Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 2
 LögregLumáL InterpoL LýsIr eftIr tveImur ísLenskum börnum Veit ekki hvort börnin mín eru á lífi Sænskur faðir tveggja íslenskra barna sem Interpol lýsir eftir veit ekki hvort börnin hans eru lífs eða liðin. Hann segir íslenska barnsmóður sína hafa numið börnin á brott sama dag og hann gekk í hjónaband með annarri konu. Faðirinn er með fullt forræði yfir börnunum en Þjóðskrá Íslands vill ekki ógilda vegabréf barnanna þar sem hann hefur ekki fært sönnur á að þeim hafi verið rænt. É g veit ekki einu sinni hvort börnin mín eru á lífi,“ segir Goran Grcic, faðir tveggja íslenskra barna sem al- þjóðalögreglan Interpol lýsir eftir. Goran segir barnsmóður sína hafa numið börnin á brott í fyrra og hann hafi hvort séð þau eða talað við þau síðan. Íslenskir fjölmiðlar sögðu frá því í mars þegar Interpol lýsti eftir börnunum en ekkert hefur heyrst af málinu eftir það. Eftirlýstu börnin heita Michaela Angelina Goransdottir og Alexander Oliver Gorans- son, 11 og 12 ára. Móðir þeirra, Gína Júlía Waltersdóttir, er fædd á Íslandi en flutti til Svíþjóðar með fjölskyldu sinni árið 1983 og hefur verið búsett þar síðan. Gína er íslensk- ur ríkisborgari og eru börnin með íslenskt vegabréf sem Goran hefur óskað eftir að verði ógild. Í beiðni Gorans til Þjóðskrár Ís- lands á síðasta ári um að ógilda vegabréfin segir hann að móðir barnanna hafi rænt þeim og að handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur henni í Svíþjóð. Í svari Þjóðskrár frá október á síðasta ári er þessari beiðni hafnað með vísan í lög um vegabréf þar sem ekki séu til staðar „aðstæður eða atvik sem gera það að verkum að óhjákvæmilegt er að afturkalla vegabréf.“ Goran og Gína voru með sameiginlega umgengni, voru með börnin viku og viku í senn frá árinu 2009, en hann segir móður barnanna ekki hafa skilað þeim á fyrirfram ákveðnum tíma í febrúar 2013. Daginn sem hann gekk í hjónaband með annarri konu, þann 25. maí 2013, fór félagsráðgjafi heim til móðurinnar að sækja börnin en gat bara sótt dótturina. Eftir brúðkaupið fór móðir þeirra síðan með bæði börnin úr landi. „Hún var ekki sátt við að ég væri að halda áfram með líf mitt og var í miklu uppnámi út af brúðkaupinu,“ segir hann. Í beiðni sinni til Þjóðskrár lét Goran fylgja staðfestingu þess að hann hefði fengið fullt forræði yfir börn- unum í ágúst. Þjóðskrá gefur hins vegar þau svör að vegabréf barna séu ekki ógild þó breytingar verði á forræði, auk þess sem Goran hafi ekki fært sönnur á að börnunum hafi verið rænt eða sýnt fram á nauðsyn þess að vegabréfin verði ógild. „Mér finnst mjög undarlegt að þeir ógildi ekki vegabréfin,“ segir Goran. Móðuramma barnanna, sem er íslensk, gaf félagsmálayfirvöldum í Svíþjóð skriflega yfirlýsingu um að hún hefði heyrt frá dótt- ur sinni og barnabörnum, að þau séu ekki í Svíþjóð en neitar annars að gefa nokkuð upp. Frá því lögreglan fór að rannsaka málið hefur móðurfjölskyldan hins vegar sagt að hún heyri ekkert frá þeim. Mál barnanna barst til alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra á Íslandi í gegnum sam- skiptakerfi. Þegar Fréttatíminn leitaði eftir svörum frá Jóni F. Bjartmarz yfirlögreglu- þjóni um hvað lögreglan á Íslandi sé að gera til að rannsaka málið og hvort grunur leiki á að börnin séu á Íslandi fengust þau svör að hann gæti ekki tjáð sig um einstaka mál, en sagði þó að upphaflega hafi það verið lög- reglan í Danmörku sem lét lýsa eftir börn- unum. „Ég hélt að lögreglan á Íslandi myndi hjálpa mér en ég hef ekki heyrt neitt frá henni. Ég hef líka leitað til íslenska sendi- ráðsins í Svíþjóð en þar geng ég líka á lok- aðar dyr. Mér finnst gríðarlega erfitt að fá hvergi aðstoð. Ég fæ hvergi nein viðbrögð,“ segir Goran Grcic. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Mér finnst gríðarlega erfitt að fá hvergi hjálp. Gína Júlía Walters- dóttir, móðir barnanna. Michaela Angela Fædd 10. júní 2003. 150 cm, 40 kg. Brúngræn augu, ljósbrúnt hár. Alexander Oliver Fæddur 27. júní 2001. 