Fréttatíminn - 15.08.2014, Síða 52
Í takt við tÍmann Elfa arnardóttir
Dreymir um brimbretti á Balí
Elfa Arnardóttir er 27 ára Reykvíkingur sem er menntuð í heilbrigðisverkfræði og starfar sem
markaðsstjóri fyrir Nike á Íslandi hjá Icepharma. Hún elskar ristað brauð með túnfisksalati og
leikur sér á brimbrettum og hjólabrettum.
Staðalbúnaður
Ætli helsti staðalbúnaðurinn
minn sé ekki æfingataskan mín?
Ég fer allavegana ekki út úr húsi
á morgnana án þess að taka hana
með mér. Hún inniheldur yfir-
leitt tvær tegundir af dressi,
hlaupadress og crossfit dress. Svo
ákveð ég yfir daginn hvort verður
fyrir valinu. Eðlilega fylgir það
svo starfslýsingu að vera forfall-
inn skósjúklingur en þar er lang
stærstur hluti af safninu Nike
strigaskór í öllum litum og gerð-
um. Stíllinn minn einkennist svo
af því hvað hentar hverju sinni
við skóna mína. Leðurjakki,
víðir bolir, derhúfa, gallabux-
ur, strigaskór og mynstr-
aðar tights eru það sem
verður oftast fyrir valinu en
fötin mín kaupi ég yfirleitt
erlendis. Annars kann ég
best við mig í svörtu, hvítu
og gráu að ofan þar sem
skórnir mínir ráða yfirleitt
allri litagleðinni.
Hugbúnaður
Ég æfi í Crossfit stöðinni
4-5 sinnum í viku og þess
á milli stunda ég hlaup og
jóga í World Class. Þegar ég fer
út að skemmta mér vel ég mér að
fara þangað sem fólkið mitt fer.
Þar sem er skemmtilegt fólk, þar
er gaman. Uppáhalds kaffihúsið
mitt þessa dagana er svo líkleg-
ast Kaffitár í Borgartúni en þar
er hægt að sitja úti undir berum
himni í stórum hópi og njóta. Svo
er ristað brauð með túnfisksalati
þar „to die for!“ Það þarf mikið til
þess að ég nái að halda einbeitingu
út heilan sjónvarpsþátt þar sem ég
þykist hafa ógurlega mikið á minni
könnu en einu þættirnir sem ná að
sjokkera mig nógu mikið til þess
að halda mér fastri við skjáinn kall-
ast Shameless. Þeir standa vissu-
lega undir nafni!
Vélbúnaður
Nike og Apple eru í nánu samstarfi
og þar sem öll „öppin“ frá Nike og
annað eru stíluð inn á Apple tæki
þá flokkast ég sem i-manneskja.
Mest notuðust öppin mín eru In-
stagram, Snapchat og Nike plus en
það forrit heldur utan um hlaupin
mín. Ég er lítið fyrir tölvuleiki nú
til dags en einu sinni sigraði ég í
Zeldu leikinn í GameBoy, er það
ekki eitthvað?
Aukabúnaður
Ég er þeim fríðindum gædd að
starfið mitt býður upp á mikið
af ferðalögum. Ég reyni þá yfir-
leitt að búa til mínar eigin ferðir í
kring um vinnuferðirnar þannig
að ég nái að upplifa sem allra
mest. Draumurinn er að fara í
mánuð til Balí eða eyjanna þar í
kring í surf-skóla þar sem ég get
æft mig á brimbretti allan daginn
og drukkið bjór á ströndinni á
kvöldin. Ég er líka að byrja aftur
að leika mér á hjólabretti en ég
var nokkuð kræfur krakki á þeim
sviðum. Annars er Berlín uppá-
halds borgin mín. Ég gæti vel
hugsað mér að búa erlendis en þá
finnst mér líklegast að Amster-
dam eða Stokkhólmur verði fyrir
valinu. Ætli ítölsk matargerð
flokkist svo ekki undir uppá-
halds mat en ég tel mig vera voða
mikinn matgæðing og fæ það
líklegast beint í æð frá foreldrum
mínum sem kunna svo sannarlega
að njóta. Mér finnst ótrúlega
skemmtilegt að elda en góð borðs-
tund þar sem fjölskylda eða vinir
ná að setjast niður saman og segja
frá deginum sínum þykir mér afar
mikilvæg.
Ljósmynd/Hari
appafEngur
Buycott
Gjarna er talað um að kjósa með veskinu
og versla þannig aðeins við fyrirtæki sem
sýna samfélagslega ábyrgð eða leggjast
gegn barnaþrælkun. Það er hins vegar
meira en að segja það að hafa reiður á
þessu öllu saman. Þá kemur appið Buycott
til sögunnar. Nafnið er orðaleikur og vísar
til enska orðsins „boycott“ sem merkir að
sniðganga. Í Buycott setur þú inn þín við-
mið, hvort sem þú vilt sniðganga vörur frá
Ísrael vegna árásanna á Gaza, sniðganga
Bertolli vegna andúðar stjórnarformanns-
ins í garð samkynhneigðra, Nestlé því
forsvarsmenn vilja einkavæða vatn eða
sniðganga allt súkkulaði frá fyrirtækjum
sem láta fátæk börn á Fílabeinsströnginni
þræla. Buycott sýnir þér valmöguleikana
og þú velur. Snjallsímann notar þú síðan til
að skanna strikamerki á vörum og appið
sýnir þér hvort varan er frá fyrirtæki sem
er þér að skapi. Stundum er tæknin bara
ótrúleg. - eh
Aukum framleiðni
Býrðu yfir góðri hugmynd?
Samtök iðnaðarins óska eftir tillögum frá nemum, rannsakendum,
frumkvöðlum og öðru hugmyndaríku fólki sem gengur með hugmynd
eða vinnur að verkefnum sem fela í sér aukna framleiðni íslensks iðnaðar
eða að greina stöðu framleiðni. Í boði er starfs- og fundaraðstaða,
aðgangur að sérfræðingum, að mynda tengsl við aðildarfélög og annað
sem Samtökin geta lagt að mörkum.
Sendu inn hnitmiðaða lýsingu á verkefninu og hvernig það getur stuðlað
að aukinni framleiðni. Láttu fylgja starfsferilsskrá og ef fyrirtæki koma að
verkefninu er æskilegt að senda stutta greinargerð um starfsemi þeirra.
Frestur til að senda inn hugmyndir er til 31. ágúst nk. og sendist
á framleidni@si.is.
Samtök iðnaðarins eru stærstu hagsmunasamtök atvinnurekenda hér á
landi og mynda þéttriðið net 1600 fyrirtækja. Á 20 ára afmæli
Samtakanna leggja þau sérstaka áherslu á aukna framleiðni.
Markaður,
veitingar,
and lits máln ing
happ drætti og
upp ákomur.
Fjölskyldudagur á KEX til
styrktar börnum í Palestínu
KEX Hostel 17. ágúst frá 14–17
Allur peningur sem safnast
rennur óskipt ur til hjálpar
starfs Rauða krossins.
Frjáls framlög eru einnig vel
þegin, hægt er að leggja inn
á reikning 014005071350,
kt. 0812882839.
52 dægurmál Helgin 15.-17. ágúst 2014