Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Page 42

Fréttatíminn - 17.10.2014, Page 42
Þ að er komið haust. Eða eiginlega fimbul-vetur að mínu mati. Lungun hrökkva ofan í brók þegar ég dreg fyrsta andardráttinn utandyra á morgnana. Hrímaðar bílrúður bíða mín glottandi í vetrarhúminu. Fingurnir frjósa utan um stýrið á meðan líkaminn bíður þess skjálfandi að miðstöðin hrökkvi í gang. Fínhreyf- ingar verða erfiðar fram yfir hádegi og ég tek af mér hátíðlegt loforð um að pakka saman öllum kjólum og krúttlegum jökkum um óákveðin tíma. Föðurlandið og fimm ára gamla dúnúlpan mín framvegis. Ósmekklegt en praktískt. Og útlimir virka sem skyldi. Á þessum árstíma fækkar kvöldrúntum í Ísbúð Vesturbæjar. Helst fer ég ekki ótilneydd út fyrir hússins dyr. Að vera heima eins og björn í híði er vænlegasti kosturinn. Samgróin sófanum með lúkuna á kafi í sælgætispokanum. Á þessum árs- tíma er gott sjónvarpsefni að sjálfsögðu lykilat- riði. Ekki japlar maður á Bingókúlunum sínum og horfir út í loftið. Ó, nei. Þar sem ég er ein af þeim sem hef fasta búsetu í sófanum allan ársins hring ætla ég að leyfa mér að mæla með fáeinum dagskráliðum til þess að ylja sér yfir á komandi vetrarkvöldum. Hefjum leikinn á mínum uppáhalds þætti, Scandal. Magnaður spennuþáttur – stútfullur af lygum, svikum, blóði, kynlífi og forboðinni ást. Forseti Bandaríkjanna er ein af helstu sögupers- ónum. Guðdómlega fagur yfirlitum og mann langar mest að smyrja honum á brauð og snæða. Nöktum sko. Namm. Suits er annar stórgóður þáttur. Lögfræðidrama með gamansömu ívafi. Þættirnir skarta unaðslega girnilegri aðalpers- ónu, Harvey Specter, sem ég klæði reglulega úr með augunum. Ég lét meira að segja setja mynd af honum á púða í sumar. Þannig að ég sænga iðulega hjá honum. Stalker eru þættir sem hófu göngu sína vestanhafs í haust. Ég er búin að horfa á tvo slíka með lífið í lúkunum og hland fyrir hjartanu. Æsispennandi þættir, passalega óþægilegir með vænu magni af morðum, ofbeldi og kynþokka. How to get away with murder eru einnig nýir af nálinni. Spilling, svik, morð, framhjáhald og kynlíf. Fullt af gullfallegu fólki með nánast sjálflýsandi tennur. Bandarískur krimmi par exelans. The Mindy Project eru þættir sem eru í afskaplega miklu uppáhaldi hjá mér. Pissfyndnir og dásamlegir. Mindy er læknir af indverskum uppruna, fáeinum kílóum of þung, talar áður en hún hugsar, er passlega óviðeigandi og klæðaburður hennar minnir stundum á jólatré sem lítið barn hefur skreytt. Hver einasta persóna í þáttunum er skemmtilega spes og hlægileg. Þó lítið sé um fola til þess að afklæða með augunum tekst The Mindy Project alltaf að gera mig örlítið hamingju- samari. Svo drekkur Mindy líka vínið sitt af stút – það gleður mig ósegjanlega að sjá aðrar virðulegar konur við slíkan verknað. Nú ef ekki er nenna til þess að kynnast nýjum karakterum og lifa sig inn í ókunnar aðstæður má að sjálfsögðu hlýja sér yfir gamalli klassík. Sex and the city, Friends, Gilmore Girls, Desperate Housewives eða bara Bubba- myndböndum á You- tube. Glæstar vonir standa einnig ávallt fyrir sínu – að lýsa ást minni á Bill Spencer er efni í annan og mun dónalegri pistil. Gleðilegan vetur. Bragðgo og glútenlaust – beint úr frystinum Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus Guðrún Veiga Guðmunds- dóttir er mann- fræðinemi frá Eskifirði sem vakið hefur athygli fyrir bloggskrif sín. Hún stjórnaði sjónvarps- þættinum Nenni ekki að elda og gefur út samnefnda bók fyrir jólin. Guðrún Veiga er komin í föðurlandið og býr sig undir langan vetur í sjónvarpssóf- anum. Afþreying í skammdeginu Guðrún Veiga Guðmunds- dóttir ritstjorn@ frettatiminn.is Guðrún Veiga klæðir Harvey Specter í Suits reglulega úr með aug- unum. Ást hennar á Bill Spencer í Glæstum vonum er hins vegar efni í annan og dónalegri pistil. 42 pistill Helgin 17.-19. október 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.