Fréttatíminn - 20.06.2014, Side 6
AliciA Svefnsófi
B 163 D 83 H 78 cm.
Dýnustærð 147x197 cm.
Slitsterkt áklæði. Litir:
Rautt, svart, grænt, og
blómamunstur.
119.990
Fullt verð: 139.990
SveFnSóFar í höllinni
H ú s g Ag n A H ö l l i n
B í l d s h ö f ð a 2 0 o g D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i
E i t t s í m A n ú m E r 5 5 8 1 1 0 0
mElbournE SvefnSófi með tungu
169.990
Fullt verð: 199.990
mElbournE Svefnsófi Stærð: 243x170 H:70 cm.
Slitsterkt áklæði. Litir: Svargrár, grænn og rauður.
vinstri og hægri tunga.
Rúmfata-
geymsla í tungu.
Áttu
von Á
geStum!
SvefnSófaR
í úRvaLi
N ý bæjarstjórn tekur við í Reykja-nesbæ á næstu dögum eftir líflega kosningabaráttu. Tvö ný framboð,
Bein leið og Frjálst afl, hlutu hvort tvö sæti
í bæjarstjórn og mynda meirihluta með
Samfylkingu. Tveir nýju bæjarfulltrúanna
eru þær Elín Rós Bjarnadóttir, kennari og
jógakennari hjá Frjálsu afli og Anna Lóa
Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá
Beinni leið.
Óhætt er að segja að bakgrunnur þeirra
sé áhugaverður því báðar eru þær miklar
andans konur. Elín Rós er jógakennari og
lærður grunnskólakennari og hefur starfað
við Akurskóla undanfarin ár en hætti
störfum þar síðasta vor og starfar sem
flugfreyja hjá Icelandair í sumar. Anna Lóa
er náms- og starfsráðgjafi hjá Miðstöð sí-
menntunar á Suðurnesjum og hefur í nokk-
ur ár skrifað vinsæla pistla um hamingjuna
á Facebook-síðunni Hamingjuhornið. Um
síðustu helgi lauk hún námi í sálgæslu frá
Endurmenntun Háskóla Íslands og fagnaði
fimmtugsafmælinu. Báðar stóðu þær því
á tímamótum í vor þegar þeim bauðst að
taka sæti á listunum.
Elín Rós kveðst viss um að hugmynda-
fræði jóga eigi vel heima við stjórnun
Reykjanesbæjar. „Jú, ekki spurning. Mín
tilfinning er sú að með meiri jákvæðni
verði bænum betur stjórnað. Þó svo búið sé
að skipta upp í meiri- og minnihluta vona
ég innilega að allir geti unnið saman og
að fólk geti lagt sínar hugmyndir fram án
þess að þær verði brotnar niður af hinum
sem eru í meirihluta. Þannig að öll dýrin í
skóginum séu vinir og að fólk skiptist ekki
í tvo hópa eftir því hvort það er í meiri- eða
minnihluta,“ segir hún.
