Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 27
FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 27
fyrirtækja. Öll stærri fyrirtæki,
sveitarfélög og stofnanir fá
út hlutað viðskiptastjóra sem
ann ast þeirra mál frá upphafi til
enda. Öðrum fyrirtækjum er sinnt
í útibúunum af úti bús stjórum og
fyrirtækjasérfræðingum, undir
handleiðslu sérfræðinga á fyrir
tækjasviði.
Landsbankinn er
sjávarútvegs bankinn
Landsbankinn er stærsti sjávar
útvegsbankinn á Íslandi og
markaðshlutdeild hans í útlán
um til sjávarútvegsins er um
40%. Þessi undirstöðugrein hef
ur í áratugi verið mikilvæg asti
viðskiptavinur Landsbankans
sem sjá má m.a. af því að vægi
lána til fyrirtækja í sjávarútvegi
er rúmlega fimmtung ur af lána
safni bankans.
Haukur Ómarsson, for stöðumaður og marg r eyndur í útlánum
til sjávar útvegsins, segir að
ís lenskur sjávarútvegur þurfi að
geta staðið af sér sveiflur í helstu
við skiptalönd um. Hann verði
því að eiga öfluga bakhjarla í
íslenskum fjármálafyrirtækjum
sem stutt geta við metnaðarfull
fyrirtæki sem vilja hasla sér
völl annars staðar en á Íslandi.
„Íslenskir bankar verða einnig
að hafa þann styrk, þá þekk
ingu og þá fjárhagsgetu sem
þarf til að lána útflutningsfyrir
tækjum í erl endri mynt. Þennan
styrk hefur Landsbankinn,“
segir Haukur.
Orka og iðnaður
Landsbankinn hefur lengi
verið leiðandi banki í þjónustu
og fjármögnun til fyrirtækja í
iðnaðar og orkugeiranum og
fjármagnað rekstur og uppbygg
ingu margra helstu fyrirtækja
landsins á þessu sviði. Ólafur M.
Magnússon veitir þessum hluta
viðskiptanna forstöðuforstöðu.
Hann segir óhætt að fullyrða
að mikil gerjun sé framundan á
þessum sviðum, einkum þeim
sem tengjast orkumálum, og að
Landsbankinn fylgist náið með
þeirri þróun: „Við munum áfram
fylgjast vel með og bankinn vill
vera virkur þátttakandi í þeirri
hringiðu sem einkennir íslenska
orkugeirann í dag. Bankinn mun
áfram vera öflugur samstarfs
aðili íslenskra fyrirtækja í þeim
fjöl mörgu spennandi verkefnum
sem framundan eru. Ef við
horfum á iðnaðinn í heild, þá eru
ekki síður áhugaverðir tímar fram
und an þar. Það er mikill kraft ur í
íslenskum iðnaði, þótt hann fari
stundum ekki nægjan lega hátt.
Landsbankinn hefur á síðustu
misserum komið að fjármögnun
fjölmargra verk efna í þessum
geira, verkefna sem hafa m.a.
stuðlað að frekari fullvinnslu
iðnaðarvara í landinu. Við teljum
slík verkefni vera mjög jákvæð
og uppbyggileg og horfum til
þess að taka þátt í fleirum.“
Ólafur segir það fáum dulið að framundan séu áhugaverðir tímar í
orkuöflun Íslendinga, í orkusölu
og dreifingu: „Þegar við horfum
á þá möguleika sem ræddir
hafa verið að undanförnu, t.d.
lagningu sæstrengs til Evrópu
og vinnslu olíu á Drekasvæðinu,
held ég að óhætt sé að fullyrða
að framtíðin sé spennandi.
