Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 18
Nýstárlegt og glæsilegt útlitið kemur á óvart, en þú verður fyrst verulega hissa þegar þú kemur inn í bílinn og finnur hversu rúmgóður hann er.
Fóta- og höfuðrýmið í þessum fyrsta hlaðbaki sinnar tegundar frá Škoda er nefnilega það mesta sem fyrirfinnst í þessum stærðarflokki bíla.
Skyggða sóllúgan, sem hægt er að fá sem aukabúnað, og stór afturrúðan auka svo enn frekar á frelsistilfinninguna. Þegar við þetta bætast
allar góðkunnu „Simply Clever“ lausnirnar frá Škoda er útkoman bíll sem á engan sinn líka. Sestu inn og njóttu þess að láta fara vel um þig.
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · www.skoda.is
5 stjörnur í árekstrar-
prófunum EuroNcap
Eyðsla frá 4,4 l/100 km CO2 frá 114 g/km
114g
4
,4
Nýr ŠKODA Rapid Spaceback kostar aðeins frá:
3.080.000,-
m.v. ŠKODA Rapid Spaceback 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur.
SIMPLY CLEVER
UPPLIFÐU
RÝMI
með samskipti nógu vel á hreinu og
oft áttaði hún sig ekki á því hvaða
áhrif hegðun hennar hafði á aðra.
Henni fannst alltaf mikilvægt að rétt
skyldi vera rétt, og ef hún til dæmis
heyrði fólk spjalla um eitthvað sem
hún taldi sig hafa meira vit á átti hún
til að vaða inn í samræðurnar og
segjast hafa lesið hið rétta í „þess-
ari“ bók á „þessari“ blaðsíðu,“ segir
mamma hennar og brosir. Þegar
minningarnar streyma getur það sem
eitt sinn var svo erfitt að eiga við virst
afar kómískt. „Lengi vel bar hún ekki
skynbragð á þetta en á síðustu árum
var hún farin að gera sér betur grein
fyrir þessu.“ Pabbi Tinnu segir þau
hafa reynt að leiðbeina henni í þessu
sem öðru og lagt áherslu á mikilvægi
þess að reyna að lesa fólk ekki síður
en bækur.
Með sterka stöðu sína sem náms-
maður að leiðarljósi ákvað Tinna að
reyna að komast úr Oddeyrarskóla
sem fyrst og í Menntaskólann á Akur-
eyri. „Menntaskólinn tók inn útvalda
nemendur úr 9. bekk í grunnskóla
og setti í svokallaðan krílabekk. Hún
einsetti sér að komast í þennan bekk,
hélt sínum góðu einkunnum og sigldi
í gegnum viðtal í menntaskólanum.
Hún sá þetta sem leið út.“
Náði sér aldrei á strik
Nektarmyndirnar sem hún sendi
af sér voru á þessum tímapunkti
komnar mikla í dreifingu. Eins og hún
sagði frá í pistlinum þá fékk hún að
heyra nánast daglega athugasemdir
á borð við „Gaman að sjá þig í fötum“
frá ýmsum samnemendum sínum í
MA. Það var ekki fyrr en eftir andlát
hennar sem foreldrar Tinnu fréttu að
hún hefði byrjað að prófa kannabisefni
um þetta leyti. En hún eignaðist líka
kærasta sem bar virðingu fyrir henni
og sýndi henni stuðning, kærasta
sem síðar var einn af þeim sex vinum
hennar sem héldu á kistunni hennar í
gröfina. Tinna fór að njóta sín á nýjan
hátt; hún tók þátt í leiklistarlífinu í
MA, í söngvakeppninni og hellti sér
síðan út í pólitík. Allt þetta kom for-
eldrum hennar nokkuð skemmtilega
á óvart. „Í menntaskólanum gekk hún
til liðs við VÍMA, Vinstri menn í MA.
Þar voru aðallega strákar starfandi og
þeir dæmdu hana ekki. Það var alveg
dásamlegt. Hún byrjaði þarna líka að
mynda vináttusambönd við stelpur í
meira mæli en áður,“ segir Inga Vala.
