Þjóðlíf - 01.01.1988, Blaðsíða 13
I N N LENT
• Á íslandi eru mörg
hótel í byggingu.
Harðnandi samkeppni
Undirboö á hótelum. Færri pantanir á hótelum í Reykjavík. Bjarni
Sigtryggsson á Sögu: Nýju hótelin afla ekki nýrra viöskiptavina -
markaöurinn stækkar ekki.
Harðnandi samkeppni þarf ekki að leiða
til stærri markaðar og í þessu tilfeUi virðist
mér því miður að sú sé raunin, sagði Bjami
Sigtryggsson aðstoðarhótelstjórí í samtali
við Þjóðlíf í tilefni af fjölgun hótela í
Reykjavík.
Á síðustu mánuðum hafa bæst við 220
hótelherbergi með opnun Holiday Inn og
Hótel íslands. Hótel Saga með nýbyggingu
sinni hefur einnig sama magn, 220 herbergi.
Aukningin er að magni til 20% á hótelrými í
Reykjavík og eru margir uggandi um þessa
þróun, þar sem þeir telja að fjölgun ferða-
manna haldist ekki í hendur við þetta vax-
andi framboð. Þeir sem stærstir voru á mark-
aðnum fyrir, Hotel Lofleiðir og Saga, telja
sig hafa verið að byggja upp ákveðinn mark-
að erlendis og óttast nú að hinir nýju sam-
keppnisaðiljar taki einfaldlega af þessum
markaði en bæti ekki við hann.
• Jón Sigurðsson bankamálaráðherra. Frum-
varpið gerir ráð fyrir að erlendar peninga-
stofnanir geti átt ákveðinn hluta í íslenskum
bönkum
,,Því er ekki að leyna, að við höfum orðið
varir við undiboð hinna nýju aðilja á þessum
markaði. Þrátt fyrir að þeir hafi lýst því yfir
að þeir myndu afla nýrra viðskiptavina,
skapa sér nýjan markað, hefur sú ekki orðið
raunin“, sagði Bjami Sigtryggsson. Mun
aðallega vera átt við „helgarpakka“ og er-
lenda ferðamenn á fundi og ráðstefnur þegar
rætt er um undirboð.
„Þessi nýja harða samkeppni hefur einnig
leitt til þess að pöntunum hefur fækkað en
t.d. á sama tíma fyrir ári, sem er enn ein
undirstrikun þess að markaður hinna nýju
hótela er ekki viðbót, ekki nýr, heldur hluti
af þeim markaði sem við höfum verið að
byggja upp“, sagði Bjami Sigtryggsson.
Hríngur í uppsiglingu
í þessum heimi hótelviðskipta hafa gagn-
rýnendur orð á því, að hinn kraftmikli at-
hafnamaður Ólafur Laufdal sé að byggja upp
hring og styttra gæti orðið til þess að hann
næði einokunaraðstöðu en margur héidi.
Ólafur Laufdal og fjölskylda hans á nokkur
hlutafélög í veitinga og hótelbransa og
tengdum viðskiptum; hlutafélög um rekstur
Hollywood, Broadway, Hotel Borg, Sjallann
á Akureyri og Hótel Akureyri, Ferðaskrif-
stofu og Bílaleigu Reykjavíkur, Hótel ísland
auk eignaraðildar að Amarflugi og Stjöm-
unni. Samkvæmt upplýsingum Frjálsrar
verslunar em starfsmenn þessara hlutafélaga
að meðtöldu Hótel íslandi um 700 talsins
fyrir utan iðnaðarmenn, skemmtikrafta tón-
listarmenn og fleiri.
„Á litlum markaði þarf ekki mikið til að
verða stór, stærstur og hafa einokun“, sagði
heimildamaður tímaritsins „en að því er ekki
komið enn þá hjá Óla Laufdal". „Eg verð að
viðurkenna að ég óttast þjóðhagslegar af-
leiðingar þess, að nýir aðiljar á markaðnum
séu að bjóða niður á markaði, sem sam-
kvæmt öllu eðlilegu ætti að verða fjölbreytt-
ur og vaxandi atvinnuvegur á Islandi", sagði
Bjami Sigtryggsson.
„Lesið Kaldaljós.
Það verður enginn
svikinn af því.“
Eiríkur Brynjólfsson, Alþýðubladið.
Kaldaljós eftir Vigdísi
Grímsdóttur 453 bls.
Verð kr. 2.290.-
„Þessi fyrsta skáldsaga Vigdísar Grímsdóttur
er mikið verk og vel unnið. Hæfileikar hennar
njótasín hérmjög vel. Kaldaljós er saga sem er
skrifuð af miklum næmleik; tilfinningarík.
sterk og snertir mann.“
Margrét Eggertsdóttir, Þjóðviljinn.
„Frásagnarandinn í bókinni er einstakur. Mér
fannst ég ekki vera að lesa heldur var eins og
einhver hvíslaði að mér. Hún talar við les-
andann, þessi bók, því hún á við okkur erindi.
Bókin byggir á sannsögulegum atburðum en
þeir eru færðir til í tíma og rúmi þannig að þær
fyrirmyndir skipta ekki máli lengur. Aðeins
örlög fólksins skipta máli, og manni er ekki
sama um Grím Hermundsson en verður samt
að játa fyrir sér í lokin að öðruvísi gat ekki
farið.“
Eiríkur Brynjólfsson, Alþýðublaðið.
„Kaldaljós er óður til fegurðar, trúnaðar,
grimmdar, óvenjulega margslungin saga, saga
ástar og dulúðar og þó raunsæis. Unnin af
mikilli list. Henni skal ekki líkt við neitt. Um
sumar bækur á ekki að nota of mörg orð. Því
að eins og Vigdís Grimsdóttir skilur manna
bezt; orð geta verið hættuleg. Og stöku höf-
undum tekst svo að það er sálarbætandi að lesa
orðin og allt sem að baki þirra felst. Þannig er
Kaldaljós fyrir mér. Listaverk eftir Grím sem
ég vildi hafa upp á vegg."
Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðið.
13