Fréttatíminn - 15.08.2014, Side 54
Miðborg Menningarnótt haldin í nítjánda sinn uM næstu helgi
Stærsti viðburður á Íslandi
Menningarnótt verður haldin í
nítjánda sinn um næstu helgi,
laugardaginn 23. ágúst. Talið
er að tæpur þriðjungur þjóðar-
innar hafi komið í miðbæinn
á síðustu Menningarnótt til
að njóta um 600 viðburða sem
voru á dagskránni. Menn-
ingarnótt er stærsti viðburður
sem haldinn er á Íslandi.
Yfirskrift hátíðarinnar er
„Gakktu í bæinn!“ sem vísar
til þeirrar gömlu og góðu
hefðar að bjóða fólk velkomið
og gera vel við gesti. Viðburðir
á Menningarnótt fara fram um
alla miðborg en í ár verður sér-
stök áhersla lögð á Hverfisgöt-
una.
Starfsfólk Höfuðborgarstofu
heldur utan um skipulagningu
Menningarnætur og hefur
vinnan staðið yfir síðan í apríl.
Eðli málsins samkvæmt fer
álagið stigvaxandi og síðustu
dagar hafa verið afar anna-
samir. Mikil vinna fer í að full-
komna dagskrá hátíðarinnar.
Sérstakt blað með dagskrá
Menningarnætur mun fylgja
Fréttatímanum í næstu viku.
Eins og allir vita eru fjöl-
margir minni atburðir á dag-
skrá Menningarnætur. Einn
af stóru viðburðunum er svo
stórtónleikarnir Tónaflóð
sem Rás 2 stendur fyrir ásamt
fleirum. Aðalnúmerið í ár er
stórsveitin Nýdönsk en ásamt
þeim öldnu æringjum troða
upp Mammút, Mono Town og
Skálmöld. Tónleikarnir eru
við Arnarhól og standa frá
klukkan 20-23 þegar flugelda-
sýningin margfræga hefst.
Starfsfólk
Höfuðborg-
arstofu hefur
haft í nógu
að snúast við
undirbúning
Menningar-
nætur um
næstu helgi.
Það var
góður andi í
mannskapn-
um þegar
ljósmyndari
Fréttatímans
átti leið hjá í
vikunni. Ljós-
mynd/Hari
Drengirnir sem hafa æft fyrir Billy Elliot í allt sumar ásamt dansþjálfaranum, Chantelle Carey. Ljósmynd/Hari
leikhús sex drengir berjast uM hlutverk billy elliot
Sex strákar í stífri
dansþjálfun í allt sumar
Söngleikurinn Billy Elliot er eitt af þeim verkum sem sett verða upp á komandi leikári Borgar-
leikhússins. Söngleikurinn, sem farið hefur sigurför um allan heim, fjallar um ungan dreng
sem brýst undan oki föður síns sem vill að hann gerist boxari. Það eina sem Billy vill gera er að
dansa. Breski dansþjálfarinn Chantelle Carey hefur þjálfað sex drengi fyrir hlutverk Billy í allt
sumar. Tveir þeirra fá hlutverkið.
í sumar hafa farið fram stífar æfingar hjá sex ungum drengjum sem koma til greina í aðalhlutverk sýningarinnar
Billy Elliot sem verður á fjölum Borgar-
leikhússins á næsta ári. Aðeins tveir verða
þó valdir í aðalhlutverkið. Drengirnir sem
hafa tekið þátt í æfingunum eru þeir Rúnar
Bjarnason, Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Bene-
dikt Gylfason, Hjörtur Viðar Sigurðarson,
Baldvin Alan Thorarensen og Marinó Máni
Mabazza.
Breski dansþjálfarinn Chantelle Carey
hefur dvalið hér á landi í sumar og hefur
haft yfirumsjón með æfingum drengjanna.
„Ég er búin að vera hérna síðan í byrjun
júní og fer í lok ágúst. Þetta er búið að vera
gríðarlega skemmtilegt og strákarnir hafa
tekið ótrúlegum framförum,“ segir Chan-
telle sem hefur dansað í verkum eins og
Chicago og Chitty Chitty Bang Bang á West
End í London.
Einnig hefur hún dansað í Bollywood-
mynd og nýverið var hún danshöfundur
í nýjustu kvikmynd Ken Loach, Jimmy´s
Hall, sem frumsýnd var á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes síðastliðið vor.
„Þegar drengirnir komu til mín þá leist
mér eiginlega ekkert á þá, en þeir hafa
vaxið alveg gríðarlega á þessum tveimur
mánuðum. Bergur og Lee munu fá flotta
stráka í hendurnar,“ segir Chantelle sem
á við þá Berg Ingólfsson leikstjóra og Lee
Proud danshöfund sýningarinnar. Þeir
stýrðu einnig söngleiknum Mary Poppins
sem sýndur var í Borgarleikhúsinu síðustu
tvö leikár og sló öll áhorfendamet.