Tinna náði sér samt aldrei námslega á
strik eftir að hún fór í menntaskóla og
var í viðtölum hjá námsráðgjafa. Eftir
á að hyggja velti ég fyrir mér hvort
þessar myndbirtingar hafi valdið
hjá henni kvíða sem truflaði hana
við námið. Á þessum tíma vorum við
samt bara rosalega ánægð. Við vildum
ekki þrýsta á hana. Við fundum að
það var mikilvægara, ef ekki bara það
mikilvægasta, að ná að fúnkera sem
unglingur frekar en að vera með topp-
einkunnir.“
Fengu myndirnar inn um póst-
lúguna
Í pistlinum sem Tinna birti á Freyj-
urnar.is þann 23. apríl síðastliðinn
kom fram að sumarið 2008 hafi for-
eldrar hennar komist að því að nektar-
myndir af henni væru í dreifingu,
þegar ófrímerktu umslagi með út-
prentuðum myndum var laumað
inn um póstlúguna hjá þeim.
Þau segja að sér hafi vitanlega
brugðið en fyrst og fremst hafi
þau verið sorgmædd fyrir hönd
dóttur sinnar.
Tinna hafði fengið tölvu í ferm-
ingargjöf og vegna þess hve mikið
hún fór að vera í tölvunni síðustu árin
í grunnskóla og einangraði sig, að
mömmu hennar fannst, ákvað hún að
brjóta trúnað við dóttur sína og fara
inn í tölvuna hennar til að skoða hvað
hún væri að gera. „Ég hafði áhyggjur
af netsamskiptum hennar og fór inn
í tölvuna þar sem ég fann myndir
sem hún hafði tekið af sjálfri sér. Ég
las henni pistilinn og sagði henni að
þetta mætti hún ekki gera. Til dæmis
væri hægt að brjótast inn í tölvuna í
gegnum netið. Ég hugsaði ekki út í að
hún ætlaði að senda þessar myndir en
þarna hefur hún líklegar þegar verið
búin að því.“ Tinna var ekki móttæki-
leg fyrir því að ræða dreifingu nektar-
myndanna eftir að þær bárust inn um
póstlúguna og liðu fimm ár þar til þær
mæðgur settust niður og ræddu málin
af alvöru, í ársbyrjun 2013.
Þunglynd með kvíða
Eftir útskrift frá MA, árið 2011,
flutti Tinna til Reykjavíkur
og
skráði
sig í
mannfræðinám við Háskóla Íslands.
Hún átti kærasta sem hún bjó hjá en
eftir að upp úr slitnaði hjá þeim lenti
Tinna á vergangi þar sem hún átti
erfitt með að finna sér húsnæði. Hún
átti í raun erfitt með að finna sig í til-
verunni, fór í mikla kannabisneyslu
um tíma og féll í skólanum. Inga
Vala, mamma Tinnu, var greind með
brjóstakrabbamein haustið 2012 og
mest af orku hennar fór í baráttuna
við krabbameinið. Vorið eftir ákvað
Tinna að eyða nokkrum vikum hjá for-
eldrum sínum á Akureyri og það er þá
fyrst sem þeir heyra að hún hafi fallið
í skólanum og að hún þjáist af mikilli
vanlíðan og kvíða. Þetta er á þeim
tíma sem kynferðisbrot Karls Vignis
Þorsteinssonar komast í hámæli
vegna umfjöllunar Kastljóss og
Stefndi
á fræðSluStarf
Sama dag og Tinna lést sam-
þykkti skóla- og frístunda-
svið Reykjavíkurborgar
einróma tillögu Vinstri
grænna að fara af stað með
fræðslu- og forvarnar átak
fyrir börn og unglinga vegna
myndbirtinga.
Sóley Tómasdóttir, borg-
arfulltrúi Vinstri grænna,
kom að máli við Tinnu
eftir að hún skrifaði pistilinn
opinskáa. „Ég dáðist að
styrk og hugrekki Tinnu. Ég
hafði samband við Tinnu og
spurði hvort ég mætti ekki
mæla með henni í samtal
við unglinga í grunnskólum
borgarinnar. Hún var heldur
betur til í það. Það er synd
að unglingarnir í Reykjavík
hafi orðið af fræðslu með
Tinnu. Áhrifa hennar gætir
þó í samfélaginu og mun
gæta áfram. Hún opnaði á
umræðu um erfitt en brýnt
vandamál og nú er það
okkar hinna að halda henni
áfram og koma í veg fyrir
að fleiri unglingar þurfi að
ganga í gegnum allt það sem
hún þurfti að gera.“
Fjölskyldumyndataka frá fermingu
Steinars á hvítasunnunni 2012.
Þarna eru f.v. Logi, Inga Vala,
Tinna, Steinar, Ragnhildur.
Framhald á næstu opnu
18 viðtal Helgin 20.-22. júní 2014