160 cm, 40 kg. Ljósgrá augu, ljósbrúnt hár. Michaela var við brúðkaup föður síns þann 25. maí í fyrra en þau hafa ekki sést síðan. Ekkert lát er á tekjuvexti af erlend- um ferðamönnum nú þegar hillir undir stærstu ferðamannamánuði ársins, að því er tölur Seðlabanka Íslands um greiðslumiðlun sýna. Alls nam heildarúttekt erlendra greiðslukorta hér á landi 8,7 milljörðum króna í maí, sem er rúmlega 28% aukning í krónum talið á milli ára. „Hafa erlendir ferðamenn nú náð að strauja kortin sín fyrir 34 milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum ársins, sem er 7,5 milljörðum króna hærri fjárhæð en þeir straujuðu kortin sín fyrir á sama tímabili í fyrra,“ segir Grein- ing Íslandsbanka. „Þessi þróun er í ágætu sam- ræmi við tölur Ferðamálastofu um brottfarir erlendra ferðamanna frá landinu um Keflavíkurflugvöll. Samkvæmt þeim fjölgaði erlend- um ferðamönnum um rúm 24% á milli ára í maí sl., en sé tekið mið af fyrstu fimm mánuðum ársins hefur þeim fjölgað um 31%,“ segir enn fremur. Kortavelta Íslendinga í útlöndum vegna ferðalaga og netviðskipta nam 7,7 milljörðum króna í maí og var kortaveltujöfnuður þar með já- kvæður um 1 milljarð í mánuðinum. „Er hér um að ræða langhagfelld- ustu útkomu þessa jafnaðar frá upp- hafi í maímánuði, og er útkoman fjórfalt betri en hún var í maí í fyrra þegar jöfnuðurinn mældist í fyrsta sinn jákvæður. Frá áramótum talið er korta- veltujöfnuður jákvæður um sem nemur 1,7 milljörðum króna og er þetta í fyrsta sinn sem kortavelta útlendinga hér á landi er umfram kortaveltu Íslendinga í útlöndum á þessu tímabili. Á sama tíma- bili í fyrra straujuðu Íslendingar kortin sín í útlöndum fyrir 2,2 milljörðum króna hærri fjárhæð en útlendingar hér á landi, og árið þar á undan munaði 7,2 millj- örðum króna. Af þessu má sjá,“ segir greiningardeildin, að ferða- þjónustan hefur gegnt lykilhlut- verki við að afla gjaldeyris fyrir þjóðarbúið, og þar með hjálpað til við að halda styrknum í gengi krónunnar á síðustu mánuðum en dregið hefur töluvert úr afgangi á vöruskiptum við útlönd á sama tímabili.“ -jh  vIðskIptI ekkert Lát á tekjuvextI túrIsmans Milljarðastraumur frá erlendum ferðamönnum Veiði hafin Elliðaánum Laxveiðin í Elliðaánum hófst í morgun, föstudaginn 20. júní, að venju, en þá renndi „Reykvíkingur ársins“ fyrstur manna í Sjávarfossinn undir handleiðslu árnefndar Elliðaánna. Auk hans voru Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, viðstaddir opnunina ásamt forystumön- num Orkuveitu Reykjavíkur. Laxinn mætti í Elliðaárnar fyrir nokkru og hafa fiskar verið að sýna sig. Það er Stangaveiðifélag Reykjavíkur sem er með Elliðaárnar á leigu eins og undanfarna áratugi. -jh Flugvirkjar aflýstu verkfalli Til stóð að setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair – og hafði Alþingi verið kallað saman á miðvikudag – en til þess kom ekki þar sem Flugvirkjafélag Íslands ákvað að aflýsa boðuðu verkfalli sem átti að koma til framkvæmda í gærmorgun, fimmtu- dag. Fram kom hjá formanni félagsins að félagsmönnum hugnaðist lagasetningin ekki. Félagið tekur sér mánuð til umhugsunar áður en næstu skref verða stigin. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra fagnaði ákvörðun Flugvirkjafélagsins en fram kom hjá ráðherra úr ræðustóli Alþingis von um að samningar næðust án lagasetningar. Icelandair felldi niður 65 flug síðastliðinn mánudag vegna sólarhringsverkfalls Flugvirkjafélagsins. - jh Hanna Birna Kristjánsdóttir innan- ríkisráðherra hefur skipað Ragnheiði Harðardóttur, héraðsdómara við Héraðs- dóm Reykjavíkur, til að leiða starfshóp sem mun taka til skoðunar hvernig komið verði á virkara eftirliti með starfs- háttum lögreglu, að því er fram kemur á síðu innanríkisráðuneytisins. „Ástæðu þess að ákveðið er að hefja þessa vinnu nú má meðal annars rekja til erinda sem borist hafa ráðuneytinu undanfarið þar sem fjallað er um þá stöðu sem komið getur upp þegar íbúar landsins telja á sér brotið vegna starfa lögreglu,“ segir enn fremur. Starfshópurinn mun leggja mat á núverandi kerfi og lagareglur og gera tillögur að breytu verklagi og lagabrey- tingum, eftir því sem við á. „Markmiðið með þessu starfi er að treysta réttaröryggi enn frekar, efla öryggiskennd borgaranna og tryggja vandaða, skilvirka og ré- ttláta málsmeðferð við rannsókn mála,“ segir Hanna Birna Kristjáns- dóttir inn- anríkis- ráðherra. -jh Virkt eftirlit með starfsháttum lögreglu Aflamagn í maí jókst á milli ára Fiskafli í maímánuði jókst um 46% miðað við maí í fyrra. Þar vegur mest mikil aukning á veiddum kolmunna og nokkur aukning í þorskveiði, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Ef borin eru saman 12 mánaða tímabil hefur hins vegar orðið 23% aflasamdráttur frá júní 2013 fram til maí 2014 miðað við sama tímabil árið áður. Á föstu verðlagi varð um 9,5% samdráttur í maímánuði árið 2014 samanborið við maí 2013. 2 fréttir Helgin 20.-22. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.