Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 10
www.siggaogtimo.is
Demantshringur 0.70ct
Verð 680.000.-
H eimsmeistarakeppnin í knattspyrnu sem nú stendur yfir í Brasilíu virðist ætla að verða
ein sú skemmtilegasta frá upphafi.
Mörkum rignir inn, heimsmeistar-
arnir eru úr leik og stemningin
magnast með hverjum deginum.
En undir þessum stærsta íþrótta-
viðburði heims krauma deilur,
baktjaldamakk og spilling. Allt
undir hatti FIFA, Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, sem Sepp
nokkur Blatter er í forsvari fyrir.
FIFA stórgræðir og borgar
ekki skatt
Í aðdraganda HM í knattspyrnu
var hávær umræða um FIFA og
skipulagningu mótsins. FIFA
hefur enda núorðið á sér þann
stimpil að allar aðgerðir þess séu
vafasamar og til þess fallnar að
einhver handgenginn sambandinu
hagnist fjárhagslega.
Eldræða sjónvarpsmannsins
John Oliver í þættinum Last Week
Tonight vakti mikla athygli en
yfir fimm milljónir hafa horft á
hana á Youtube. Þar var fullyrt
að Brasilíumenn hafi eytt ellefu
milljörðum dollara í undirbúning
keppninnar en FIFA stórgræði á
henni og sé að auki undanþegið
skatti. Þar sem Budweiser er einn
af styrktaraðilum keppninnar voru
sett ný lög sem leyfa bjórrisanum
að selja veigar á knattspyrnuvöll-
unum. Frá árinu 2003 hafði áfengi
verið bannað á knattspyrnuvöllum
í Brasilíu vegna hárrar dánartíðni
þar.
1,4 milljarðar dollara í banka
Og tölurnar tala sínu máli. Á
næstu fjórum árum mun FIFA
græða fjóra milljarða dollara og
talan á bankabókinni í Sviss er 1,4
milljarðar dollara. Styrktaraðil-
arnir sækja í sambandið eins og
flugur á skít; Adidas framlengdi
Skuggahliðar fallegustu íþróttar heims
Þó frábær byrjun Hollendinga
og þrenna Thomasar Müller
sé nú á allra vörum er ekki
einhugur um framkvæmd
HM í knattspyrnu í Brasilíu.
Alþjóðaknattspyrnusam-
bandið FIFA liggur undir
ámæli fyrir spillingu og
maðurinn í brúnni, Sviss-
lendingurinn Sepp Blatter,
er afar umdeildur. Svo
umdeildur reyndar að hann
hefur ákveðið að láta ekki sjá
sig opinberlega í Brasilíu á
næstunni.
nýverið samning sinn til
2030. Þetta rímar allt saman
frekar illa við að FIFA er
skilgreint sem samband
sem ekki er rekið með
gróða í huga. Og er undan-
þegið skatti í Sviss.
Blatter staðhæfir að
FIFA láti stóran hluta
af innkomunni renna til
aðildarfélaga sinna. Að
því er breska blaðið Gu-
ardian greinir frá eyðir
það þó meira í rekstrar-
kostnað, þar með talið
laun og ferðakostnað,
en í „knattspyrnuþróun“
eins og það er kallað.
Umfang sambandsins
hefur aukist ótrúlega.
Þegar Blatter kom þar
til starfa voru 12 starfs-
menn hjá FIFA en í dag
starfa þar 452. Launa-
kostnaður er 75 millj-
ónir dollara á ári.
Nýverið eyddi FIFA
sextán milljónum punda
í gerð kvikmyndarinnar
United Passions sem fjallar
um sambandið. Þar leikur
hinn kunni leikari
Tim Roth Sepp
Blatter.
Umdeild
keppni í Katar
Höfuðstöðvar FIFA eru
í Zürich og þar verður
tekin ákvörðun um hvort
hætt verði við að halda HM
árið 2022 í Katar. Breska
blaðið Sunday Times greindi
frá því fyrir skemmstu að
kjörnir fulltrúar þáðu mútur til að
kjósa Katar sem gestgjafa keppn-
innar. Í umfjöllun blaðsins kom fram
að meirihluti þeirra sem þáðu mútur
voru fulltrúar Afríkuríkja. Sepp Blatter
hefur vísað þessum ásökunum á bug
sem vestrænum rasisma gegn Afríku-
þjóðum.
Valið hefur frá upphafi verið afar umdeilt
enda liggur fyrir að ekki er hægt að leika
fótbolta yfir hásumarið í Katar; hitinn þar
getur farið upp í fimmtíu gráður.
Líkir sjálfum sér við Hróa hött
Blatter hyggst gefa kost á sér í formanns-
kjöri FIFA á næsta ári þrátt fyrir að hafa
áður lofað því að þetta yrði síðasta kjör-
tímabil hans. Flestir spá því að hann eigi
sigurinn vísan í kjörinu. Fyrir utan spill-
ingarmálin sem FIFA, undir hans stjórn,
hefur mátt svara fyrir hefur honum tekist
að afla sér ótal hatursmanna fyrir forn-
eskjulegar yfirlýsingar og stjórnarhætti.
Hann hefur sagt að góð leið til að auka
vinsældir kvennaknattspyrnunnar sé að
konur verði í styttri stuttbuxum. Þá tókst
honum að hneyksla marga þegar hann
truflaði mínútu þögn til minningar um
Nelson Mandela.
Sjálfur er Blatter kokhraustur. „Þið hald-
ið kannski að ég sé miskunnarlaus afæta
sem sjúgi lífið úr heiminum og fótbolt-
anum. Ykkur hefur kannski verið talin trú
um að FIFA sé hinn vondi fógeti af Notting-
ham. En sannleikurinn er sá að við eigum
meira sameiginlegt með Hróa hetti.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Sepp Blatter er 78 ára Svisslendingur. Hann
hefur verið forseti FIFA síðan 1998. Blatter er
menntaður viðskipta- og hagfræðingur. Hann er
þrígiftur og á eina dóttur.
Sem ungur maður starfaði Blatter við
almannatengsl og blaðamennsku. Hann gat sér
gott orð hjá Longines úragerðarfyrirtækinu og
þaðan var hann sóttur til FIFA árið 1975. Hjá
FIFA vann hann sig upp þar til hann var kjörinn
forseti. Blatter á heiðurinn af útþenslu sam-
bandsins en um leið hafa ýmis spillingarmál
komið upp á hans vakt.
Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty
Hinn umdeildi Sepp Blatter
er á allra vörum vegna
spillingarmála hjá FIFA. Í
bakgrunni er fundarher-
bergi FIFA í höfuð-
stöðvum þess í Zürich.
10 fréttaskýring Helgin 20.-22. júní 2014