Þjóðlíf - 01.09.1986, Side 4
EFNISYFIRLIT
STJORNMAL
FÉLAGSMÁL
Forsíðuviðtalið er við Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur, eina þriggja þingkvenna
Kvennalista. Hún lýsir vinnubrögðum á Alþingi,
vinnubrögðum Kvennalistakvenna, framkomu þing-
manna og fjölmiðlamanna og hugsanlegum framboð-
um kvenna.
„Ég hef enga möguleika í forvali!" segir Guðmundur
J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar og þing-
maður Alþýðubandalagsins. Hér lýsir hann vináttunni
við Albert, veikindunum og peningagreiðslunni og
samskiptum við fjölmiðla og flokkinn. Q
Ýmir og Auðhumla heitir höfundur greinar um fjöl-
miðilinn að baki Lýðræðishreyfingarinnar. Stöðu
sinnar vegna getur höfundur, þjóðkunnur maður,
ekki getið nafns að sinni.
Nokkra athygli vakti á sínum tíma að Guðjón B.
Olafsson var ráðinn forstjóri Sambandsins, en sumir
höfðu talið næsta víst að Valur Arnþórsson hlyti þá
stöðu. Árni Gunnarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins,
ræðir við Val um forstjórastöðuna, Sambandið,
flokkaskipanina og fleira.
MYNDUST
Ein af ungum og athyglisverðum myndlistarkonum
landsins er Guðrún Kristjánsdóttir. Hún mun brátt
halda einkasýningu á verkum sínum. 14
HUSNÆBISMAL
Á síðustu árum hefur orðið viðhorfsbreyting meðal
vinstri manna; áður þótti atvinnurekstur hið skítug-
asta af öllu skítugu, en nú þykir sjálfsagt að vinstri
menn eigi og reki fyrirtæki. Nokkrir úr þeirra hópi tjá
sig um þessa breytingu.
KVIKMYNDIR
Kvikmyndafélagið Umbi h.f. er að taka upp kvik-
myndina Stella í orlofi. ÞJÓÐLÍF fylgdist með tökum
og ræddi við forsvarskonur.
KROSSGÁTAN
Vönduð krossgáta mun hér eftir verða fastur liður í
ÞJÓÐLÍFI - verðlaun fyrir rétta lausn.
RITSKOÐUN
í sumar hætti gamalreyndur penni Þjóðviljans störf-
um, ritstjórnarfulltrúinn Óskar Guðmundsson. Hér
lýsir hann hvernig ritskoðun fer fram á íslenskum
fjölmiðlum.
KYNFERÐISMÁL
Klámbylgjan virðist vera að skella yfir ísland af fullum
þunga. Helga Sigurjónsdóttir kennari skrifar gegn
kláminu.
MATARLÍF
Þrjár aðferðir við að ná fram hinu besta úr íslenska
„fjallalambinu".
FRÉTTIR . . . FRÉTTIR . . .
Villtustu draumar húsbyggjenda síðustu ára virðast
orðnar að veruleika, segir Jón Rúnar Sveinsson um
breytingarnar á húsnæðislöggjöfinni - en henni
fylgja einnig ýmsir veigamiklir gallar. 16
Bubbi Morthens og Kvennaathvarfið. Leynihöfundur í
Þjóðleikhúsinu. Hvers vegna líta tölustafirnir svona
út? Höfundar nýrra bóka. Tvíhöfða þursinn hjá
Svörtu á hvítu. Konur betri við samningaborðið?
TÍMARITIB ÞJÓÐLÍF 4. tbl. 2 árg
September 1986. Útgefandi: Fé-
lagsútgáfan h.f. Laugavegi 18A,
pósthólf 1752, 121 Reykjavík, sími
62 18 80. Ritstjóri: Auður Styrkárs-
dóttir. Framkvæmdastjóri: Margrét
Hálfdánardóttir. Hönnun og útlit:
Þröstur Haraldsson. Auglýsinga-
stjóri: Ása Jóhannesdóttir. Ljós-
4 ÞJÓÐLÍF
myndir: Gunnar Elísson, Þorvaröur
Árnason o.fl. Filmuvinna: Prent-
myndastofan hf. Prentun og bók-
band: Prentsmiöjan Oddi h.f.
Útgáfustjórn: Árni Sigurjónsson,
Björn Jónasson, Ingibjörg G. Guð-
mundsdóttir, Reynir Ingibjartsson,
Skúli Thoroddsen, Svanur Kristjáns-
son, Þröstur Haraldsson. Vara-
stjórn: Ásdís Ingólfsdóttir, Ólafur
Ólafsson, Ómar Haröarson.
TÍMARITIÐ ÞJÓBUF kemur út sex
sinnum á ári. Verö í lausasölu: kr.
239.- Áskriftarverö þriggja tölublaða
frá september: kr. 633.-