasta og meðal þeirra
sem fóru að hennar ráði og settu mynd af
sínu Gíslamarteinspasta á Instagram er
Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræð
ingur og matgæðingur, og Freyja Haralds
dóttir, varaþingmaður Bjartrar Framtíðar,
fékk einnig uppskriftina.
Í umræðum um myndina hennar Sól
eyjar á Instagram áttar Gísli Marteinn sig
fljótt á því hvaða uppskrift er um að ræða
og segir að hneturnar hafi ruglað hann í
ríminu. Hann kannast sannarlega við að
hafa gefið Þóru uppskrift á sínum tíma eft
ir að hún hafði tala um að kunna fáar pasta
uppskriftir. „Ég gaf henni þá einföldustu
pastauppskrift í heimi. Í grunninn snýst
þetta bara um að blanda saman hvítlauk og
sítrónu. Þú sýður pastað og á meðan hend
ir þú smá hvítlauk á pönnuna í olíu, kreistir
sítrónu yfir og raspar aðeins af berkinum.
Þegar pastað er búið að sjóða er vatninu
hellt af því og pastanu blandað saman á
við á pönnunni. Þetta er síðan sett á diska
og ferskri steinselju stráð yfir,“ segir Gísli
Marteinn sem er afar hrifinn af þessu
einfalda rétti en bendir á að hægt sé að
bæta við þennan grunn líkt og þær systur
hafa gert. „Það er síðan auðvitað fráleitt
að eigna mér heiðurinn af þessu en ég er
þó mjög stoltur af því að vera tengdur við
sítrónur og hvítlauk.“
Gísli Marteinn er í óða önn að vinna að
opnun kaffihússins Kaffi
Vest sem opnar á næstum
vikum á Hverfisgötunni.
Aðspurður segir hann
ekki útilokað að Gísla
marteinspasta verði þar
á boðstólum. „Það verður
að koma í ljós. Kannski
við fáum Sóleyju sem
gestakokk og hún eldar
Gíslamarteinspasta,“
segir Gísli Marteinn.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég er mjög
stoltur af
því að vera
tengdur við
sítrónur og
hvítlauk.
matur gíSlamarteinSpaSta er afar einfaldur paStaréttur
Nefndu pastarétt í
höfuðið á Gísla Marteini
Vinir systranna Sóleyjar og Þóru Tómasdætra hafa flestir heyrt um Gíslamarteinspasta. Gísli Mar-
teinn sjálfur kom af fjöllum þegar hann heyrði upphaflega af nafngiftinni en man þó vel eftir að
hafa gefið Þóru uppskrift að einföldum pastarétti þegar þau unnu saman á RÚV fyrir um áratug.
#gislamarteinspasta
sem Sóley Tómas-
dóttir birti mynd af á
Instagram og en hér
bætti hún við cashew-
hnetum og basiliku.
Gísli Marteinn Baldursson gaf Þóru Tómas-
dóttur, systur Sóleyjar, upphaflega uppskriftina.
Sóley Tómasdóttir
eldar gjarnan Gísla-
marteinspasta sem
hún útfærir eftir
smekk hverju sinni.
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
Gunnar er farinn á hausinn, í það
minnsta í kennitöluflakk og þá er
kominn tími til að búa til sitt eig
in mæjónes. Það er ekki flókið að
gera mæjó heima en þarf örlitla
þolinmæði. Það sem þarf í verkið er
handþeytari og skál. Rafmagnsþeyt
ari er þægilegt tól við þessa athöfn
en ekki nauðsynlegur. Líka hægt
að nota matvinnsluvél en eiginlega
bara ef það þarf að hræra fyrir ferm
ingarveislu. Gott að hafa líka í huga
að heimagert mæjónes hefur ekki
mikið geymsluþol. Þrjá, fjóra daga
í kæliskáp og því gott að gera bara
lítið í einu. Tekur enda bara fimm
mínútur, max.
Það tekur ekki bara fimm mín
útur að búa það til heldur eru líka
bara fimm hráefni í mæjónesi; Eggja
rauða, sinnep, olía, edik og salt. Það
er hægt að nota hvaða edik sem er
en hvítvínsedik er ljómandi. Fyrir þá
sem eru hræddir við edikið er hægt
að nota sítrónusafa í staðinn. Á móti
einni eggjarauðu er á bilinu einn, til
einn og hálfur desilítri af olíu. Fer
eftir því hve rauðan er stór og hvað
hænan borðaði. Það má nota hvaða
matarolíu sem er en því bragðminni
sem olían er, því hlutlausara verður
mæjónesið.
Hafist handa
Byrjað er á að hræra eggjarauðunni
saman við smá slettu af sinnepi, te
skeið eða tæplega svo. Dijon fyrir
þessa hörðu, sætt fyrir hina veikari.
Hræra vel saman þangað til að bland
an verður ljósari og byrjar að þykkna.
Bæta þá dropa eða tveimur af olíu og
hræra eins og lífið velti á því. Halda
svo áfram að hræra olíuna, fyrst í
dropum og síðan í örmjórri bunu sam
an við þangað til mæjónesið er orðið
þykkt og fínt.
Heimagert mæjónes er frekar gult,
Enda búið til úr bæði eggjarauðu og
sinnepi. Hafði því ekki miklar áhyggj
ur af litnum. Að lokum eru svo tvær
til þrjár teskeiðar af hvítvínsediki
eða annarri matarsýru, eins og sítr
ónusafa, hrært saman við og saltað
eftir smekk. Þá er mæjónesið tilbúið
og hægt að löðra því á franskar, gera
eggjasalat eða bara sleikja það af
písknum, við segjum engum.
Gómsæ og
glútenlaust
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KJÚKLINGAMÁLTÍÐ FYRIR 4
Grill
sumar!
Pantaðu á www.noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
GRILLVEISLUR
Gómsætar grillveislur tilbúnar
beint á grillið.
FYRIR HÓPA OG SAMKVÆMI
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar