Fréttatíminn - 15.08.2014, Qupperneq 68
skólinn byrjar Helgin 15.-17. ágúst 201412
NÁMSKEIÐ
KVÍÐAMEÐFERÐARSTÖÐVARINNAR
Eftirfarandi námskeið verða á dagskrá hjá
Kvíðameðferðarstöðinni haustið 2014
Námskeið við félagskvíða
Sjálfsöryggi og sátt
Streitustjórnun
Öryggi í námi
Námskeið við athyglisbresti
Svefnnámskeið
Nánari upplýsingar má finna á www.kms.is
Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næringarfræðingur og kennari, segir það vera mjög mikil-
vægt að börn fái orkumikinn morgunverð. Hún mælir ekki með sætum drykkjum í
nestið þar sem þeir innihaldi enga næringu.
É g held að þetta geti verið gagnlegt fyrir marga. Fólk setur sjálft sig stundum á hak-ann og það getur stuðlað að aukinni farsæld
að vinna í þessum hlutum,“ segir Sóley Dröfn Dav-
íðsdóttir, sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni.
Kvíðameðferðarstöðin býður upp á fjölda gagn-
legra og áhugaverðra námskeiða í vetur. Eitt þeirra
er námskeið í streitustjórnun sem hefst miðvikudag-
inn 17. september. Sóley er kennari á námskeiðinu
ásamt Sigurbjörgu Jónu Ludvigsdóttur. Námskeiðið
er ætlað þeim sem finna fyrir mikilli streitu og
vilja tileinka sér aðferðir til að draga úr henni. Um
er að ræða átta vikna námskeið þar sem unnið er
markvisst að því að draga úr streitu með aðferðum
hugrænnar atferlismeðferðar en einnig er notast við
leiðir árvekni (mindfulness).
Á hverju námskeið eru 12-14 manns sem hittast
einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn. Nám-
skeiðið er kennt í húsi Kvíðameðferðarstöðvarinnar
að Skútuvogi 1a. Ekki er þörf á greiningarviðtali hjá
sálfræðingi áður skráning fer fram. Þeir sem vilja
ganga úr skugga um að námskeiðið henti þeirra
vanda geta óskað eftir greiningarviðtali.
Á námskeiðinu er fólki kennt hvað streita er, hvað
veldur henni og mögulegar afleiðingar streitu. Fólk
lærir meðal annars að greina streituvalda í lífi sínu,
takast á við streituhugsanir og að innleiða jákvæð
bjargráð við streitu.
Sóley segir að námskeiðið hafi verið haldið einu
sinni áður og hafi það mælst afar vel fyrir. „Það eru
margir sem finna fyrir of miklum kvíða eða spennu
í sínu daglega lífi. Þetta námskeið er gott fyrir þá
sem vilja ná tökum á því og er tilbúið að gera eitt-
hvað í því.“
Verð námskeiðs er 54.000 krónur en sjúkrasjóðir
stéttarfélaga kunna að niðurgreiða námskeiðið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og önnur nám-
skeið Kvíðameðferðarstöðvarinnar má finna á
heimasíðunni kms.is. Frekari upplýsingar fást og
skráning fer fram í síma 534 0110 eða kms@kms.is.
Unnið í samstarfi við
Kvíðameðferðarstöðina.
Kvíðameðferðarstöðin teKist á við Kvíða eða spennu í daglegu lífi
Gagnlegt námskeið í streitustjórnun
Sóley Dröfn Davíðsdóttir hjálpar fólki að greina streituvalda
og takast á við þá á námskeiði hjá Kvíðameðferðarstöðinni.
nesti Börn og næring
Það er þroski að læra að borða
B örn sem borða góðan og næringarríkan mat halda betur athygli og námið verður þar af leiðandi auðveldara,“ segir Guðrún Þóra Hjalta-
dóttir, næringarfræðingur og kennari. Hún segir
matinn verða að innihalda korn, grænmeti, ávexti,
fisk, kjöt og mjólkurvörur og að mikilvægt sé að borða
5-6 máltíðir á dag. Morgunverð, hádegisverð, síðdegis-
hressingu, kvöldverð og kvöldhressingu. Mjög mikl-
vægt sé að börn fái hollan og orkumikinn morgunverð.
