Fréttatíminn - 15.08.2014, Blaðsíða 70
skólinn byrjar Helgin 15.-17. ágúst 201414
Námskeið Næsta kyNslóð hjá Dale CarNegie
Alger sprenging í vinsældum
Rekstrarvörur
– fyrir skrifstofuna
og skólann
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Þ etta snýst um að styrkja sjálfsmyndina, bæta sjálfs-traustið og auka jákvæðni,“
segir Anna Steinsen, þjálfari hjá
Dale Carnegie.
Námskeiðið Næsta kynslóð hefur
notið mikilla vinsælda hjá íslensk-
um ungmennum. Alls hafa yfir fjög-
ur þúsund þátttakendendur útskrif-
ast síðan árið 2004. „Þetta verður
sífellt vinsælla og síðustu þrjú ár
hefur orðið alger sprenging,“ segir
Anna.
Námskeiðið er kennt í fjórum ald-
urshópum, 10-12 ára, 13-15 ára, 16-
20 ára og 21-25 ára. Þjálfunin bygg-
ist á hvatningu, hrósi og jákvæðni.
Þátttakendur geta notað það sem
þeir læra á námskeiðinu í raunveru-
legum aðstæðum í lífinu.
„Það er öll flóran af krökkum sem
kemur á þessi námskeið. Þetta unga
fólk vill undirbúa sig vel fyrir lífið
og ef þú ert með sterka sjálfsmynd
áttu auðveldara með að segja þína
skoðun og að segja nei þegar það á
við. Það hefur gríðarlega þýðingu
að geta staðið upp fyrir sjálfan sig í
stað þess að verða undir.“
Anna segir að unnið sé að fimm
markmiðum á námskeiðinu. Fyrsta
markmiðið er að efla sjálfstraustið.
„Gott og heilbrigt sjálfstraust er lyk-
illinn að vellíðan á öllum aldri. Það
er ekki sjálfgefið að vera með sjálfs-
traust, við þurfum að vinna fyrir
því eins og öllu öðru. Þess vegna er
ekki nóg að lesa um það, við þurf-
um að þjálfa okkur til að bæta það.
Nákvæmlega eins og ef þú ætlar að
ná árangri í fótbolta eða handbolta,
þá verður þú ekki góður með því að
hugsa um það eingöngu, það þarf
að æfa og æfa til að skila árangri “.
Annað markmiðið er að ef la
mannleg samskipti og það þriðja er
að bæta tjáningu. „Þetta er ekki eitt-
hvað ræðunámskeið eins og margir
halda. Við kennum fólki að þora að
standa upp og koma fram. Að ungt
fólk geti haldið fyrirlestur eða sagt
skoðun sína ef kennarinn spyr að
einhverju í skólanum. Geta sagt
hvernig þér líður og talað um til-
finningar.
Fjórða markmiðið er að styrkja
leiðtogahæfileika og fimmta mark-
miðið er að tileinka sér jákvætt við-
horf. Þeir sem koma á námskeiðið
segja að það hafi gert sig jákvæð-
ari. Um leið og þú verður jákvæðari
verður tilveran skemmtilegri.“
Anna segir að árangurinn tali
sínu máli á Næstu kynslóðar-nám-
skeiðunum. „Krakkarnir sem koma
líður betur og þeir eru bæði jákvæð-
ari og öflugri. Á námskeiðunum
kynnast þeir allskonar krökkum
sem hafa farið í gegnum ólíka hluti
og læra hver af öðrum. Þeir sjá að
lífið og tilveran er stærri en bara
bakgarðurinn hjá þeim sjálfum og að
það eru stærri mál að pæla í heldur
en hvaða dressi eigi að fara í diskóið
á föstudaginn,“ segir hún og hlær.
Hvert Næstu kynslóðar-nám-
skeið er átta skipti, auk eftirfylgni.
Næstu námskeið verða í september.
Skráning er hafin í síma 555-7080
og á netföngunum jon@dale.is og
anna@dale.is. Nánari upplýsingar
má finna á heimasíðunni naesta-
kynslod.is.
Unnið í samstarfi við Næstu kyn-
slóð
heimilið 24 NýNemar á hverri öNN
Fjölbreytt og
skemmtilegt nám
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík er með aðsetur í einu fallegasta húsi
borgarinnar, við Sólvallagötu 12 í Reykjavík. Húsið var byggt árið
1921 af Jónatan Þorsteinssyni og hefur skólinn starfað óslitið frá
árinu 1942, ýmist sem heilsársskóli eða í annarri mynd.
Árið1975 breyttist Húsmæðraskóli
Reykjavíkur í Hússtjórnarskólann í
Reykjavík og var þá gerður að ríkis-
skóla. Margrét Sigfúsdóttir, sem
hefur verið skólastýra hússtjórnar-
skólans síðan 1998, segir námið
mjög fjölbreytt og skemmtilegt.
„Námið er ein önn sem er 16 og
hálf vika. Það eru teknir inn 24 ný-
nemar á hverri önn og ekki er hægt
að taka inn fleiri þó eftirspurnin sé
mikil,“ segir Margrét
Stefna skólans er að kenna nem-
endum hefðbundna matargerð sem
nýtist þeim í daglegu lífi sem og
að kynna þeim gamlar matreiðslu-
aðferðir og matarhefð. Nemendur
kynnist nýjungum í matargerð
ásamt því að læra um framandi rétti
og vörur sem notaðar eru í erlendri
matargerð. Stefna skólans í hand-
menntagreinum er að nemendur geti
nýtt sér og aukið þekkingu sína við
saum, prjón, hekl og vefnað og búið
til flíkur og aðra nytsamlega hluti sér
og öðrum til ánægju og gleði.
„Nemendur eru flestir um tvítugt
og eldri, námið er mjög gefandi og
er mikil heimavinna í handavinnu-
fögunum og hver kennsludagur er
frekar langur, enda bara ein önn,“
segir Margrét.
„Þeir sem hafa stundað nám hjá
okkur hafa talað um að skólinn sé
góður undirbúningur fyrir annað
nám vegna mikilla anna og skipu-
lags á heimavinnu.“
Allar upplýsingar um nám í Hús-
stjórnarskólanum í Reykjavík er
hægt að nálgast á www.husstjorn-
arskolinn.is