Landsbankinn ætlar sér að taka
þátt í að móta þessa framtíð eftir
því sem við á.“
Hreyfiafl í ferðaþjónustu
Landsbankinn hefur tekið
afgerandi forystu í fjármögnun
uppbyggingar í ferðaþjónustu
á síðustu árum. „Við höfum
haft mikla trú á möguleikunum
í þessari grein og staðreynd
ir sýna að sú trú okkar á við
rök að styðjast,“ segir Davíð
Björnsson forstöðumaður. Hann
segir að Landsbankinn hafi
markvisst aukið viðskipti við
ferðaþjónustufyrirtæki, bæði
í útibúum bankans um land
allt og í höfuðstöðvunum hjá
Fyrir tækjasviði. „Það er sérstakt
gleðiefni að þessar fjárfestingar
einskorðast ekki við höfuðborgar
svæðið heldur á uppbygging sér
stað víða um land.“
Davíð bendir á að árið 2012 hafi tæplega 650 þúsund erlendir
ferðamenn komið til landsins
um Leifsstöð og þeir hafi aldrei
verið fleiri. Reiknað er með því
að þessi þróun haldi áfram og
er því spáð að innan fimm ára
geti mögulega um ein milljón
erlendra ferða manna komið þá
leið til Íslands. Sumir telji jafnvel
að þeir verði enn fleiri: „Fjölgi
ferðamönn um jafnhratt og gerst
hefur á undanförnum árum
verður á hverju ári þörf fyrir
rúmlega 250 ný hótelherbergi í
Reykjavík næstu 510 árin. Við
sjáum því fram á mikla uppbygg
ingu á þessu sviði áfram og að
þar verði Landsbankinn áfram í
fararbroddi.“
Reynsla og þekking skiptir
sköpum
„Það er engum blöðum um það
að fletta,“ segir Árni Þór Þor
björnsson, framkvæmda stjóri
fyrirtækjasviðs, „að undanfarin
ár hafa verið óvenjuleg. Óvissa
í ytra umhverfi fyrirtækj anna
hefur gert að verkum að bæði
stjórnendur þeirra og lánvei t
endur hafa verið varfærnari
þegar kemur að skuldsetningu
og nýjum fjárfestingum. Við
sjáum að í fjölmörgum atvinnu
greinum, sem knúnar eru áfram
af einkaneyslu, s.s. í verslun,
almennum iðnaði og þjónustu,
hefur staðan verið þröng enda
kaupmáttur ekki nægur þessa
dagana. Hins vegar eru vaxtar
broddar í útflutningstengdum
greinum, í sjávarútveginum,
úrvinnslu sjávarafurða, fiskeldi,
loðdýraeldi og ferðaþjónustunni,
sem stöðugt setur ný og ný
met.“
Árni segir þekkingu og reynslu starfsmanna skipta sköpum um vel
gengni sviðsins. „Aðgreining
á fjármálamarkaði snýst að
sjálfsögðu um fjárhagslegan
styrk, en þó fyrst og fremst um
fólk og um þjónustu og það
samband sem myndast við
viðskiptavinina. Við þekkjum
það af löngum og farsælum
samskiptum við fyrirtæki að
stöðugleiki og traust viðskipta
sambönd til lengri tíma er
undirstaða farsældar í rekstri.
Landsbankinn hefur einsett sér
að vera viðskiptavinum sínum
traustur samherji í fjármálum
og það þýðir að gagnkvæmir
hagsmunir eru í öndvegi.“
Hreyfiafl byggt á reynslu
og þekkingu
„Við þekkjum
það af löngum
og far sælum
sam skiptum
við fyrirtæki að
stöðugleiki og
traust viðskipta
sambönd til
lengri tíma
er undirstaða
far sældar í
rekstri.“
„Landsbankinn
hefur lengi
verið leiðandi
banki í þjónustu
og fjármögnun
til fyrirtækja
í iðnaðar og
orkugeiranum
og fjármagnað
rekstur og
uppbygg ingu
margra helstu
fyrirtækja.“
„Á fyrirtækj a
sviði bankans
fer saman
reynsla og þekk
ing á öllum
svið um sem
bank inn fæst
við.“