Þjóðlíf - 01.01.1988, Blaðsíða 3

Þjóðlíf - 01.01.1988, Blaðsíða 3
BREF FRA LESENDUM Meira um nýjungar Um leið og ég þakka fyrir greinarnar um líftæknina, sem boða miklar framfarir í læknisfræði og í baráttunni gegn hingað til ólæknandi sjúkdómum, vil ég skora á ykkur að halda áfram á sömu braut. Hér á Islandi er gífurlega mikið um alls konar rannsóknarstarfsemi og nýjungar í at- vinnulífi, sem í öllum hraðanum tínast og gleymast. Það er vissulega þörf á að segja frá slíku starfi, reyndar ekki bara úr heimi raunvísindanna heldur líka af vettvangi atvinnuiífsins. Pétur Bamabarsmíðar í Svíþjóð Ég verð að gagnrýna atriði í grein ykkar um uppaguðfræði og bamabarsmíðar í Svíþjóð (des.87). Sjálfur er ég meðlimur í sértrúar- söfnuði, Trú og líf, og finnst þið eingöngu gefa það neikvæða í skyn þegar þið talið um „ofstækisfullt hatur sértrúarsöfnuða" og „strangar refsingar" gagnvart börnum. Þarna eru klisjur sem gefa aðeins neikvæða mynd af meðlimum svona safnaða. Ég veit að viðmót þessa fólks er miklu jákvæðara og umburðarlyndara til náungans en ætla mætti af þessari grein um Svíþjóð. Ég er ekki að setja út á greinina í heild heldur þessa af- stöðu sem kemur fram í henni. Það vantar hlutlausa umfjöllun um sérstrúarsöfnuði í ís- lensku fjölmiðlunum. Benedikt, Reykjavík. Kynjamisrétti: Um leið og ég færi þakkir fyrir viðtalið við Sigrúnu Stefánsdóttur, verð ég að lýsa furðu minni á viðbrögðunum í þjóðfélag- inu almennt við þeim upplýsingum sem fram komu í rannsóknum hennar. Ég hef lúmskan grun um að annars staðar á vesturlöndum hefði verið fjallað meira um jafn hrilalegar vísbendingar um mis- rétti og þar komu fram. Á hinn bóginn ættu allir fjölmiðlamenn að taka þessum niðurstöðum sem áskorun um að gera betur gagnvart konum en þeir hafa hing- að til gert. Sigrún Mér fannst athygliverðast í viðtali Þjóðlifs við dr. Sigrúnu Stefánsdóttur þar sem yfirborðsmennskan og auglýsingaglamr- ið var tekið fyrir. Sá hraði og glamur sem einkennir í vaxandi mæli fjölmiðlana er löngu flotinn yfir alla bakka. Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég er orðinn ansi þreyttur á þessu “kvenna" í öllu sam- hengi. Að mínu mati ber þessi kynjaum- ræða keim af ákveðinni upphafningu konunnar og flótta frá hinum harða heimi allra manna. Þaö er ákveðinn sorglegur tónn í þessu öllu kynjatali og maður er farinn að sakna gleðinnar úr þessari um- ræðu. Ég er ekki að segja að þetta eigi endilega við um niðurstöður rannsóknar Sigrúnar, heldur er ég að benda á ákveð- ið fyrirbæri í kynjaumræðunni, - að hún sé oft ansi leiðinleg og virðist stefna á ákveðna einangrun kvenna. En kannski kemur mér sem karli þetta ekkert við. Guðmundur. Húsavík, 22.12 1987 Ég undirritaður, lesandi Þjóðlífs, vil gera athugasemd við greinina “Hefðbundin nýsköpun“ í Desember-blaði Þjóðlífs 87. Nánar tiltekið þann lið sem fjallar um loftmótstöðu Opels Omega, en þar stendur orðrétt á bls. 60: “Loftmótstaðan er 0.28, en það er mælikvarði á hve vel bíllinn klýfur loftið. „...Algengt er að nýir bílar séu með loftmótstöðu 0.30-0.35 og þykir gott. Því lægri sem þessi stuðull er því minni er eyðslan... Ég minnist þess ekki að hafa séð lægri stuðul um loftmótstöðu í fjölda- framleiddum bíl.“ Þarna ruglar greinarhöfundur saman “stuðli“ og “loft- mótstöðu“ og þar með staðreyndum málsins. Hann segir bæði stuðul og loftmótstöðu vera 0.28. Þetta er þó tvennt óh'kt og algengt að þeir sem reynsluaka bílum hérlendis skilji ekki (ásamt ýmsu öðru). Hið rétta í málinu er eftirfarandi: 1. Loftmótstaðan er ekki 0.28, heldur svokallað Cw-gildi (stuðull), sem er loftmótstöðustuðull og er eingöngu mælikvarði á straumlínulag yfirbygg- ingar bílsins og er notaður til að reikna út loftmótstöðu bílsins. 2. Svo það sé hægt verður að mæla svokallað þversniðsflatarmál bíls- ins (cross sectional area, sil- houette) í m2, kallað A, og marg- falda við Cw gildi bílsins, Cw x A = loftmótstaða, því bílar eru ekki fyrirbæri í einni vídd. Þeir bílar sem í dag hafa minnsta loft- mótstöðu eru Citroen AX, Lancia Y 10 (Skutlan) og Opel Omega. Bíll Loftmót- Þversniös- Loftmót stöðustuöull, flatarmál, staöa, Cw A, í m2 Cwx A Citroen AX . .. 0.31 1.74 0.54 Lancia Y 10 . 0.33 1.74 0.57 Opel Omega 0.28 2.06 0.58 Sökum lengdar sinnar eiga stórir bílar auðveldara með lágt Cw-gildi, því þeir eru svo framlágir en hafa í staðinn stærra þversniðsflatarmál en hinir litlu. Virðingarfyllst, Rafn Líndal Húsavík Bílaskríffínnur Þjóðlífs, Ásgeir Sigurgestsson, hafði þetta að segja um bréf Rafns: „Þetta er góð ábending hjá Rafni og alveg hárrétt; ég sé að ég hef ruglað saman hugtökum og það er einfaldlega vegna þess að ég þekkti ekki nægilega vel til málsins. Nú veit ég hins vegar betur. Það er svona þegar þeir eru að skrifa um bíla sem hafa fyrst og fremst að baki ævilanga, takmarkalausa bíladellu (að vísu dálítið ómarkvissa fyrsta æviárið), en tak- markaða þekkingu. Það er gott til þess að vita að einhverjir lesi svo vandlega það sem ég skrifa að þeir sjái hvað betur má fara og enn betra þegar þeir láta vita af því. Ég vona að fleiri geri slíkt hið sama. Bestu þakkir, Rafn, og láttu heyra meira fráþér.“ Ásgeir Sigurgestsson 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.