Frjáls verslun - 01.09.2013, Síða 15
FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 15
Við sérhæfum okkur í
bankaþjónustu fyrir fyrirtæki
Við bjóðum fjölbreytta og sveigjanlega þjónustu varðandi ávöxtun fjár
muna fyrir fyrirtæki og tengda
aðila,“ segir Sara Magnúsdóttir,
lánastjóri fyrirtækja í viðskipta
bankaþjónustu MP banka í
Borgartúni 26. „Við sérhæfum
okkur í þjónustu við fyrirtæki og
höfum því lagt sérstaka áherslu
á að bjóða úrval af bundnum
og óbundn um sparnaðarreikn
ingum og getum þannig boðið
hentugar sparnaðarleiðir
sniðn ar að þörf um viðskiptavina
okkar. Einn vinsælasti óbundni
reikningurinn er MP sparnaður
en á þeim reikningi fara vextir
stighækk andi eftir innstæðu.
Við bjóðum líka hagstæða vexti
á bundn um reikningum; allt
frá einum upp í sextíu mánuði.
Vextir geta verið fastir eða
breyti legir út binditímann en eru
ávallt hag stæðir. Að auki bjóðum
við auðvitað upp á hefðbundinn
tékkareikning, orlofsreikning og
VSKreikning, sem er opinn í
kringum VSKgjalddaga.“
Eigendum og stjórnendum
veitt sambærileg þjónusta
„Við höfum einnig lagt áherslu á
að veita stjórnendum og eigend
um fyrirtækja víðtæka þjónustu
á sviði ávöxtunar sparifjár auk
allrar almennrar bankaþjónustu.
Lögð er áhersla á að þessir
aðilar njóti viðskipta tengdra
fyrirtækja og öfugt,“ segir Sara.
Sterk staða á gjaldeyris -
mark aði
Að sögn Tryggva Freys Haralds
sonar í gjaldeyrismiðlun MP
banka hefur náðst að skapa
bankanum sterka stöðu á gjald
eyrismarkaði þrátt fyrir að hann
sé minnsti viðskiptabankinn. Það
hefur bankinn getað gert með
því að bjóða gott verð og hraða
og örugga þjónustu:
„Við bjóðum alhliða þjónustu
í gjaldeyrisviðskiptum. Bæði er
um að ræða hefðbundin stund
arviðskipti þar sem gjaldeyris
viðskiptin fara fram þegar í stað
og framvirk viðskipti þar sem
hægt er að tryggja sér gengi
fram í tímann. Framvirk viðskipti
eru þó háð nokkrum takmörkun
um vegna gjaldeyrishaftanna en
eru samt möguleiki sem sífellt
fleiri aðilar skoða.“
Tryggvi segir að viðskipta
vinir gjaldeyrismiðlunar séu
af tvennum toga: „Í fyrsta lagi
að ilar sem eru í viðskiptum við
MP banka að hluta eða öllu leyti.
Í öðru lagi eru þetta aðilar sem
eru eingöngu í gjaldeyrisvið
skiptum við bankann og hafa
kosið að gera svo vegna þess
verðs og þjónustu sem boðið er
upp á. Hvað stærð varðar eru
viðskiptavinir gjaldeyrismiðlunar
allt frá því að vera lítil fyrirtæki á
uppleið upp í það að vera stór
og rótgróin. Þessi fyrirtæki koma
úr ýmsum geirum atvinnulífsins;
frá ferðaþjónustu til sjávarútvegs
og allt þar á milli.“
Aðstoð við fjármögnun
„Við höfum verið að aðstoða
stærri fyrirtæki við endurfjár
mögn un lána síðastliðin misseri
með góðum árangri,“ segir Jón
Óttar Birgisson, forstöðumaður
fyrirtækjaráðgjafar MP banka.
„Við notum sérþekkingu okkar
á markaðnum til að ná fram
sem hagstæðustum kjörum
og skilmálum fyrir viðskiptavini
okkar; það felst þá í grein
ingu og samanburði á því sem
hinir þrír viðskiptabankarnir og
verðbréfamarkaðurinn bjóða.
Með þessari ráðgjöf höfum við
aðstoðað við endurfjármögnun
á um 25 milljörðum á síðastlið
num tólf mánuðum og sparað
viðskiptavinum okkar hundruð
milljóna á ári.
Hlutleysið skiptir máli
Þegar viðskiptavinir okkar vilja
endurfjármagna lán sem eru
af þeirri stærðargráðu að þau
falla utan útlánastefnu MP
banka hafa þeir kosið að nýta
þekkingu fyrirtækjaráðgjafar
innar í þessum efnum til að
tryggja sem best kjör og létta á
vinnu fjármálasviðsins. Það er
heilmikil vinna sem fellur til við
endurfjármögnun lána – sérstak
lega í ljósi breyttra aðstæðna á
síðustu árum.“ Jón Óttar segir
að bæði hafi markaðurinn breyst
mikið, þeir skilmálar sem nú er
samið um og að kjör viðskipta
vina hafi batnað til muna frá því
fyrst eftir hrun. „Það liggur líka
í loftinu að nú gæti verið góður
tími til að festa hagstæð kjör á
lánum til lengri tíma, en einnig
er mikilvægt að horfa til annarra
kostnaðarliða svo sem þóknana
og gjalda fyrirtækja, sérstak
lega í ljósi þeirra breytinga sem
fjár málafyrirtæki eru líkleg til að
ganga í gegnum á næstunni.“
Lausafjárstýring
„Við hjá eignastýringu MP banka
bjóðum trausta þjónustu við
fjárvörslu og ávöxtun lausafjár
fyrirtækja sem tekur mið af
þörf um hvers og eins,“ segir
Dóra Axelsdóttir, forstöðumaður
í eignastýringu MP banka.
„Eignasöfn í lausafjárstýringu
byggjast fyrst og fremst upp af
innlánum, víxlum, ríkisskulda
bréfum og öðrum fjármálagern
ingum með skamman líftíma.
Í krafti stærðar sinnar getur
eignastýring MP banka boðið
upp á betri viðskiptakjör en
ella. Þjónustan er sérsniðin að
lausafjárþörf viðskiptavinar og
hefur hann beinan aðgang að
sérfræðingum eignastýringar
sem og starfsfólki annarra
deilda bankans.“
Áhersla á litlar sveiflur og beint
samband við sérfræðinga
Dóra útskýrir að þjónustan felist
í stýringu fjármuna með áherslu
á litlar sveiflur í virði og verndun
höfuðstóls. „Við veitum aðstoð
við að leggja mat á lausafjárþörf
viðskiptavinar. Sérfræðingar
eigna stýringar vinna síðan
að gerð fjárfestingarstefnu
og viðmiðs sem tekur mið af
áætlaðri tímalengd, ávöxtunar
markmiði og ásættanlegu flökti
(áhættu) ávöxtunar hjá hverjum
og einum. Vaxta og laus
afjáráhætta er lágmörkuð þar
sem meðallíftími eignasafns er
með stysta móti. Lausafjárstýr
ingu fylgja ótvíræðir kostir sem
fyrirtæki geta nýtt sér, svo sem
vöktun og stýring eignaflokka,
betri kjör, aðgangur að sérfræð
ingum bankans og regluleg
upp lýsingagjöf.“
„Með þessari ráðgjöf höfum við aðstoðað við endurfjármögn
un á um 25 milljörðum á síð astliðnum tólf mánuðum og
sparað við skiptavinum okkar hundruð milljóna á ári.“
Dóra Axelsdóttir, forstöðumaður einkabankaþjónustu MP banka.