Fréttatíminn - 15.08.2014, Blaðsíða 50
TónlisT PlaTan Mannabörn koMin úT
Tómasi fátt óviðkomandi
Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari gaf út á dögunum nýja plötu. Platan heitir Mannabörn
og inniheldur áður útgefin sönglög eftir Tómas í nýjum útsetningum Gunnars Gunnarssonar
píanóleikara og organista Fríkirkjunnar.
G unnar Gunnarsson organisti lagðist í það fyrir um tveimur árum að útsetja nokkur af
lögunum fyrir kórinn sem hann
er með í Fríkirkjunni. Mér fannst
takast svo vel til að ég fékk þá
hugmynd að gera heilt prógram
með útsetningum Gunnars,“ segir
Tómas. „Kórinn fékk nafnið Söng-
hópurinn við Tjörnina og ákveð-
ið var að taka þessar útsetningar
upp. Ég fékk Sigríði Thorlacius
til þess að syngja með í þessum
lögum, og Sigtrygg Baldursson
til þess að spila á Conga trommur
í 6 lögum og útkoman er platan
Mannabörn.“
Tómas hefur verið iðinn við það
að semja sönglög í gegnum tíðina
og gerði plötu með Ólafíu Hrönn
sem kom út fyrir 19 árum. Einnig
hefur hann samið sönglög sem
söngvarar eins og Ragnheiður
Gröndal, Mugison, Ragnhildur
Gísladóttir og Ellen Kristjánsdóttir
hafa meðal annarra flutt.
„Ljóð hafa mikil áhrif á mig. þeg-
ar ég les fallegt og gott ljóð þá lang-
ar mig að semja við það lag,“ segir
Tómas. Á plötunni Mannabörn eru
ljóð eftir ýmsa höfunda, Halldór
Laxness, Gyrði Elíasson, Kristínu
Svövu Tómasdóttur og Sveinbjörn
I. Baldvinsson. Tómas sjálfur á
einnig texta en hann segir það alls
ekki vera eitthvað sem hann geti
gert mikið af. „Nei biddu fyrir þér,
nógu langan tíma tekur það mig að
semja lög, hvað þá texta, svo það er
ekki á stefnuskránni.“
Plötur Tómasar sem gefnar hafa
verið út í hans nafni eru á þriðja
tug og fátt hefur honum verið
óviðkomandi. Hvort sem það er
djass, þjóðlög, sönglög eða techno,
en árið 2007 kom út platan Romm-
tommtechno með endurgerðum
lögum Tómasar í techno útgáfum.
Hvað er þá næst hjá Tómasi?
„Ætli það sé ekki bara hip-hop,“
segir hann og hlær. „Ég veit það
hreinlega ekki. Ég ætla að fara til
Kúbu í nóvember og apríl og hafa
augun opin og eyrun, meira veit ég
ekki.“
Útgáfutónleikar Tómasar og
Mannabarna verða á sunnudags-
kvöldið í Hörpu. Tónleikarnir eru
partur af dagskrá Djasshátíðar
Reykjavíkur.
Tómas R. Einarsson hefur sent frá
sér plötuna Mannabörn. Á henni
nýtur hann aðstoðar Sigríðar
Thorlacius og Sigtryggs Baldurs-
sonar. Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNAR SJÓÐI
AURORU Í NÓVEMBER 2014
���������������
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN UM SÓKNUM
RENNUR ÚT 15. SEPTEMBER
HÖNNUNARSJÓÐUR Auroru hefur að mark miði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og
arkitektum fjárhags lega aðstoð� Nánari
upplýsingar um út hlutaða styrki og leið
beiningar vegna um sókna er að finna á
www.honnunarsjodur.is� Umsóknir og
fyrir spurnir sendist á info@honnunarsjodur.
is�Hönnunarsjóður Auroru
ALLRI
SUMAR
VÖRU
50-60
TEKK COMPANY og HABITAT | Kauptúni | Sími 564 4400
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13-18
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
TEVA
sólstóll/bekkur
Fjórir litir – 7.250 kr.
MAUI sólstóll
með taubaki
8.725 kr.
ÚTSÖL
UNNI
LÝKUR
Á
SUNNU
DAG
50
AFSLÁTTUR
50
AFSLÁTTUR
30
AFSLÁTTUR
30
AFSLÁTTUR
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
SKÓLADAGAR 14-17 ÁGÚST
15% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
*GILDIR EKKI FYRIR ÚTSÖLUVÖRUR
50 menning Helgin 15.-17. ágúst 2014