„Ég er búin að kenna þeim undirstöðuat-
riðin í steppdansi, ballet og djassballett en
þeir höfðu nánast engan grunn í þessum
dönsum áður. Í dag mundi ég mæla með
þeim í alla bestu dansskóla heims. Það er
búið að vera frábært að vinna á Íslandi og
áhuginn og viljinn til þess að gera hlutina
eins og atvinnumenn er mikill.“ Chantelle
hefur haft lítinn frítíma og hefði viljað skoða
landið meira. „Ég hef nánast bara verið inni
í leikhúsi og lítið getað skoðað mig um.
Ég er þó búin að fara í smá fjallgöngur og
heimsækja Hveragerði og Bláa lónið meðal
annars, og ég er mjög hrifin af landinu,“
segir Chantelle.
Í lok ágúst kemur í ljós hvaða tveir
drengir hreppa aðalhlutverkin en hinir fá
að öllum líkindum önnur hlutverk í söng-
leiknum. Söngleikurinn Billy Elliot verður
frumsýndur í mars 2015 í Borgarleikhúsinu,
en æfingar hefjast í desember á þessu ári.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég er búin
að kenna
þeim undir-
stöðuatriðin
í steppdansi,
ballet og
djassball-
ett ... Í dag
mundi ég
mæla með
þeim í alla
bestu dans-
skóla heims.
Prinsinn mættur
á mölina
Hljómsveitin Prins Póló ætlar að halda
tónleika í höfuðborginni í kvöld, föstudags-
kvöld. Tónleikarnir fara fram á skemmti-
staðnum Húrra við Naustin. Frekar langt er
síðan sveitin lék síðast í Reykjavík en nokkrir
meðlimir sveitarinnar fluttu nýverið út á land
og hefur það fækkað tónleikum sveitarinnar
talsvert. Hljómsveitin Eva mun koma fram
á undan. Hljómsveitin tók upp plötu nýverið
og mun leika lög af væntanlegri plötu. Húsið
opnar klukkan 21. Hljómsveitin Eva stígur á
svið klukkan 22. Miðaverð er 1500 krónur og
eru miðar seldir við innganginn.
Góðir gestir í Hörpu
Bandaríska hljómsveitin Neutral Milk Hotel
er væntanleg til landsins og kemur fram á
tónleikum í Hörpu í næstu viku. Tónleikarn-
ir verða í Silfurbergi á miðvikudagskvöld.
Íslenska sveitin Sin Fang sér um upphitun.
Neutral Milk Hotel er stórt nafn í óháða
tónlistargeiranum. Hún er langsam-
legasta þekktust fyrir breiðskífuna In the
Aeroplane Over The Sea. Platan kom út
árið 1998 og hefur margsinnis verið nefnd
ein af bestu plötum tíunda áratugarins, til
að mynda af Pitchfork, Stereogum, Spin
Magazine, Rolling Stone og Paste. Miðasala
fer fram á Miði.is.
Matarmarkaður á
Thorsplani
Breskur farandmarkaður verður á Thorspl-
ani um helgina og af því tilefni verður
slegið upp götuhátíð í Strandgötunni í
Hafnarfirði. Um er að ræða „gourmet“
matarmarkað sem einnig selur hand-
verk og hönnun frá öllum heimshornum.
Opið frá klukkan 14 á föstudag og 12-19 á
laugardag og sunnudag.
Hafnarfjarðarbær fagnar komu markaðar-
ins og mun í tengslum við hann slá upp
götuhátíð í Strandgötunni og er aðaláhersl-
an lögð á laugardaginn þegar mikið verður
um að vera. Auk erlenda markaðarins
verða hafnfirskir veitingastaðaeigendur
með kynningar á sinni vöru og m.a verður
hægt að bragða á fiskisúpu og hamborg-
urum. Þá býður Lista- og menningarfélagið
upp á tónlistaratriði á Thorsplani og frítt í
bíó í hinu rómaða Bæjarbíói.
Íslenskur bjór
verðlaunaður
„Þetta er afar skemmtilegt og gaman að
fá þessar viðurkenningar sem byggðar eru
á áliti kollega víðsvegar að úr heiminum,“
segir Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari
hjá Borg brugghús.
Hin árlega Global Craft Beer Awards
verðlaunaafhending fór fram í Berlín á
dögunum og það má með sanni segja að
bjórarnir frá Borg Brugghúsi hafi fengið
góðar viðtökur. Bríó, Garún og Úlfur hlutu
gullverðlaun í sínum flokkum og Myrkvi
silfur í sínum flokki.
Alls voru 68 brugghús sem kepptu, héðan
og þaðan úr heiminum og voru þau með
um 200 bjórtegundir skráðar til leiks. Allir
dómarar eru annað hvort bjórbruggarar
og/eða bjórframleiðendur.
54 dægurmál Helgin 15.-17. ágúst 2014