Þjóðlíf - 01.09.1986, Page 65
VIÐBRÖGÐ VIÐ KLÁMI.
Kvenréttindahreyfingin bandaríska
hefur barist gegn klámi um tíu ára
skeið og það er einkum fyrir þá bar-
áttu að farið er að hreyfa þessu máli
þar í landi að einhverju ráði. Svíar
munu einnig vera farnir að hugsa sér
til hreyfings, og svo er sjálfsagt einnig
um fleiri Norðurlandaþjóðir. Pegar
hafa verið skrifaðar margar bækur
um þessi mál og ég hef vitnað til
nokkurra hér. Ég vil geta einnar enn.
Hún heitir Take Back the Night og er
safnrit sem tekið var saman eftir her-
ferð bandarískra kvenna gegn klámi
fyrir nokkrum árum. Þá er nýkomin
út í Bandaríkjunum 2000 blaðsíðna
skýrsla um klámiðnaðinn þar í landi
og þar er því m.a. haldið fram, að
samband sé milli kynlífsglæpa og
svæsins kláms (sjá t.d. Morgunblaðið
12.7. 1986). Fylgjendur klámsins vé-
fengja niðurstöður skýrslunnar, en
kvenréttindakonur og andstæðingar
kláms fagna henni.
Það þarf þó engar sérstakar kann-
anir til að sjá, að sá boðskapur sem
klámið flytur getur vart verið hollur
ungum sálum — og jafnvel ekki harð-
fullorðnu fólki. í sumar horfði ég á
kvikmyndina Níu og hálf vika í kvik-
myndahúsi einu í Reykjavík. Þetta
var ekki talin klámmynd, heldur list-
ræn mynd en djörf. í myndinni var
niðurlæging konunnar fullkomnuð.
Hún var algerlega á valdi karlsins,
sem var „pervert“, og lét hafa sig í að
gera ýmislegt sem hún vildi alls ekki
gera. Og hún ætlaði ekki að geta
slitið sig lausa.
Það er einmitt þessi ógeðslegi „per-
vertismi“ sem virðist orðinn al-
gengari en áður var í kláminu. Gloria
Steinem segir, að það fari í vöxt að
unnustar, sambýlismenn og eigin-
menn þrýsti á konur sínar og unn-
ustur að „prófa" alls konar aflbrigði-
legheit á sviði kynlífsins, sem konum
bjóði við. Oft láti þær undan þegar
þeim er sagt, að öðrum konum líki
þetta eða hitt, þær séu bara gamal-
dags eða borgaralega upp aldar og
bældar.
Við á íslandi höfum lengi vel verið
blessunarlega laus við svæsið klám,
en svo virðist sem í þessum efnum
ætlum við að verða dálítið seinheppin
— eins og reyndar í svo mörgum öðr-
um málum. Nú er engu líkara en
klámbylgjan sé að skella á okkur af
fullum þunga, einmitt þegar hún virð-
ist vera í rénun í nágrannalöndunum.
Við erum víst alltaf tíu árum á eftir
tímanum, hvað sem bættum sam-
göngum líður.
Mér finnst furðulegt, að starfsemi
á borð við þá sem Pan-hópurinn
stundar skuli vera látin afskiptalaus
og yfirvöld depli ekki auga þótt fram
komi í fjölmiðlum, að vændi þrífist í
tengslum við hópinn. Ég held að ekki
sé hægt að túlka afskiptaleysi ákæru-
valdsins á annan hátt en þann, að
íslenskt samfélag sé búið að meðtaka
og samþykkja bæði hugmyndafræði
og birtingarform nútímaklámiðn-
aðar.
Helga Sigurjónsdóttir er kennari í
Reykjavík.
Helstu heimildir:
Andrea Dworkin: Pornography.
1981.
B. Ehrenreich and D. English: For
Her Own Good. 1979.
Evelyn Reed: Woman‘s Evolution.
1979.
Germaine Greer: Sex and Destiny.
1984.
Gloria Steinem: Erotica and Porno-
graphy.
J.M. Masson: The Assault on Truth.
1984.
Mary Daly: Gyn/Ecology. 1981.
„Hafa karlmenn ef til vill aldrei náð sér eftir að hafa
„drepið“ eigin móður?“
Eldhús
inraettuigar
— Nýjar gerðír'-
□□□□□□□□
• E I. i) H i; s • I
MVirinwmaumkJ
JL Byggingavörur kynna nýjar gerðir
eldhúsinnréttinga frá breskum framleiðendum.
Þetta em smekklegar og stílhreinar innréttingar.
Verðið er mjög hagstætt og greiðsluskilmálar
viðallrahæfi. Komið og skoðið uppsett
kynningareldhús í nýrri
verslun okkar að Stórhöfða. Stórtiöfða, Sími 671100
5JJ
BYGGINGAVÖRUR
ÞJÓÐLÍF 65