Fréttatíminn - 15.08.2014, Side 60
Helgin 15.-17. ágúst 2014
Í Landbúnaðarháskóla Íslands hljóta nemendur vandaða og gagnlega menntun, sem byggir á gagnrýnni
hugsun, sjálfstæðum vinnubrögðum og
færni. Þetta gerir þeim kleift að verða
öflugir liðsmenn og leiðtogar í samfé-
laginu. Skólinn býður fram á kjörað-
stæður til náms og starfa og laðar að
hæfa nemendur og starfsmenn.
„Við skólann stunda nú um 400
nemendur nám og í haust voru
teknir inn 154 nýnemar, en fjöldi ný-
nema er misjafn eftir árum,“ segir
Bára Sif Sigurjónsdóttir, kynningar-
fulltrúi við skólann
„Á starfsmenntabrautum er það
búfræðin sem er vinsælust, á há-
skólabrautum eru það búvísindin
og umhverfisskipulagið.
Landbúnaðarháskólinn er svo
miklu meira en bændaskóli. Það
stunda 70 nemendur búfræði við
skólann, meginþorri þeirra ætlar
sér að verða bændur í framtíðinni
en vert er að benda á að margir
hefja nám í búfræði til að auka
grunnþekkingu á landbúnaði en
huga að áframhaldandi námi í t.d.
dýrahjúkrun, dýralækningum
eða búvísindum. Við skólann eru
einnig aðrar brautir eins og um-
hverfisskipulagið sem er undirbún-
ingsnám fyrir meðal annars lands-
lagsarkitektúr og skipulagsfræði.
Auk þess erum við að mennta fólk
í garðykjufræðum t.d. ylrækt, líf-
ræn ræktun, blómaskreytingum
og skrúðgarðyrkju sem er vinsælt
um þessar mundir en í vetur kemur
fyrsti árgangurinn inn sem farið
hefur í raunfærnimat í skrúðgarð-
yrkju og ylrækt,“ segir Bára.
Landbúnaðarháskólinn er með
námsbrautir í kennslu á þremur
stöðum á landinu; Reykjum í Ölfusi
þar sem garðyrkjunámið fer fram
á starfsmenntastigi, Keldnaholti í
Reykjavík þar sem er kennt meist-
aranám í skipulagsfræðum og á
Hvanneyri. „Höfuðstöðvar skólans
eru á Hvanneyri og þar fer fram
kennsla í búfræði á starfsmennta-
stigi og búvísindi, hestafræði, nátt-
úru- og umhverfisfræði, skógfræði
og landgræðsla og umhverfisskipu-
lag á háskólastigi. Á háskólastiginu
er önnunum skipt í fjórar stuttannir
eða spönn þar sem hver spönn er 7
vikur sem endar á prófum. Starfs-
menntanámið er hinsvegar kennt á
tveimur önnum líkt og tíðkast. LbhÍ
býður líka upp á endurmenntun, þar
eru tvær námskeiðsraðir annars-
vegar reiðmaðurinn og hinsvegar
grænni skógar. Einnig eru fjölmörg
áhugaverð námskeið sem kennd eru
víðsvegar um landið. Á Hvanneyri
eru nemendagarðar þar sem boðið
er upp á íbúðir í ýmsum stærðum
sem henta jafnt einstaklingum
sem fjölskyldufólki. Hvanneyri er
mjög barnvænn staður, hér er nýr
leikskóli sem tekur við börnum
allt niður í 12 mánaða auk grunn-
skóla, tónlistarskóla og tómstunda-
rúta gengur niður í Borgarnes fyrir
börnin eftir skóla,“ segir Bára.
Landbúnaðarháskóli Íslands er
lítill skóli sem býður upp á persónu-
lega nálgun og öflugt félagslíf. Stutt
er í alla þjónustu og um klukkutíma
akstur er í höfuðborgina.
Allar nánari upplýsingar um nám
í Landbúnaðarháskólanum má finna
á www.lbhi.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
LandbúnaðarháskóLinn FjöLbreytt nám
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur í áranna rás verið leiðandi afl í
rannsóknum, kennslu og nýsköpun á sviði náttúruvísinda, auð-
linda- og umhverfisfræða og landnýtingar.
Miklu meira
en bændaskóli
Listskautaskóli Bjarnarins
í Egilshöll
NÁNARI UPPLÝSINGAR VARÐANDI NÁMSKEIÐIN VEITA:
Berglind Rós Einarsdóttir, yfirþjálfari s: 899-3058
Erlendína Kristjánsson, skautastjóri s: 697-3990
Kristrún Elva Jónsdóttir, gjaldkeri s: 849-6746
LIÐLEIKI, TÆKNI, ÞOL, STYRKUR, TÚLKUN OG SAMHÆFING
SKRÁNING: www.bjorninn.com/list eða gjaldkerilist@bjorninn.com
STUNDATAFLA
MÁNUDAGAR
Svell 17:20 – 17:55 og
leikfimi 18:10 – 18:55
LAUGARDAGAR
Svell 12:20 – 13:00
Dans yngri 13:20 - 14:00
Dans eldri 11:25 - 12:05
Kennt í litlum hópum og
skipt er eftir getu og aldri.
Námskeiðinu lýkur
með jólasýningu fyrir
alla fjölskylduna.
NÝ 8 EÐA 15 VIKNA NÁMSKEIÐ
HEFJAST 30. ÁGÚST
fyrir stráka og stelpur 5 - 11 ára
og 12 ára og eldri
Frír
prufutími!
Flest stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðum okkar
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Heimilisiðnaðarskólinn
Prjón
hekl
Þjóðbúningasaumur
baldýring
útsaumur
orkering
knipl
jurtalitun
tóvinna
víravirki
vefnaður
leðursaumur
og margt eiraVerslun
Mikið úrval af íslensku prjónabandi
og lopa, prjónum, prjónabókum,
og öðrum blöðum.
Efni og önnur tillegg fyrir
þjóðbúningasaum og jurtalitun.
Gjafakort.
Verið velkomin.
Opið alla daga kl. 12-18