Anna Lóa verður jafnframt forseti
bæjarstjórnar og segir hún það spenn-
andi áskorun að eiga sæti í bæjarstjórn. Í
störfum sínum hefur hún einbeitt sér að
hvetja fólk áfram og hjálpa því að takast á
við áskoranir í lífinu. „Mannlegi og andlegi
þátturinn gleymast stundum í stjórnmál-
um. Ég hef nýlokið námi í sálgæslu og það
sem ég lærði þar á án efa eftir að nýtast við
störfin fyrir bæjarstjórn. Samtalið á milli
hópa skiptir svo miklu máli. Það er enginn
hópur æðri öðrum og samskiptin eru lyk-
illinn að svo mörgu. Stjórnmál eru ekkert
annað en samskipti.“
Í kosningabaráttunni kom það Önnu
Lóu á óvart að enginn fjölmiðill skyldi hafa
samband við hana og falast eftir viðtali þar
sem hún var í öðru sæti á nýjum lista. Hún
tók því málin í sínar hendur og tók við sig
blaðaviðtal og sendi sem aðsenda grein
til Víkurfrétta. Sömuleiðis tók hún við
sig sjónvarpsviðtal og setti inn á YouTube
þar sem hún brá sér í hlutverk spyrils og
spurði sjálfa sig ýmissa spurninga um
framboðið og stefnumálin. „Við ákváðum
að vera í jákvæðninni og gleðinni í kosn-
ingabaráttunni og það virkaði vel enda býr
hér alveg ótrúlega jákvætt fólk. Það skiptir
miklu máli að vera ekki alvarlegur þó mað-
ur sé að taka á alvarlegum hlutum. Það er
bæði hægt að vera faglegur og glaður.“
Meðal fyrstu verkefna hjá bæjarstjórn
Reykjanesbæjar verður að ráða bæjar-
stjóra, skapa fleiri atvinnutækifæri og
vinna úr niðurstöðum óháðrar úttektar á
fjármálum bæjarins.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
SveitarStjórNarmál aNdaNS koNur í bæjarStjórN
Það er
bæði hægt
að vera
faglegur og
glaður.
Hamingja og innri ró við
stjórn Reykjanesbæjar
Ný bæjarstjórn tekur við völdum í Reykjanesbæ á næstu dögum. Meðal nýju bæjarfulltrúanna eru
jógakennari og höfundur vinsælla pistla um hamingjuna. Þær eru sammála um að jákvæðni og
góð samskipti séu lykillinn að góðri stjórnsýslu.
Elín Rós Bjarnadóttir og Anna Lóa Ólafsdóttir taka á næstu dögum sæti í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Þær ætla að leggja áherslu á
jákvæð samskipti og að hlustað sé á hugmyndir fólks úr öllum flokkum. „Þannig að öll dýrin í skóginum séu vinir og að fólk skiptist ekki í
tvo hópa eftir því hvort það er í meiri- eða minnihluta,“ segir Elín Rós.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
og Veiðifélag Hítarár skrif-
uðu undir nýjan samning
um leigu á veiðirétti í Hítará
á árbakkanum síðastliðinn
laugardag. Hítará verður því
áfram hjá SVFR næstu árin.
Hítará hefur verið einstaklega
vinsæl meðal félagsmanna
SVFR enda frábær laxveiðiá
og veiðihúsið Lundur sem Jó-
hannes á Borg reisti einstakt
og heillandi, að því er fram
kemur í tilkynningu SVFR.
Ólafur Sigvaldason, formaður
Veiðifélags Hítarár og Árni
Friðleifsson, formaður SVFR,
skrifuðu undir samninginn
fyrir hönd félaganna.
Árni segir það einstaklega
ánægjulegt að farsælt sam-
starf félaganna haldi áfram og
að félagsmenn SVFR geti veitt
í Hítará næstu árin. Áin sé
fjölbreytt og skemmtileg og
aðgengi að veiðistöðum gott.
Veiði hófst í Hítará í fyrra-
dag, miðvikudaginn 18. júní.
„Í Hítará hafa veiðimenn
getað eldað sjálfir í upphafi
veiðitíma og á haustin en þar
á milli er matreiðslumeistari
á staðnum sem töfrar fram
kræsingar fyrir veiðimenn
á milli þess sem laxar eru
dregnir á land,“ segir enn
fremur. „Þetta fyrirkomulag
hefur notið mikilla vinsælda.
Sumarið 2013 veiddust um
1150 laxar í Hítará og Grjótá
og Tálma sem eru hliðarár
Hítarár. Vonir veiðimanna
standa til þess að veiðisum-
arið 2014 verði jafnframt
gott.“ -jh
laxveiði Hítará áfram Hjá Svfr NæStu áriN
Leigusamningur handsalaður á árbakkanum
Árni Frið-
leifsson, for-
maður SVFR
og Ólafur
Sigvaldason,
formaður
Veiðifélags
Hítarár,
handsala
samninginn
á bakka
árinnar.
6 fréttir Helgin 20.-22. júní 2014