Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 26
sumarkaffið 2014:
afríkusól
- veitir gleði og yl
Afríkusól frá Rúanda. Dökkir
Afríkuskuggar eru mjúkir og yndislegir
í þessu kaffi. Hentar í allar gerðir
uppáhellingar.
kaffitar.is
Deilir hafréttaráhuganum með unnustunni
Þjóðréttarfræðingurinn Tómas H. Heiðar var frambjóðandi Íslands í
kjöri dómara við Alþjóðlega hafréttardóminn á dögunum og sigraði
austurríska mótframbjóðandann með miklum yfirburðum, 142
atkvæðum gegn 30. Fyrir Tómasi er hafréttur ástríða og segir hann
sterka stöðu Íslands á því sviði sýna að smáríki geti náð sambærilegri
stöðu og stórveldi sé forgangsraðað á skynsaman hátt. Tómas deilir
hafréttaráhuga sínum með argentískri unnustu sinni.
T
ómas H. Heiðar,
þjóðréttarfræðingur
utanríkisráðuneyt-
isins, sigraði með
miklum yfirburðum
í síðustu viku þegar aðildarríki
hafréttarsamnings Sameinuðu
þjóðanna kusu dómara til setu í
Alþjóðlega hafréttardóminum í
Hamborg. Mótframbjóðandinn
var Austurríkismaðurinn Helmut
Türk, sitjandi dómari sem sóttist
eftir endurkjöri, og voru niður-
stöður kjörsins þær að Tómas
fékk 142 atkvæði gegn 30. Hann
segir það hafa komið á óvart að
sigra með svo miklum yfirburðum
því 3/4 hluta atkvæða þurfi til að
ná kjöri og oft sé kosið nokkrum
sinnum þar til sú niðurstaða fæst.
Tómas ásamt unnustu sinni, Fernöndu Millicay, eftir að úrslit kjörsins voru tilkynnt.
Hún starfar að hafréttarmálum fyrir hönd Argentínu hjá Sameinuðu þjóðunum.
Tómas H. Heiðar og María Mjöll Jónsdóttir kosningastjóri þegar úrslit um kjör dómara við Alþjóða hafréttardóminn voru tilkynnt. Aðeins þurfti að kjósa einu sinni því framboð Íslands sigraði með miklum yfirburðum.
26 viðtal Helgin 20.-22. júní 2014