Víkurfréttir - 05.11.2009, Qupperneq 23
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM 23VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 5. NÓVEMBER 2009
HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA HEILSUGÆSLUSVIÐ
Bólusetning vegna A(H1N1)
-svínainflúensu
Byrjað verður að bólusetja sjúklinga í
tilgreindum forgangshópum og þungaðar konur
á Suðurnesjum mánudaginn 2. nóvember 2009 í
Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ.
Sjúklingar með tilgreinda „undirliggjandi •
sjúkdóma“ og þungaðar konur hafi
samband við heilsugæslu HSS
og panti tíma fyrir bólusetninguna •
í síma • 422-0600.
Tekið verður á móti pöntunum á •
mánudögum, þriðjudögum og
miðvikudögum milli kl 8-12 og 13-16 til
og með 18. nóvember 2009.
Ath. breytt staðsetning bólusetninga!! Bólusett verður í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ!!
Bólusett verður í Íþróttaakademíunni Reykjanesbæ.
Ætla má að það taki um fjórar vikur að bólusetja
nefnda hópa fólks með „undirliggjandi sjúkdóma“
og þungaðar konur á landinu öllu. Í framhaldinu
verður almenningi boðin bólusetning og verður það
auglýst sérstaklega í nóvember næstkomandi.
Allir aldurshópar þurfa eingöngu eina bólusetningu
(líka börn).
Þeim sem haldnir eru alvarlegu eggjaofnæmi
eða ofnæmi fyrir latex er ráðið frá því að láta
bólusetja sig.
Símapantanir í síma 422-0600.
Neyðarkall frá björgunarsveitunum
Í dag hefst sala á Neyðarkalli björgun-arsveitanna um allt land. Björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins L andsbjargar á
Suðurnesjum munu taka þátt í þessu
átaki, sem er mikilvæg fjáröflun fyrir starf
björgunarsveitanna.
Í Reykjanesbæ verður Björgunarsveitin
Suðurnes við stærri verslanir bæjarins
með sölufólk. Í samtali við Víkurfréttir
sagði Kári Viðar Rúnarsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Suðurnes, að nú
skipti stuðningur bæjarbúa miklu máli.
Björgunarsveitin hafi nýverið orðið fyrir
milljóna króna tjóni þegar björgunarbátur
sveitarinnar, Njörður Garðarsson, hvarf í hafið
eftir að hafa fengið á sig brotsjó á Faxaflóa.
Ágóðinn af sölu Neyðarkallsins rennur
óskiptur í björgunarbátasjóð sveitarinnar en
nýr sambærilegur bátur við Njörð Garðarsson
kostar á milli 10 og 15 milljónir króna en
tryggingabætur fyrir bátinn sem týndist í hafi
eru rúmar 3 milljónir króna.
Íbúar í Reykjanesbæ eru hvattir til að taka
vel á móti björgunarsveitarmönnum og
félögum í kvennasveitinni Dagbjörgu og
unglingadeildinni Kletti, sem aðstoða við
söluna.
Í öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjm munu
björgunarsveitir á viðkomandi stöðum m.a.
ganga í hús og bjóða Neyðarkallinn til sölu.
Hann kostar 1500 krónur og rennur andvirðið
allt til styrktar viðkomandi björgunarsveitum.