„Í mörgum skólum hefur hafragrautur verið í boði á
morgnana og er það gott. Hafragrautur einn sér er
samt ekki mjög orkumikill, eða um 160 kkal sem er
ekki nóg sem morgunverður. Gott er að hafa nýmjólk,
rúsínur og jafnvel slátur með, til að ná meiri orku.“
Guðrún er ekki hrifin af sætum drykkjum í nestið
þar sem þeir gefa oftast hreina orku án þess að gefa
nokkur næringarefni. Hún segir vatn alltaf eiga að
vera aðgengilegt börnum yfir daginn því það sé lang-
besti svaladrykkurinn. Sætindi af öllu tagi séu mjög
orkurík en nær alltaf næringarlaus og því beri að
varast þau.
Börn eru oft matvönd en Guðrún segir það vera
spurningu um uppeldi. Matvendni sé oftast tilkomin
vegna þess að börn þekki ekki matinn. „Börn vilja oft
frekar einhæfa fæðu. Vilja oft ekki kássur þar sem
margar tegundir koma saman, borða mjög oft ekki kál,
tómata, rúsínur eða sveppi. En matvendni er oftast til-
komin vegna þess að börnin þekkja ekki matinn. Það
er þroski að læra að borða. Sagt er að það taki 21 skipti
til að þykja maturinn góður.“ -hh
tónlistarnám allir geta lært á uKulele
Ukulele er glettið
hljóðfæri
Ukulele á ættir
sínar að rekja til
Hawaii og tengja
margir óma þess
beint við bleikar
standstrendur og
blómakransa.
Ukulele er þó
ekki fjær Ís-
lendingum
en svo að
hér er starfandi
tónlistarskólinn
Ukulele Reykjavík
sem býður upp á
kennslu á ukulele
í nokkrum leik- og
grunnskólum þar
sem áherslan er á
að hafa gaman, en
fullorðnir fá líka
sína tíma.
u kulele er ákaflega skemmtilegt hljóðfæri sem hentar vel litlum fingr-um vegna þess hversu lítið það er,“ segir Haraldur Rúnar Sverrisson,
ukulelekennari hjá Ukulele Reykjavík. Haraldur
er menntaður grunnskólakennari frá Háskól-
anum á Akureyri og tónsmiður frá Listaháskóla
Íslands. Hann kynntist hljóðfærinu ukulele eftir
að hafa séð það í hljóðfæraversluninni San-
gitamiya sem leggur áherslu á heimstónlist og
ákvað að kaupa eitt stykki til að prófa. Haraldur
heillaðist af ukulele og byrjaði upphaflega að
kenna hópi elstu dóttur sinnar í Hjallastefnu-
leikskólanum Öskju. „Það var virkilega gaman
og fleiri vildu vera með. Þetta hefur síðan undið
upp á sig,“ segir hann.
Vegna þess hversu lítið hljóðfærið er hentar
það vel fyrir börn en ukulele lítur út eins og
lítill gítar með fjóra strengi. „Ukulele er glettið
hljóðfæri. Það er eiginlega hálf skondið að horfa
á það og hljómurinn er þannig að það er varla
hægt að spila sorgleg lög á það,“ segir hann.
Haraldur leggur áherslu á skemmtun þegar
hann kennir. Hann segir markmiðið ekki að
„framleiða afreksfólk“ þó hæfileikaríkir ein-
staklingar fái notið sín. „Ég hef heyrt foreldra
tala um að það sé svo mikil áhersla lögð á
árangur, bæði í námi, íþróttum og tómstundum.
Í tímum hjá mér höfum við gaman, og það er
alltaf hlegið mikið,“ segir hann.
Haraldur kennir á ukulele í nokkrum leik- og
grunnskólum í Reykjavík en einnig býður hann
upp á hóptíma fyrir fullorðna, sem og einkatíma
fyrir unga sem aldna. Yngstu nemendurnir eru
allt niður í þriggja ára en þeir elstu um fimm-
tugt. „Það hefur háð ukulele hér á Íslandi að
fólk lítur á það sem eitthvað mitt á milli þess að
vera leikfang og hljóðfæri, og stundum liggur
það bara hjá börnum eins hvert annað leikfang.
Ukulele er hins vegar alvöru hljóðfæri og þess
skemmst að minnast þegar lagið „Over the
rainbow“ hljómaði á flestum útvarpsstöðvum
fyrir örfáum árum í flutningi Hawaii-búans
Israel Kamakawiwo´ole sem lék undir á ukulele.
Á Íslandi er hægt að fá ukulele allt frá um tíu
þúsund krónum og upp í 80 þúsund, sem þá eru
afar vönduð, en erlendis er jafnvel hægt að fá
enn dýrari ukulele. Haraldur lánar nemendum
hljóðfæri í tímum en ekki heim. Ukulele Reykja-
vík er aðili að Frístundakorti ÍTR.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ukulele hentar vel litlum fingrum.