Fréttatíminn - 20.06.2014, Side 16
www.odalsostar.is
TINDUR
OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM
Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar
er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir
fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem
fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
tók bara vondar ákvarðanir og var hálfviti.“ Mamma
Tinnu þvertekur hins vegar fyrir að hafa sagt þessi
orð heldur tekur enn dýpra í árinni: „Ég sagði við
hana að hún hefði orðið fyrir ofbeldi. Mér er illa við
orðið misnotkun í þessu sambandi því mér finnst
engin rétt notkun á börnum,” segir hún ákveðin. „Ég
vissi að hún var að vinna að þessari grein. Hún hafði
sagt mér frá því, fannst hún þurfa að vara okkur við
því að hún ætlaði að gera þetta opinbert. Ég hvatti
hana eindregið áfram.“
Þráði félagslega viðurkenningu
Tinna var á aldrinum 13 til 15 ára þegar hún sendi
myndirnar frá sér. Bæði var um að ræða stráka sem
hún þekkti og treysti, en einnig ókunnuga menn
sem hún kynntist á netinu og fékk frá þeim hrós og
viðurkenningu fyrir að senda nektarmyndir, nokkuð
sem hún var ekki vön að fá í félagslegum samskiptum.
Foreldrar Tinnu segja hana hafa verið góðan náms-
mann að upplagi en félagsfærni hennar hafi lengst
af ekki verið upp á marga fiska og að hún hafi átt
erfitt með að eignast vini. „Báðir bræður hennar eru
greindir á einhverfurófinu. Eftir á að hyggja, eftir að
hafa gengið í gegnum greiningarferlið með þá, tel
ég líklegt að hún hefði fengið greiningu í dag. Strax
sem barn finnst mér hún hafa haft einkenni þess að
vera á einhverfurófinu líka,“ segir Inga Vala. „Hún
var bráðgert barn, fljót að læra að lesa og saug í sig
allan fróðleik. Í gegnum alla sína barnæsku fékk hún
viðurkenningu fyrir hvað hún var klár og gáfuð. Hún
lýsti því vel í pistlinum sínum hvað hún þráði félags-
lega viðurkenningu og ég var ánægð að sjá hversu vel
hún gerði sér grein fyrir aðdraganda þess að hún fór
að senda myndirnar. Hún var þá orðinn unglingur,
farin að upplifa sig sem kynveru og þá eru menn sem
notfæra sér það og spila á það. Þeir gefa henna félags-
lega viðurkenningu, segja að hún sé falleg en brjóta
traust hennar. Samtalið sem við áttum þar sem ég
gerði henni grein fyrir að hún hefði verið beitt ofbeldi
snerist um að hún hefði þarna í raun bara verið barn
og gæti á engan hátt borið ábyrgð á því sem gerðist.
Það var eins og það opnaði augu hennar fyrir því í
fyrsta skipti að þetta var ekki henna að kenna.“
Tveir bekkjarfélagar mættu í afmælið
Inga Vala, móðir Tinnu, segir dóttur sína hafa verið
jaðarsetta af bekkjarsystkinum sínum strax frá því
að hún byrjaði í Oddeyrarskóla í öðrum bekk. „Hún
varð aldrei fyrir þannig einelti að hún væri lamin
heldur var hún félagslega útilokuð og kölluð kenn-
arasleikja. Hún var smátt og smátt brotin niður og
var á endanum orðin auðveld bráð. Hana langaði
bara að það væri einhver strákur skotinn í sér. Okkur
langar það öll.“ Tinna var alltaf hörð af sér og það var
ekki fyrr en hún var orðin 9-10 ára þegar foreldrar
hennar áttuðu sig á hve staða hennar var slæm. „Þá
var umræða um einelti innan skólans á frumstigi
og umsjónarkennarinn gerði tengslakönnun meðal
nemenda. Rúmlega 20 nemendur voru í bekknum
og þeir áttu að svara nafnlaust könnun þar sem þeir
voru meðal annars spurðir hvort það væri einhver
í bekknum sem þeir héldu að liði illa eða þeir vor-
kenndu. Fjórtán svöruðu „Tinna“. Þetta kom kennar-
anum mjög á óvart. Auðvitað voru ýmsar vísbend-
ingar og okkur tók það mjög sárt þegar við buðum
öllum bekknum í 9 ára afmælið hennar og það mættu
tveir. Hún á reyndar afskaplega erfiðan afmælisdag,
fyrstu vikuna í júlí, en það var bara eitt foreldri sem
lét vita. Tinna lét samt sem ekkert væri. Hún reyndi
alltaf að vera nagli. Eftir þetta reyndum við ekki að
bjóða bekknum í afmælið hennar.“
Eftir að bræður Tinnu, þeir Steinar og Logi, voru
greindir á einhverfurófi áttuðu foreldrar þeirra sig
betur á hegðun Tinnu í uppvextinum. „Hún var ekki
Það tók okkur mjög sárt þegar
við buðum öllum bekknum í
9 ára afmælið hennar og það
mættu tveir.
Foreldrar Tinnu, Inga Vala Jónsdóttir og Ingólfur Samúelsson, eru afar stoltir af henni og því hversu langt hún komst í að styrkja sjálfa sig. Ljósmynd/HariFramhald á næstu opnu
16 viðtal Helgin 20.-22. júní 2014